Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 02.12.2016, Blaðsíða 10

Fréttatíminn - 02.12.2016, Blaðsíða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 2. desember 2016 Fyrirtækið GAMMA reið einna fyrst á vaðið í hópi fjárfestingarfélaga og byrjaði að kaupa upp íbúðir í stórum stíl í miðbæ Reykjavíkur og síðan í út- hverfum og nærliggjandi sveitarfélög- um. Íbúðirnar eru leigðar til almenn- ings og skiluðu GAMMA tæplega 840 milljóna króna hagnaði í fyrra. ir, sagði meðal annars um þessar fjárfestingar GAMMA í íbúðarhús- næði árið 2013, að hún hefði áhyggj- ur af því að innkoma fjárfestingarfé- lagsins á húsnæðismarkaðinn gæti ýtt fasteignaverði upp. Þá hafði einnig komið fram að GAMMA rukkaði leigu sem var hærri en gekk og gerðist á þeim tíma: „Við höfum verulegar áhyggjur af þessu, við fasteignasalar, að þetta gæti haft veruleg áhrif á verðmyndun á markaði. Og hvernig mun almenn- ingi ganga að standa undir slíku leiguverði?.“ Frá miðbænum til úthverfa Þegar GAMMA hóf uppkaup á íbúð- um í miðbæ Reykjavíkur árið 2012 má segja að það hafi verið fyrsti stóri fjárfestirinn sem áttaði sig á því að mikil hagnaðartækifæri gætu legið í því að kaupa upp íbúðarhús- næði og leigja út til almennings. Í viðtali við DV í mars árið 2013 sagði Gísli Hauksson, forstjóri og stofnandi GAMMA, að hann teldi fasteignamarkaðinn á Íslandi vera undirverðlagðan. GAMMA hafði þá mánuðina á undan keypt upp um 140 íbúðir fyrir fjóra milljarða króna og vöktu þessi kaup talsverða athygli á þeim tíma. „Við hefðum ekki farið út í þetta nema af því við töldum að markaðurinn væri hagstætt verðlagður. Ég hef mikla trúa á fasteignamarkaðnum. En þetta er samt aðallega hugsað sem öflugt leigufélag. Við höfum verið á þeirri skoðun að leiguverð hafi ver- ið lágt á Íslandi þannig að það hefur ekki borgað sig fyrir eigendur íbúða að leigja þær út. Leiguverð hefur verið að þokast upp. Sjóðurinn er að horfa allavega fimm ár fram í tímann. Ég hef mikla trú á miðbæn- um, ég er mikill miðbæjar maður, og við töldum að það væri gott að fókus era á hann.“ Síðan þetta viðtal var tekið hef- ur GAMMA farið frá því að stýra fjárfestingum fyrir um 25 millj- arða króna og upp í meira en 100 milljarða króna og félagið hefur fyrir löngu byrjað að kaupa upp íbúðir í öðrum hverfum Reykjavík- ur en miðbænum, meðal annars í Breiðholtinu, eftir því sem íbúða- verð miðsvæðis hefur hækkað til muna. Hins vegar hægðist talsvert á fjárfestingum GAMMA í íbúðarhús- næði árið 2015 og keypti fyrirtækið mest af þeim íbúðum sem fyrirtæk- ið á í dag á árunum 2013 og 2014. Við skoðun á íbúðaeign Eclipse fjárfestinga slhf. og Centrum fjár- festigna slhf. er til að mynda ekki ein íbúð sem keypt hefur verið í ár en fyrirtækið keypti auðvitað 450 íbúðir á einu bretti af Íbúðalána- sjóði þegar leigufélagið Klettur var keypt. Markmiðið að skrá félagið Gísli segir í skriflegu svari til Frétta- tímans að hann sé ennþá sömu skoðunar um leigumarkaðinn á Ís- landi og að markmiðið sé að skrá Almenna leigufélagið á markað árið 2018. „Ég er einmitt enn sömu skoðunar; við höfum tekið þátt í því að byggja upp öflugan leigumarkað á Íslandi með langtímaleigusamn- ingum (allt að 3 ár, ætlum að lengja til 5 ára á næsta ári), sólarhrings- þjónustu fyrir leigjendur og öðrum nýjungum sem við höfum innleitt. Planið frá 2013 er enn í gildi og það er að skrá Almenna leigufélagið í kauphöllina árið 2018.