Fréttablaðið - 07.03.2017, Síða 2
Elleman-Jensen í Hörpu
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkisráðherra Danmerkur árin 1982 til 1993, ræddi í gær þróun alþjóðamála á Eystrasaltssvæðinu á afmælismálþingi
Eystrasaltsráðsins í Hörpu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra flutti einnig ávarp. Í gær voru liðin 25 ár frá stofnun Eystrasaltsráðsins.
Aðild að því eiga Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Pólland, Rússland og Þýskaland auk framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Fréttablaðið/Eyþór
Veður
Austan- og suðaustanátt og skúrir eða
él í dag, en úrkomulítið á Norðurlandi.
Vaxandi norðaustanátt með slyddu á
Vestfjörðum um kvöldið. sjá síðu 18
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
Heilbrigðismál Geðsvið Land-
spítalans hefur ekki tök á að ráða
tímabundið í stöður sálfræðinga
þegar langtímaveikindi koma upp.
Því geta einstaka deildir spítalans
verið án sálfræðinga svo mánuðum
skiptir. Nýlega kom þess staða upp
á deild 33C á Hringbraut.
„Þetta voru einhverjir mánuðir
og það er óheppilegt,“ segir María
Einisdóttir, framkvæmdastjóri geð-
sviðs Landspítalans. Hún segir að ef
sálfræðingur fer í barnsburðarleyfi
eða launalaust leyfi þá beri spítalinn
ekki kostnað af því og þá sé hægt að
ráða tímabundið í staðinn. Í veik-
indum sé hins vegar ekki hægt að
ráða fólk tímabundið.
María segir það þó sannarlega
vera uppleggið á geðsviðinu að vera
með sálfræðing starfandi á öllum
deildum og spítalinn vildi gjarnan
hafa fleiri sálfræðinga starfandi.
„Við erum með um 50 stöðugildi á
öllum spítalanum, bæði vefrænu
deildunum og geðdeildunum.
Gunnar Hrafn Jónsson alþingis-
maður, sem var frá vinnu í byrjun
árs vegna veikinda, gagnrýnir í
Fréttablaðinu á laugardaginn að
geðsvið Landspítalans veiti enga
bráðaþjónustu á kvöldin og um
helgar.
„Fólk er því vinsamlegast beðið
um að missa ekki vitið utan skrif-
stofutíma heldur harka af sér. Það
er ólíðandi mannréttindabrot
sem yrði ekki liðið ef um nokkurn
annan sjúkdóm væri að ræða, til
dæmis hjartasjúkdóm,“ segir Gunn-
ar Hrafn.
María bendir á að bráðaþjón-
ustan hafi verið opnuð upp úr alda-
mótum. Engin bráðaþjónusta hafi
verið í boði á geðsviði fyrir þann
tíma. „Við vorum með rýmri opnun
en eftir hrun fórum við í sparnaðar-
pælingar með því að þrengja opn-
unartíma,“ segir María.
Nú séu geðdeildirnar með opna
bráðaþjónustu frá 12 til 19 á virkum
dögum og 12 til 17 um helgar. „Þetta
gerðum við eftir að við höfðum
skoðað hvenær flestar komur eru
og við sáum að 90-95 prósent af
þunganum er á þessum tíma,“ segir
María.
Þegar lokað er á bráðaþjónustu á
Hringbraut geta sjúklingar leitað á
bráðamóttökuna í Fossvogi. Vakt-
hafandi geðlæknir fer þá á bráða-
móttökuna í Fossvogi og veitir
þjónustuna þar.
„Þannig að það er sólarhrings-
þjónusta,“ segir María.
jonhakon@frettabladid.is
Geðsvið án sálfræðinga
ef starfandi verða veikir
Geðsvið Landspítalans getur ekki ráðið sálfræðinga í veikindaforföllum vegna
fjárskorts. Þó er gert ráð fyrir starfandi sálfræðingi á hverri deild. Bráðaþjónusta
enn skert eftir hrunið. Ekki er hentugt að missa vitið utan skrifstofutíma.
