Fréttablaðið - 07.03.2017, Síða 16
Fólk er kynningarblað
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana. Í blaðinu er
einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Sigríður Inga Sigur4ðardóttir, sis@365.
is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351
Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357
sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439
| Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
sólveig
gísladóttir
solveig@365.is
baobabávöxturinn inniheldur eitt mesta magn af andoxunarefnum sem finnst
í ávöxtum í heiminum.
balsam kynnir: Baobabávöxturinn
er iðulega kallaður „the feel good
fruit“ og er einstaklega ríkur af
C- og B-vítamínum, kalsíum, kalí-
um, trefjum og inniheldur eitt
mesta magn af andoxunarefnum
sem finnst í ávöxtum í heimin-
um. Þessi náttúrulegu efni vinna
saman að því að veita meiri orku
og gleði, styrkja ónæmiskerf-
ið, bæta meltinguna, viðhalda og
endurnýja húðina.
Baobab frá Aduna er 100% líf-
rænt hráfæði og er glúteinlaust,
inniheldur engan viðbættan
sykur, hveiti eða mjólkurvörur.
Baobab hefur ljúffengt sítr-
usbragð sem minnir á sor-
bet. Duftinu má bæta út á
jógúrt og morgun korn eða
bæta því í baksturinn eða
blanda í drykki og smoothie.
Baobabduft er framleitt úr 100%
náttúrulegum hráefnum eftir ýtr-
ustu gæðakröfum í samvinnu við
framleiðendur frá afrískum þorp-
um. Fjölmörg afrísk þorp reiða
sig alfarið á ræktun og sölu á ba-
obabávextinum. Með því að kaupa
lífrænt (organic) baobab er því
verið að styðja við um 10 milljón-
ir afrískra heimila.
nánar á www.balsam.is
BaoBaBduft
úr ofurfæðu
rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri lyfjastofnunar, og jana rós reynisdóttir, verkefnastjóri lyfjaskila, með plakatið fyrir
átakið lyfjaskil – taktu til.
„Upphafið að þessu átaksverkefni
má rekja til þess að norska lyfja-
stofnunin stóð fyrir slíku átaki í
fyrra. Við fylgdumst vel með og
fórum að huga að því hvort setja
ætti af stað sambærilegt átak á
Íslandi,“ segir Rúna Hauksdótt-
ir Hvannberg, forstjóri Lyfja-
stofnunar. Skoðaðar voru niður-
stöður hjá Eitrunarmiðstöð Land-
spítalans sem sýndu að meirihluti
fyrir spurna til hennar var vegna
lyfjaeitrana, sér í lagi inntöku, og
fjórðungur varðaði börn yngri en
sex ára. „Í kjölfarið fórum við af
stað með spurningakönnun til að
spyrja hvernig fólk geymdi lyfin
sín og fargaði þeim,“ segir Rúna
en niðurstöður könnunarinnar
voru nokkuð sláandi.
„Þær sýndu að einungis tæp 7%
aðspurðra geyma lyf heim-
ilisins í læstum
lyfjaskáp. Þriðj-
ungur svarenda
geymir lyf heim-
ilisins ekki á ör-
uggan hátt, það er
í lyfjaskáp, læst-
um eða ólæstum.
Þá hendir þriðjung-
ur svarenda lyfjum í
rusl, vask eða klósett
og 13% losa sig aldr-
ei við lyf,“ upplýsir
Rúna og bætir við að
þó tæp 70% telji sig
vita hvernig heppileg-
ast sé að losa sig við
útrunnin eða ónotuð lyf
séu einungis 57,5% sem
nýti sér þann mögu-
leika.
