Fréttatíminn - 02.12.2016, Síða 40
Gott að fara í bíó
Fátt er betra í byrjun desember en að
fara í bíó á eina góða jólamynd. Bíó
Paradís sýnir jólamyndina víðfrægu
Love Actually í kvöld þar sem
verður sannkallað jólabíópartí.
Barinn er opinn og alls konar
gúmmelaði í sjoppunni. Verður
ekki jólalegra en þetta.
Gott að knúsa
Þegar kalt er úti og dimmt
verðum við stundum dá-
lítið hnuggin. Þá er gott að
hugsa um þá sem manni
þykir vænt um og sýna
þeim hlýju. Gefa þeim knús
því þá líður manni svo vel.
Svo knúsa Íslendingar svo
lítið. Bætum úr því.
Gott að pæla í jólagjöfum
Jú, sannarlega er nægur tími til jóla en
þó er ágætt að huga að jólagjöfum. Hvað
langar þig að gefa? Föndra eitthvað fal-
legt í gjöf handa vini? Því hugurinn gildir.
Eða kaupa góða bók sem þú veist að slær
í gegn? Drífðu þetta bara
af. Vertu snemma í því í ár
og slepptu þessu óþarfa
stressi.
GOTT
UM
HELGINA
Tölum um …
smákökur
Sigrún K. Valsdóttir
Ég er sérlega
hrifin af
smákökum og
umstanginu
í kringum
þær. Jólahefð
ir breyttu
st talsvert hjá
mér þegar ég
varð grænmetisæta fyrir 12 árum,
en smákökurnar eru alltaf eins.
Snemma í desember bökum við
alltaf nokkrar sortir, drekkum jólaöl
og hlustum á jólatónlist. Nú erum
við hins vegar búsett erlendis svo
það verður ekki jólaöl að þessu
sinni, þó smákökurnar verði að
sjálfsögðu á sínum stað.
Erna Agnes Sigur geirs
dóttir
Smákökur eru
fyrir mér, ein
af táknmynd
um jólanna
og barnæsk
unnar. Ég fæ
bara jólasmá
kökur hjá afa mínum
og ömmu sem eiga alltaf nokkra
dunka fulla af þeim inn í búri á
þessum árstíma. Í hvert skipti sem
ég kem í heimsókn eru allir dunk
arnir sóttir og svo tekur við um það
bil tveggja klukkutíma smákökuát
og kaffispjall. Það er ekkert nota
legra! Smákökurnar eru svo sannar
lega hinn fullkomni munnbiti!
Anna Jia
Jólasmákökur eru ör
ugglega eitt það
besta við jólin.
Ég meina, það
að allir í kring
um mann fari
að töfra fram
nýbakaðar
súkkulaðibita
kökur, dúnmjúka
lakkrítoppa, sörur og döðlugott til
að bjóða þér með jólakaffinu sem
gerir lífið bara sætara á alla máta.
Það er líka bara eitthvað svo hátíð
legt við það að setjast niður með
ungum sem öldnum og skreyta pip
arkökur eða skera út einhver meist
araverk á laufabrauðið.