Fréttablaðið - 28.02.2017, Qupperneq 10
Það er ekki nema
helmingurinn sem
kýs að starfa sem kennarar
og langstærstur
hluti þeirra
fór í gegnum
þriggja ára
nám.
Ólafur Loftsson, for-
maður Félags grunnskólakennara
Það kemur bersýni-
lega í ljós að sveitar-
félög greiða almennt sér-
fræðingum lægri laun en
ríkið.
Haraldur F. Gíslason,
formaður Félags
leikskólakennara
Menntun Um þriðjungur stöðu-
gilda við kennslu, umönnun og
uppeldi barna í leikskólum er nú
skipaður leikskólakennurum en lög
kveða á um að þeir skuli að lágmarki
vera tveir af hverjum þremur. Þetta
kemur fram í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar þar sem áhyggjum er lýst
af yfirvofandi kennaraskorti.
Í skýrslunni kemur fram að í
desember 2015 hafi 1.758 mennt-
aðir leikskólakennarar starfað í leik-
skólum en 2.992 leyfisbréf hafi verið
gefin út til þeirra frá árinu 2009.
Haraldur F. Gíslason, formaður
Félags leikskólakennara, segir áhuga-
vert að fá upplýsingar um það hve
stórt hlutfall menntaðra leikskóla-
kennara starfi ekki við fag sitt.
Haraldur segir skref hafa verið
stigin fram á við í kjarasamningum.
Hins vegar telji fólk í samfélaginu
að laun leikskólakennara séu í raun
lægri en þau eru vegna þess að á
leikskólum starfi fjölbreyttur hópur
fólks og sumir þeirra séu ómennt-
aðir starfsmenn. Hann bendir á að
byrjunarlaun leikskólakennara séu
núna um 470 þúsund krónur og um
490 þúsund ef viðkomandi sinnir
deildarstjórn.
Haraldur segir hins vegar að stíga
þurfi fleiri skref til að hækka laun
kennara. „Það kemur bersýnilega í
ljós að sveitarfélög greiða almennt
sérfræðingum lægri laun en ríkið,“
segir Haraldur. Sveitarfélögin í heild
þurfi að skoða það sín megin hvers
vegna svo er. Hann bendir á að laun
sérfræðinga á opinberum markaði
séu svo aftur lægri en laun sérfræð-
inga á almennum markaði. Nú þegar
búið er að breyta lífeyrissjóðskerfinu
og jafna muninn á lífeyrisréttindum
opinberra starfsmanna og starfs-
manna á almennum markaði þurfi
líka að jafna launin.
Ríkisendurskoðun segir í áður-
nefndri skýrslu að kennaraskortur-
inn verði ekki eingöngu leystur með
fjölgun kennaranema. Mikilvægt
sé að laða menntaða kennara, ekki
síst hina yngri, til starfa við skólana
og búa þannig um hnútana að þeir
endist í starfi. Þar með nýtist sú fjár-
festing sem felst í menntun þeirra
væntanlega best. „Sú fjárfesting
jókst verulega þegar kennaranám
var lengt úr þremur árum í fimm
árið 2009 en vísbendingar eru um
að sú breyting hafi dregið úr aðsókn
í námið,“ segir í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar.
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara, segir lengra
nám ekki vera stærsta vandamálið.
„Það eru um það bil tíu þúsund
kennarar með grunnskólakennara-
réttindi. Það er ekki nema helming-
urinn sem kýs að starfa sem kenn-
arar og langstærstur hluti þeirra fór
í gegnum þriggja ára nám. Þannig
að vandinn er ekki fimm ára námið.
Það er alveg ljóst.“
jonhakon@frettabladid.is
2 8 . f e b r ú a r 2 0 1 7 Þ r I Ð J u D a G u r10 f r é t t I r ∙ f r é t t a b L a Ð I Ð
Frá öðru sjónarhorni
Ársfundur
Nýsköpunarmiðstöð Íslands 10 ára
Fimmtudaginn 2. mars 2017
Hilton Reykjavík Nordica hótel
Dagskrá
8.00 Léttur morgunverður
8.30 Fundarsetning
Ávarp ráðherra Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra
Ávarp forstjóra Próf. Þorsteinn I. Sigfússon
Dularfull afdrif plasts í ha Guðjón Atli Auðunsson
Frá hroða til hráefnis Sunna Wallevik
Frá hugmynd til hagnýtingar - saga sprota Kristján Leósson
Umhversvæn áburðarframleiðsla Helga Dögg Flosadóttir
Sítengdir ferðaþjónar Sigríður Kristjánsdóttir
Lifandi leiðsögn um land allt Sigurður Steingrímsson
Þetta „eitthvað annað“ ... Sigríður Ingvarsdóttir
Íslenskir frumkvöðlar í Silicon Valley Davíð Örn Símonarson
Skynjað & skimað Torfi Þórhallsson
Rannsóknir mega ekki mygla Ólafur H. Wallevik
10.30 Ársfundi lokið
Fundarstjóri: Jón Ólafsson, ásamt Sigríði Thorlacius
Aðgangur ókeypis
Skráning á www.nmi.is
Við fjölgum
hagkvæmum
íbúðum
ÍBÚÐIR Á ÁRI
250
ÍBÚÐIR Í ÞRÓUN
1.300
ÍBÚÐIR SELDAR
300
519 3300 | www.upphaf.is
Garðastræti 37, 101 Reykjavík
Upphaf fasteignafélag er eitt umsvifa
mesta fyrirtæki í uppbyggingu íbúðar
húsnæðis á Íslandi. Á næstu fimm árum
verða þróaðar og byggðar yfir 1.300
nýjar íbúðir sem ætlaðar eru litlum og
meðalstórum fjölskyldum.
Markmið Upphafs er að byggja yfir 250
hag kvæmar íbúðir á ári. Við viljum auka
framboð á íbúðamarkaði.
Upphaf er í eigu Novus, fag fjár festa sjóðs í
rekstri hjá GAMMA Capital Management.
Alvarleg vísbending
um kennaraskort
Ríkisendurskoðun lýsir
áhyggjum af yfirvofandi
kennaraskorti. Hundruð
kennara hafa leitað í
önnur störf. Lenging
kennaranáms í fimm ár
dró úr aðsókn í námið.
2
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
5
5
-E
9
2
8
1
C
5
5
-E
7
E
C
1
C
5
5
-E
6
B
0
1
C
5
5
-E
5
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
8
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K