“ Fleiri leigufélög Eftir að GAMMA byrjaði að fjárfesta í íbúðahúsnæði byrjuðu fleiri fjár- festar að gera slíkt hið sama. Þannig byrjaði fyrirtækið Heimavellir að kaupa upp íbúðir árið 2013 og er það i dag orðið eitt stærsta leigu- félag á Íslandi með tæplega 2000 íbúðir eftir að hafa eignast rúmlega 700 íbúðir á varnarliðssvæðinu á Suðurnesjum fyrir skömmu. Áður höfðu Heimavellir eignast rúmlega 100 íbúðir á svæðinu þegar félag- ið Tjarnarverk var keypt. Stærstu eigendur Heimavalla eru útgerðar- félagið Stálskip, tryggingafélagið Sjóvá Almennar og fjölmargir líf- eyrissjóðir. Stærri leigufélögin gleypa því þau smærri en þetta hefur bæði gerst í tilfelli fyrirtækja GAMMA sem og í tilfelli Heimavalla. Minni félög, eins og BK Eignir, eru svo einnig á þess- um leigumarkaði. Samhliða því sem íbúðaverð hef- ur farið hækkandi á höfuðborgar- svæðinu og í nærliggjandi sveitar- félögum – vísitala íbúðaverðs hefur hækkað um 13,6 prósent síðustu tólf mánuðina – þá hefur leiguverð líka hækkað til muna síðastliðin ár. Þannig sagði Hagstofan frá því í fyrra að leiguverð hefði hækkað um 40 prósent frá árinu 2011 og í lok nóvember sagði Þjóðskrá frá því að á síðustu 12 mánuðum hefði vísitala leiguverðs hækkað um 8,5 prósent. Þessi þróun þjónar hagsmun- um fyrirtækja eins og GAMMA og Heimavalla sem byrjuðu að kaupa íbúðarhúsnæði fyrir þessa miklu hækkun og því hefur verðmæti fasteignanna sem þessi félög keypt hækkað sem og leiguverðið sem fé- lögin geta innheimt hjá leigjendum fasteignanna. „Óheillavænleg þróun“ Áðurnefnd Ingibjörg Þórðardótt- ir, fasteignasali og fyrrverandi for- maður Félags fasteignasala, segir að hún telji ennþá að sú þróun að fjár- festar eigi svo mikið af íbúðarhús- næði sé óheillavænleg. Fleiri fjöl- skyldur þurfa fyrir vikið að leigja íbúðir en eiga húsnæðið sem þær búa í þar sem það þjónar hagsmun- um leigufélaganna að fólki sé ýtt út á leigumarkaðinn vegna hærra fasteignaverðs og baráttu við fjár- sterkari aðila um íbúðir. „Þeir eru búnir að sprengja upp verðið,“ seg- ir Ingibjörg um leigufélögin. „Hvað heldurðu að þeir gætu grætt ef þeir myndu selja íbúðirnar núna?,“ spyr Ingibjörg og vísar til þessa að þegar GAMMA byrjaði að kaupa íbúðirn- ar var fasteignaverð miklu lægra en það er í dag. Fasteignaverð á höfuð- borgarsvæðinu hefur hækkað um rúmlega helming frá árinu 2011. „Það sem hefur gerst á síðustu árum er að fleiri barnafjölskyldur eru komnar út á leigumarkaðinn eftir að þessi þróun hófst. Þessi tala var um 5 prósent en er nú komin upp í 15 prósent. Þetta er 10 pró- sent aukning hjá foreldrum barna á grunnskólaaldri. Það hefur gerst í allt of miklum mæli að fólk sem lenti í erfiðleikum missti húsnæði sitt og þessar eignir eru að hluta til komnar í eigu þessara leigufélaga. Það er bara orðið mjög erfitt að fóta sig á fasteignamarkaði,“ segir Ingi- björg. Ársreikningar hluthafa Almenna leigufélagsins ehf. árið 2015 Hagnaður Eignir Skuldir Eigið fé Eclipse fjárfestinga slhf. 424.108 4.727.439 3.128.048 1.599.390 Centrum fjárfestingar slhf. 356.437 4.736.872 3.211.648 1.525.208 Upphaf fasteignafélag slhf. 56.626 10.067.004 7.208.024 261.169 Samtals 837.171 19.531.315 13.547.720 3.385.767 „Það sem hefur gerst á síðustu árum er að fleiri barnafjölskyldur eru komnar út á leigumark- aðinn eftir að þessi þróun hófst. Það hefur gerst í allt of miklum mæli að fólk sem lenti í erfiðleik- um missti húsnæði sitt og þessar eignir eru að hluta til komnar í eigu þessara leigufélaga. Það er bara orðið mjög erfitt að fóta sig á fasteignamarkaði,“ Ingbjörg Þórðardóttir fasteignasali 13.999 kr. TENERIFE f rá T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - j a n ú a r 2 0 1 7 9.999 kr. KANARÍ f rá T í m a b i l : fe b rú a r - m a rs 2 0 1 7 12.999 kr. ALICANTE f rá T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - j a n ú a r 2 0 1 7 19.999 kr. LOS ANGELES f rá T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7 19.999 kr. SAN FRANCISCO f rá T í m a b i l : d e s e m b e r 2 0 1 6 - m a í 2 0 1 7 7.999 kr. BARCELONA f rá T í m a b i l : j a n ú a r - fe b rú a r 2 0 1 7 Sólskin í vetur! *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.