Fréttablaðið - 07.03.2017, Síða 44
Stöllurnar Nicki Minaj og Remy Ma heyja nú blóðuga styrjöld um hvor þeirra sé rappdrottning New York borgar. Eða raunar virðist stríðið aðallega vera háð frá
hlið Remy Ma en hún hefur gefið út
tvö lög þar sem hún baunar á Nicki –
en Nicki er þögul sem gröfin og lætur
raunar eins og ekkert hafi gerst.
Fyrra lagið, Shether, kom út fyrir
um viku. Lagið er sjö mínútur að
lengd og í því fer Remy um víðan völl
í gagnrýni sinni á hina vinsælu Nicki
Minaj. Nafn lagsins vísar til hins goð-
sagnakennda disslags, Ether, sem Nas
gerði um Jay-Z hér um árið. Remy segir
Nicki meðal annars hafa stolið af sér
línum, gagnrýnir afturenda Nicki og
sakar hana um framhjáhöld og kallar
hana grúppíu. Stuttu síðar gaf hún út
annað lag, Another One, en það vakti
ekki jafn mikil viðbrögð hjá almenn-
ingi. Eins og áður sagði hefur Nicki
ekki svarað.
Hver er Remy Ma?
Mörgum er nafnið Remy Ma ekki sér-
staklega kunnuglegt. Remy er hluti af
Terror Squad hópnum en í honum
er til að mynda Fat Joe, DJ Khaled og
Big Pun heitinn. Hún gaf út sólóplötu
árið 2006 og virtist stefna í að hún yrði
stjarna í rappheiminum en árið eftir
lenti hún í því „óhappi“ að skjóta einn
meðlim fylgdarliðsins síns og fór því
beina leið í steininn. Hún slapp ekki
út fyrr en árið 2014. Síðan þá hefur
hún verið að vinna að því að koma
sér aftur á blað, var til dæmis í laginu
All the Way Up með Fat Joe og fleirum
sem varð mjög vinsælt í fyrra og stefnir
nú á að gefa út plötuna Plata o Plomo
með Fat Joe. Síðan kom hún sér heldur
betur á blað með því að skjóta á Nicki
Minaj.
Verum öll vinir
Hver er ástæða þess að Remy Ma ræðst
skyndilega á stöllu sína? Hvers vegna
getum við ekki bara öll verið vinir?
Remy sjálf segir að rætur illindanna
liggi djúpt og hafi í raun tekið að
spretta í kringum 2007 þegar Nicki
Minaj var nánast óþekkt. Remy segist
vera að svara Nicki, enda hafi Nicki
komið illa fram við hana „bak við
tjöldin“ og að Nicki sé ekki góð mann-
eskja. Einnig gerði Nicki lagið Dirty
Money árið 2007 sem byrjar á orð-
unum „segðu þessari tík með kórón-
una að koma sér …“ og á þá við að hún
eigi kórónuna skilið – Remy Ma hafði
gefið út mixteip á svipuðum tíma þar
sem hún er með kórónu á umslaginu.
Nicki hefur þó aldrei viðurkennt að
hafa verið að tala um Remy.
Remy sagði í viðtali í þætti Wendy
Williams að Nicki hefði reynt að koma
í veg fyrir að ferill hennar kæmist á
skrið, en Remy mætti klædd eins og
hún væri í jarðarför í þættinum og
vildi lítið tjá sig um Nicki vegna þess
að mamma hennar hefði kennt henni
að „tala ekki illa um þá dauðu“. „Allir“
bíða nú spenntir eftir svari frá Nicki
Minaj. Þó gæti það orðið löng bið og
kannski hefur hún ákveðið að leiða
þetta hjá sér. stefanthor@frettabladid.is
Hver er
New York?
Stöllurnar Nicki Minaj og Remy Ma hafa eldað grátt silfur
um árabil. Í síðustu viku náðu illdeilur þeirra hámarki
þegar Remy Ma gaf út lagið Shether þar sem hún skýtur
föstum skotum á Nicki. Lagið setti allt á annan end-
ann í rappheiminum en Nicki hefur ekki svarað.
Viðbrögð fræga fólksins
50 Cent – Rapparinn 50 Cent veigrar
sér aldrei við að lenda í illdeilum
og hann virðist hafa gaman af ill-
deilum Nicki og Remy Ma. „Hiphop
er svo skemmtilegt. Nicki verður
að gera eitthvað. Vandamálið er að
Remy Ma er hörð í horn að taka.“
Lil Kim – „Þetta er grjóthart lag,
Remy þarf enga hjálp,“ segir
rapparinn Lil Kim aðspurð hvort
hún ætli að taka þátt í deilunum
með Remy en Lil Kim og Nicki hafa
eldað grátt silfur.
Vivica A. Fox – Leikkonan segir
Remy Ma vera frábæra í viðtali við
The Shade Room en henni líst hins
vegar ekkert á að þær stöllur standi
í rifrildi og finnst að þær ættu frekar
að vinna saman, enda sé það „það
sem konur gera“.
SamaNburður
Sóló lög á Hot 100 listanum
Remy Ma: 1
Nicki Minaj: 25
Hæsta sæti plötu á Billboard
listanum
RM: #33
NM: #1 (Tvisvar)
Flest áhorf á YouTube
RM: 4.5 milljónir
NM: 660 milljónir
Grammy tilnefningar
RM: Tvisvar fyrir besta rapplagið
NM: Tíu sinnum fyrir plötur, lög
og fleira.
BET verðlaun fyrir besta
kvenrapparann
RM: Ein verðlaun árið 2005
NM: Sjö verðlaun frá árinu 2010
til 2016
Followers á Instagram
og Twitter
RM: 3.7 milljónir á Instagram og
240 þúsund á Twitter
NM: 75 milljónir á Instagram og
20 milljón á Twitter
- lægra verð
Barnadagar
afsláttur af öllum barnavörum
20–25%
7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r24 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð
Lífið
0
7
-0
3
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
6
4
-0
B
1
C
1
C
6
4
-0
9
E
0
1
C
6
4
-0
8
A
4
1
C
6
4
-0
7
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
3
_
2
0
1
7
C
M
Y
K