Fréttablaðið - 07.03.2017, Síða 10
ÁRSFUNDUR 2017
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður
haldinn fimmtudaginn 23. mars 2017 á
Icelandair Hótel Reykjavík Natura kl. 17:15.
Dagskrá
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur 2016 og tryggingafræðileg
athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs
3. Kynning á fjárfestingarstefnu
4. Tillögur um breytingar á samþykktum
sjóðsins
5. Kosning stjórnar
6. Kosning endurskoðenda eða
endurskoðunarfélags
7. Ákvörðun um laun stjórnar
8. Önnur mál
• Hæsta raunávöxtun 2016: 3,1%
• Heildareignir: 185 milljarðar
• 42 þúsund sjóðfélagar
• 1/3 lágmarksiðgjalds í séreign
• Sjö ávöxtunarleiðir í boði
• Valinn besti opni lífeyrissjóðurinn í Evrópu *
Vakin er athygli á því að framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund
sjóðsins. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þann 16. mars 2017 kl. 24:00. Hægt er að
senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.
Ársreikningur sjóðsins, nánari upplýsingar um ársfundinn og tillögur um breytingar á
samþykktum eru á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins
*Fagtímaritið IPE valdi Almenna besta lífeyrissjóð í Evrópu á almennum markaði
Vogur er þungamiðjan í starfi SÁÁ í meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga í íslenska heilbrigðiskerfinu. Fréttablaðið/Heiða
heilbrigðismál Af þeim Íslend-
ingum, á aldrinum 15 til 64 ára, sem
dáið hafa fyrir aldur fram á síðustu
fimmtán árum hafa tæplega 30 pró-
sent leitað sér lækninga á Sjúkrahús-
inu Vogi á einhverjum tímapunkti.
Í sumum aldurshópum er hlutfallið
mun hærra, og allt upp í 40 prósent
hjá aldurshópnum 25 til 34 ára.
Þetta kemur fram í nýútgefnu
ársriti meðferðarsviðs SÁÁ 2016.
Ein af grunnniðurstöðum höf-
undarins, Þórarins Tyrfingssonar,
forstjóra Sjúkrahússins Vogs, er
að ef litið er til þess hversu margir
greinast áfengis- og vímuefnasjúkir,
og hversu alvarlegur og afdrifaríkur
sjúkdómurinn er, megi fullyrða að
hann sé sá alvarlegasti sem Íslend-
ingar glíma við um þessar mundir.
Þórarinn segir að í gagnagrunni
SÁÁ séu um 18.000 lifandi ein-
staklingar á aldrinum 15 til 65 ára
en á þessu aldursbili eru 200.000
manns. Tölurnar sýni að 10,4 pró-
sent núlifandi karla 15-64 ára og
4,6 prósent núlifandi kvenna á sama
aldri á Íslandi hafa farið í áfengis- og
vímuefnameðferð til SÁÁ. Þetta fólk
er mjög veikt, því samkvæmt nýrri
rannsókn uppfylltu um 95 prósent
sjúklinganna sem voru á Vogi árið
2015 sex eða fleiri viðmiðunarein-
kenni sem stuðst er við, og voru
því með sjúkdóminn á alvarlegasta
stigi.
Þórarinn segir það athyglisvert í
þessu samhengi, að bera saman það
fjármagn sem rennur til starfsins á
Vogi og heildarfjárframlög til heil-
brigðismála – en til reksturs á Vogi
renna um 500 milljónir frá ríkinu.
„Það fer nú ekki hjá því að á menn
renni tvær grímur, eins og sagt er,
þegar þeir sjá þessar tölur. Það hefur
ekki verið litið svo á að þessi hópur
okkar á Vogi sé forgangshópur í
þessu tilliti. Menn vilja frekar líta,
eins og eðlilegt er kannski, til ann-
arra hópa. En þetta eru virkilega slá-
andi tölur,“ segir Þórarinn sem skrif-
ar á einum stað að mjög áríðandi sé
að „beina miklu meiri fjármunum í
Sjúkrahúsið Vog. Það hlýtur að vera
eitt af meginmarkmiðum íslenskrar
heilbrigðisþjónustu að koma í veg
fyrir ótímabær dauðsföll fyrir 64
ára aldurinn og þá tekur þetta af öll
tvímæli um að meiri fjármunir eiga
að renna til Vogs.“
Tölurnar tala sínu máli. Af þeim
4.065 Íslendingum sem dóu á aldurs-
bilinu 15 til 64 ára á árunum 2001
til 2015 höfðu 1.225 dvalið á Vogi.
Þessar rauntölur sýna líka að úr
sjúklingahópi SÁÁ hafa frá 2000 til
2015 aldrei færri dáið ótímabærum
dauða en rúmlega 50 manns og flest
ár 60 til rúmlega 80 manns.
Við þetta má bæta, og er ekki að
finna innan tölfræði SÁÁ, að algeng-
asta dánarorsök þeirra sem eru yngri
en 25 ára er áfengisneysla, beint eða
óbeint. Það unga fólk sem þannig
lætur lífið er þó fráleitt allt áfengis-
og vímuefnasjúklingar. Sama er að
segja um aðra aldurshópa þar sem
ástæða ótímabærs dauðsfalls tengist
áfengis- eða vímuefnaneyslu; hóps
sem hefur þó aldrei leitað sér lækn-
inga á Vogi.