Henda lyFjum í
rusl, vask eða
klósett
Rúna segir aldurshóp-
inn 55 ára og eldri, sem
er stærsti notendahópur
lyfja, einnig duglegastan að skila
lyfjum til eyðingar í apótek. „Rúm-
lega 70% þeirra segjast skila lyfj-
um til eyðingar í apótek. Sami
hópur hendir lyfjum síður í rusl,
vask eða klósett eða um 18% að-
spurðra,“ lýsir Rúna en rúmlega
helmingur fólks á aldrinum 25-34
ára hendir lyfjum í ruslið, vask eða
klósett. „Ef hópurinn sem segist
henda lyfjum í rusl, vask eða kló-
sett er greindur eftir fjölskyldu-
gerð kemur í ljós að stærsti hópur-
inn þar, eða tæp 40%, býr á heim-
ili þar sem býr fullorðið fólk ásamt
einu til tveimur börnum.“
lyFjaskil – taktu til
Niðurstöður spurningakönnunar-
innar urðu til þess að Lyfjastofn-
un ákvað að fara af stað með átak-
ið Lyfjaskil – taktu til, til að auka
vitundarvakningu hjá almenningi.
Átakið stendur yfir dagana 2.–10.
mars og í tengslum við það var
opnaður vefurinn
www.lyfjaskil.is þar sem meðal
annars verður hægt að lesa sér til
um ráð varðandi geymslu lyfja á
heimilum og hvernig á að bera sig
að við tiltekt í lyfjaskápnum.
Rúna segir nauðsynlegt að
fræða fólk um geymslu lyfja. „Al-
gengustu eitranirnar eru vegna
lausasölulyfja á borð við paraseta-
mól, sýklalyf, önnur veik verkjalyf
og nikótínlyf, en margir gera sér
ekki grein fyrir að þessi lyf geta
verið stórhættuleg ungum börn-
um,“ segir Rúna og nefnir einnig
rafretturnar en þeim fylgi nikó-
tínvökvi sem geti verið hættuleg-
ur ungum börnum.
nánar á lyfjaskil.is
Fáir geyma lyF rétt
Geymslu lyfja á íslenskum heimilum er víða ábótavant. Aðeins
tæp 7% geyma lyf í læstum lyfjaskáp, þriðjungur hendir lyfjum í
rusl, vask eða klósett Lyfjastofnun stendur fyrir átaksverkefninu
Lyfjaskil – taktu til, til að auka vitundarvakningu.
Þannig er best að
geyma lyF á Heimilum
l Veljið lyfjum, sem geyma á
í kæli, öruggan stað í kæli-
skápnum. Gætið að því að
hitastigið sé ekki of lágt og
lyfin mega alls ekki frjósa
l Geymið öll lyf, sem geyma má
við stofuhita, á einum stað þar
sem ekki er hætta á raka
l Geymið öll lyf þar sem börn
hvorki ná til né sjá
l Geymið lyf gjarnan í skáp sem
hægt er að læsa
l Forðist að sólarljós nái að
skína á lyf
l Takið reglulega til í lyfjum
heimilisins
Ef þessum ráðum er fylgt dregur
það úr hættu á að börn eða aðrir
taki inn lyf fyrir slysni. Jafnvel
litlir skammtar af algengum lyfj-
um geta valdið alvarlegri eitrun
hjá börnum og gæludýrum.
Ekki geyma lyf í náttborðs-
skúffunni, veskinu, eldhús-
skápnum eða á öðrum stað þar
sem auðvelt er að ná til þeirra
– nema það sé nauðsynlegt
af heilsufarsástæðum. Röng
geymsluskilyrði, t.d. of hátt
hitastig, geta með tímanum haft
áhrif á gæði lyfja.
Sogavegi við Réttarholtsveg
Opið kl. 9-18 virka daga | Sími 568 0990 | www.gardsapotek.is
Appótek: www.appotek.is
Vefverslun með lyf
Lyfseðlar Lyfjaverð ofl.
7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r2 F ó l k ∙ k y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G a r b l a Ð ∙ h e I l s a
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
4
-0
6
2
C
1
C
6
4
-0
4
F
0
1
C
6
4
-0
3
B
4
1
C
6
4
-0
2
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K