Fréttablaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 37
Rice Krispies-kökur eru ómissandi
á kökuborðið enda löngu orðn-
ar klassískar. Þær eru sívinsæl-
ar meðal barna þó fullorðnir laumi
sér í þær líka. Kökurnar passa alltaf
inn í þemað enda hægt að velja liti
á bollakökuformin eftir því sem
við á.
Þessir fallegu, klístruðu,
stökku og ilmandi súkkulaðimol-
ar eru handhægir og þeirra stærsti
kostur er vissulega hversu auð-
velt er að búa þá til. Hér fylgir upp-
skrift að sígildum Rice Krispies-
kökum (20-25 stk.) sem fengin er
af vefsíðunni eldhusperlur.is
75 g ósaltað smjör
150 g suðusúkkulaði
6 msk. síróp
1/4 tsk. gott sjávarsalt
5 bollar Rice Krispies
Setjið allt í pott nema Rice Kri-
spies. Bræðið saman við vægan
hita. Takið af hitanum, bætið korn-
inu saman við, hrærið vel þannig að
súkkulaðiblandan þekji allt korn-
ið vel. Setjið í lítil form og kælið.
Þessa uppskrift má líka nota til að
gera t.d kökubotn, þá er blandan
sett í kökumót eða fat, svo er hægt
að þekja hana með bananasneið-
um, þeyttum rjóma og karamellu-
sósu.
Skemmtiatriði í fermingum geta
verið af ýmsum toga. Gaman er
ef fermingarbarnið bregður á leik,
leikur á hljóðfæri, les ljóð eða sögu
eða sýnir einhverja hæfileika eða
tómstundafærni. Því fer þó fjarri
að öll börn séu tilbúin til að stíga á
svið með þeim hætti og þá er ekki
síður skemmtilegt að huga að ein-
hverju öðru. Bæði geta þeir sem
að barninu standa flutt ræður eða
tónlist því til heiðurs en svo má
líka skipuleggja leiki þar sem þeir
sem sitja saman á borði þurfa að
leysa saman þrautir eða gátur,
útbúa sönghefti og syngja saman
og margt fleira. Ein hugmynd er að
gera myndband þar sem velunnar-
ar senda fermingarbarninu góðar
óskir eða rifja upp skemmtileg
atvik og svo getur fermingarbarn-
ið líka gert myndband sjálft þar
sem það sýnir listir sínar án þess
að þurfa að fara á taugum frammi
fyrir fullum sal af gestum.
Gleðin við völd
Klikka aldrei
Tvíburabræðurnir og kransakakan sem þeir bjuggu til sjálfir.
Gaman er þegar fermingarbörnin geta
tekið þátt í undirbúningnum. Kristín
Sigurðardóttir, slysa- og bráðalækn-
ir, skellti sér með tvíburasyni sína á
köku námskeið áður en þeir fermdust
og þeir gerðu sína eigin kransaköku
fyrir fermingarveisluna.
„Þegar tvíburasynir mínir, Stef-
án Árni og Tryggvi Snær Geirssynir,
fermdust fyrir nokkrum árum fórum
við saman á kransakökunámskeið.
Þetta eru sérstök námskeið fyrir for-
eldra og börn sem eru að fara að ferm-
ast. Ég viðurkenni að þeir voru ekki
mjög áhugasamir áður en við fórum á
námskeiðið en svo nutum við þess öll,“
rifjar Kristín upp. „Þetta var notaleg
samvera og gaman að gera eitthvað
nýtt. Þeir gerðu kransakökuna sína
sjálfir og að auki keyptum við meira
marsipan og þeir gerðu svo dropakök-
ur sem voru einnig bornar fram í veisl-
unni. Þetta var eftirminnilegt fyrir
okkur öll,“ segir Kristín.
Kátt á KransaKöKunámsKeiði
-
Kynningarblað FerminGar
28. febrúar 2017 15
2
8
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
5
6
-1
5
9
8
1
C
5
6
-1
4
5
C
1
C
5
6
-1
3
2
0
1
C
5
6
-1
1
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
8
s
_
2
7
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K