þegar þessi dauðsföll eru talin
saman verður ekkert fullyrt um
dánarmein, enda hefur það ekki
verið rannsakað hérlendis. Undir-
stofnanir Sameinuðu þjóðanna og
Evrópubandalagsins sem taka slíkar
tölur saman mæla með því að þegar
þessi dauðsföll eru talin saman skuli
taka saman dauðsföll sem verða
vegna yfirskammta vímuefna, slysa
og sjálfsvíga sem rekja megi til vímu-
efnaneyslu þess sem deyr. Einnig
vilja þessar stofnanir að talin séu
dauðsföll af völdum sýkinga eða lík-
amlegra fylgikvilla sem sannanlega
urðu vegna vímuefnaneyslunnar.
Hér á Íslandi hefur ekki verið
reynt að taka þessar tölur saman
og oftast látið nægja að telja þá sem
deyja vegna yfirskammta af áfengi
eða lyfjum. svavar@frettabladid.is
Sláandi margir deyja fyrir aldur fram
Nær 30 prósent Íslendinga sem dáið hafa fyrir gamals aldur hafa dvalið á Sjúkrahúsinu Vogi. Hlutfallið er enn hærra í sumum aldurs-
hópum – eða allt að 40 prósent. Fjárframlög ríkisins eru í engu samhengi við hversu stór hópur er alvarlega veikur og þarf mikla hjálp.
Komur á Vog 1977-2015
73.398
20.280 konur 28,5%
50.959 karlar 71,5%
einstaklingar 1977-2015
24.109
7.085 konur 29,4%
17.024 karlar 70,6%
raufarhöfn Fiskverkun Hólmsteins
Helgasonar hefur sagt upp öllum
tíu starfsmönnum sínum á Raufar-
höfn. Fyrirtækið fékk ekki sértækan
byggðakvóta. GPG fiskverkun á
Húsavík fékk úthlutað öllum þeim
kvóta á stjórnarfundi Byggðastofn-
unar.
„Það logar allt og fólk mun flytja
í burtu,“ segir Guðrún Rannveig
Björnsdóttir, verslunarmaður á
Raufarhöfn.
Fyrirtækið Hólmsteinn Helgason
ehf. hefur starfrækt saltfiskverkun á
Raufarhöfn í nokkurn tíma núna og
hafa forsvarsmenn þess einnig keypt
eina fjölbýlishúsið á Raufahöfn auk
hótels á staðnum og ætlað sér mikla
uppbyggingu. Þau uppbyggingar-
áform nú eru í hættu.
Hólmsteinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Hólmsteins Helga-
sonar ehf., vildi ekki ræða við blaða-
mann í gær en staðfesti að öllum
starfsmönnum hefði verið sagt upp
og að ákvörðun Byggðastofnunar um
að veita þeim ekki sértækan byggða-
kvóta hafi svo sannarlega ekki hjálp-
að fyrirtækinu.
„Á stjórnarfundi Byggðastofnunar
var ákveðið að ganga til samninga
við GPG fiskverkun um að veiða
þann sértæka byggðakvóta sem við
höfum til skiptanna á Raufarhöfn,“
segir Sigurður Árnason, sérfræðingur
Byggðastofnunar.
„Miðað við þær forsendur sem
voru í umsóknum aðila þá var tekin
ákvörðun um að semja við GPG. Við
reyndum, í samvinnu við atvinnu-
þróunarfélag Þingeyinga að fá menn
til að vinna saman en það gekk ekki
upp. Þá var bara komið að því að taka
ákvörðun og hún er þessi.“
Kristján Þór Magnússon, sveitar-
stjóri Norðurþings, segir það mjög
slæmt að tíu störf glatist í svo litlu
plássi eins og Raufarhöfn er.
„Menn hafa verið að leita leiða
til að fjölga atvinnutækifærum og
sannarlega var þessi sértæki byggða-
kvóti liður í því að reyna að styrkja
atvinnulífið,“ segir Kristján Þór. „Ef
þessi tíu störf finnast ekki annars
staðar er það mjög slæmt.“
Raufarhöfn hefur verið skilgreind
sem brothætt byggð og hafa margvís-
legar aðgerðir stjórnvalda beinst að
því að halda sjávarþorpinu í byggð.
Staðan er því mjög erfið nú þar sem
tíu hefur verið sagt upp á einu bretti.
189 einstaklingar voru með lögheim-
ili á Raufarhöfn í byrjun árs 2016. – sa
Tíu sagt upp á Raufarhöfn
„Það logar allt,“ segir heimamaður um uppsagnir á raufarhöfn. Fréttablaðið/Pjetur
Ef þessi tíu störf
finnast ekki annars
staðar er það mjög slæmt.
Kristján Þór
Magnússon, sveitar-
stjóri Norðurþings.
7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r i ð J u D a g u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
3
-F
7
5
C
1
C
6
3
-F
6
2
0
1
C
6
3
-F
4
E
4
1
C
6
3
-F
3
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K