Fréttablaðið - 07.03.2017, Síða 24
Tengiltvinnbílum hefur fjölgað mjög á síðustu árum og Mercedes Benz er enginn eftir-bátur annarra bíla-framleiðenda þegar
kemur að tengiltvinnbílum, nema
síður sé. Einn þeirra er Mercedes
Benz C-Class 350e sem tekinn var
til kostanna á fremur óheppilegum
tíma þegar mesta snjó vetrarins og
síðustu áratuga í Reykjavík kyngdi
niður fyrir ríflega viku. Afturhjóla-
drifinn lágur fólksbíll er ekki heppi-
legasti fararskjótinn í slíkri færð, en
bílsins var samt notið talsvert áður
en himnarnir opnuðust og þá stóð
hann sannarlega fyrir sínu. Hér er
kominn afar sparneytinn bíll sem
fellur í vörugjaldslausan tollflokk og
því er þessi heilmikli bíll fremur ódýr
og kostar aðeins 5.710.000 krónur
eftir nýlega verðlækkun sökum hag-
stæðs gengis. Hann er skráður fyrir
aðeins 48 g/km af CO2 mengun og
53 g/km ef hann er valinn í lang-
baksformi. Auk þess er þessi bíll
skráður fyrir aðeins 2,4 lítra eyðslu
og kemst fyrstu 20-30 kílómetrana á
rafmagninu einu. Þarna er því einn
bíllinn enn kominn sem vert er að
mæla með sökum þess hve verð
slíkra bíla er hagstætt hér á landi
vegna vörugjaldsleysis, lágrar eyðslu
og mengunar.
Rífandi afl brunavélar
og rafhlaða
Ekki sakar að þessi Mercedes Benz
C-Class 350e er heil 279 hestöfl með
rafmótorum sem bæta afli við 211
hestafla 2,0 lítra bensínvélina. Með
þessari aflrás er bíllinn aðeins 5,9
sekúndur í hundraðið og víst má
segja að gaman sé að gefa honum
inn, hann er eldsprækur með raf-
mótorana fullhlaðna. Engu máli
skiptir þó að rafhlöður bílsins auki
við þyngd hans um 200 kg, hann
er eins og raketta af stað og skortir
aldrei afl, jafnvel þó að rafhlöðurnar
tæmist. Stjórna má því hvernig afl
rafhlöðu bílsins er notað og til þess
eru fjórar mismunandi stillingar,
Hybrid fyrir notkun bæði rafhlað-
anna og brunavélarinnar, E-Mode til
að nota aðeins aflið frá rafhlöðunum,
E-Save til að tryggja það að ávallt
sé hleðsla á rafhlöðunum ef fram
undan eru aðstæður til að aka aðeins
á rafmagninu, og Charge ef tryggja á
að rafhlöðurnar eiga að haldast að
mestu fullhlaðnar. Þá reynir aðeins
meira á vélina og rafhlöðurnar stela
aðeins frá afli hennar til að hlaða sig
undir átök þar sem gott er að búa
að öllu því afli sem þær og bruna-
vélin skila saman. Vafalaust er það
skemmtilegasta stillingin til spræks
aksturs en tryggir samt ekki minnstu
eyðslu bílsins, en þannig er hann
alltaf tilbúinn til krefjandi aksturs.
Sparneytinn, nema
þegar rafmagnið þrýtur
Við akstur bílsins í reynsluakstrinum
notaðist hann furðu oft aðeins við
rafmagnið og hljóðlátur er hann
sannarlega í þeim hamnum. Þar sem
bílnum var ekið til Keflavíkur eftir
að megninu af hleðslurafmagninu
hafði verið eytt, var einnig hægt að
kynnast bílnum svo til án aðstoðar
rafhlaðanna, en þá olli það vonbrigð-
um hve eyðslutalan var há og bíllinn
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
Öflugur sparibaukur
reynsluakstur – Mercedes benz C-Class 350e Þótt það kunni að hljóma ótrúlega þá er þessi 279 hestafla spyrnukerra svo til ódýrasta
gerð C-Class, þökk sé Plug-In-Hybrid kerfinu. Lipur, öflugur og sparneytinn bíll, en fyrirferðarmiklar rafhlöður takmarka skottplássið.
Gæðavottaðar álfelgur
5673322
AXARHÖFÐA 16
Felgur.is foliatec.is
LED Perur
Flott ljós
KoSTiR og gallaR
MeRcedeS Benz
c-claSS 350e
l bensínvél
l 279 hestöfl
l AfturhjólAdrif
Eyðsla 2,4 l/100 km í bl. akstri
Mengun 48 g/km CO2
Hröðun 5,9 sek.
Hámarkshraði 250 km/klst.
Verð frá 5.710.000 kr.
Umboð: Askja
l Verð
l afl
l Staðalbúnaður
l lítið skottpláss
l Mikil eyðsla án rafmagns
7 . M a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r6 Bílar
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
3
-E
D
7
C
1
C
6
3
-E
C
4
0
1
C
6
3
-E
B
0
4
1
C
6
3
-E
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K