Geðdeild landspítalans. Veikist sálfræðingur á geðdeild landspítalans er ekki
hægt að ráða inn tímabundið sálfræðing í stað hans. Fréttablaðið/Eyþór
DÓmsmál Sverrir Agnarsson, fyrr-
verandi formaður Félags múslima
á Íslandi, hefur verið dæmdur í tólf
mánaða fangelsi, skilorðsbundið til
tveggja ára, fyrir skattalagabrot.
Sverrir á að greiða 62,5 milljónir
króna í sekt til ríkissjóðs. Tíu mán-
aða fangelsi kemur í stað sektarinnar
verði hún ekki greidd innan fjögurra
vikna.
Sverrir játaði brot sín skýlaust fyrir
dómi. Honum var gert að sök að hafa
ekki staðið skil á skattframtölum
einkahlutafélags síns gjaldárin 2012
og 2013, skilað efnislega rangri virð-
isaukaskattskýrslu fyrir mars-apríl
2011 og ekki staðið skil á skýrslum
frá þeim tíma til ársloka 2013.
Þá var Sverrir sakfelldur fyrir
meiriháttar skattalagabrot með því
að láta undir höfuð leggjast að færa
lögboðið bókhald félagsins fyrir
rekstrarárin 2011-2013. Þá skilaði
hann efnislega röngu skattfram-
tali gjaldárið 2012 og stóð eigi skil
á framtölum fyrir gjaldárin 2013 og
2014.
Vantaldar tekjur á tímabilinu voru
alls tæplega 30 milljónir króna.
Jóhann Albert Kristbjörnsson,
verjandi Sverris, segir að það komi
til greina að áfrýja dómnum í von
um að refsingin verði milduð. Engin
ákvörðun hafi þó verið tekin um
slíkt. – jóe
Skilorð og
sekt fyrir
skattsvik
Sverrir agnarsson var formaður Félags
múslima til 2015. Fréttablaðið/StEFán
FANgelsismál Sjö manns hafa látist
í fangelsum landsins frá árinu 2001,
þar af fimm eftir sjálfsvíg. Formaður
Afstöðu, félags fanga, segir þetta við-
búið meðan sálgæsla er takmörkuð.
Fangi í Akureyrarfangelsi fannst
meðvitundarlaus í klefa sínum í gær
eftir tilraun til sjálfsvígs. Tilraunin
var mikið sjokk fyrir starfsfólk þar.
„Á meðan það eru engir sálfræð-
ingar sem sinna föngum þá endar
þetta alltaf svona. Á Akureyri fá
menn til dæmis engin sálfræðivið-
töl, aldrei,“ segir Guðmundur Ingi
Þóroddsson formaður Afstöðu.
„Það þarf að laga hlutina og það
þarf að fá þá sálfræðinga sem vinna
hjá stofnuninni á gólfið,“ segir Guð-
mundur sem tekur þó fram að starfs-
fólkið á Akureyri sé einstaklega hæft
og leggi sig fram í samskiptum við
fanga.
„Þannig að ég átti frekar von á
þessu annars staðar,“ segir Guð-
mundur Ingi. – jóe
Fimm sjálfsvíg
fanga frá 2001
Við vorum með
rýmri opnun en eftir
hrun fórum við í sparnaðar-
pælingar með því að þrengja
opnunartím.
María Einisdóttir,
framkvæmdastjóri
Geðsviðs Land-
spítalans
50
stöðugildi sálfræðinga eru á
Landspítalanum í heild.
7 . m A r s 2 0 1 7 Þ r i ð j u D A g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t A b l A ð i ð
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
3
-E
8
8
C
1
C
6
3
-E
7
5
0
1
C
6
3
-E
6
1
4
1
C
6
3
-E
4
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K