Fréttablaðið - 07.03.2017, Side 25
VÖNDUÐ JEPPADEKK
FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR
EXPLORE WITHOUT LIMITS
®
ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF.
KLETTHÁLSI 3
110 REYKJAVÍK
SÍMI: 540 4900
NETFANG: info@arctictrucks.is
www.arctictrucks.com
VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK
UNDIR FLESTAR GERÐIR
JEPPA OG JEPPLINGA.
STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU.
ÖLL ALMENN
DEKKJAÞJÓNUSTA
TÍMABÓKANIR
Í SÍMA 540 4900
eyddi um 13 lítrum á hverja hundrað
kílómetra. Þetta má þó hæglega núlla
út með því að hlaða bílinn rafmagni
sem oftast og í stuttum ferðum
flestra um höfuðborgina má svo til
eingöngu aka bílnum á rafmagni
og því getur hann verið mjög ódýr
í rekstri. Það kemur ekki svo mjög á
óvart að margir kjósi tengiltvinnbíla
þessa dagana, þeir eru bráðsniðugir
að flestu leyti, ódýrir í rekstri, ódýrir
í innkaupum vegna engra vörugjalda
og flestir mjög öflugir þar sem raf-
mótorarnir bæta svo miklu afli við.
Lítið skottpláss
vegna rafhlaðanna
Einn er þó ókosturinn við að vera
með svo öflugar rafhlöður eins og í
þessum bíl, þær taka pláss. Í tilviki
Mercedes Benz C-Class 350e fer mikið
af skottplássinu í rafhlöðurnar og
fjórar íþróttatöskur fótboltastráka á
leið í knattspyrnumót tóku megnið af
skottrýminu. Því er „Sedan“ útgáfan
af þessum bíl ekki beint sú hentugasta
til langra ferðalaga þó að það breytist
mikið ef valin er langbaksgerð bílsins.
Annað sem pirrað gæti ökumenn
þessa bíls er fremur óvenjuleg gír-
stöng bílsins, en hún er áföst stýrinu
hægra megin. Ef stendur til að bakka
er henni ýtt niður og upp ef fara skal
áfram. Ýtt er á enda hennar ef setja á
í Park. Þetta venst samt vel og mikil
reynsla kom einmitt á það í allri
ófærðinni sem þarsíðasta helgi bauð
upp á. Eitt enn sem fór nett í taug-
arnar á ökumanni var að þegar leggja
átti af stað og sett í Drive tók bíllinn
stundum ekki sjálfvirku handbrems-
una af og þurfti þá að taka hana af
sjálfvirkt með takka sem ekki fannst
svo auðveldlega í fyrstu, undir mæla-
borðinu vinstra megin.
Loftpúðafjöðrun
og mikill staðalbúnaður
Fjöðrun C-Class 350e er alveg til
fyrirmyndar, enda er loftpúðafjöðrun
staðalbúnaður. Kannski veitir ekki af
þar sem bíllinn er 200 kílóum þyngri
en hefðbundinn C-Class og fyrir því
finnst aðeins í kröppum beygjum, en
ekki þó þannig að þessi bíll sé ekki
lipur og ljúfur akstursbíll. Ljúfur er
kannski einmitt orðið, bíllinn fer fer-
lega vel með farþega. Innréttingin í
honum er sannarlega í lúxusflokki
og mjög vel gengið frá henni. Það
sést þó að viðarinnleggingin er ekki
ekta og lofttúðurnar þrjár í mæla-
borðinu, sem einkenna Benz bíla um
þessar mundir, eru ekki að slá í gegn
hjá greinarritara. Bíllinn er mjög vel
búinn hvað staðalbúnað varðar, eins
og á svo oft við um Plug-In-Hybrid
gerðir bíla. Mercedes Benz C-Class
350e er flottur kostur á góðu verði,
svo til því lægsta sem býðst af nokk-
urri gerð C-Class, sem í sjálfu sér er
magnað.
Bílar 7Þ R I Ð J U D A G U R 7 . m A R s 2 0 1 7
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
6
3
-E
D
7
C
1
C
6
3
-E
C
4
0
1
C
6
3
-E
B
0
4
1
C
6
3
-E
9
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K