Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.03.2017, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 07.03.2017, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Þetta hefur komið fyrir Þrisvar sinnum áður síðan reglan var innleidd árið 2013. MARINE PHYTOPLANKTON auk Spirulina og Chlorella Ein næringaríkasta ofurfæða á jörðinni samkvæmt David Wolfe heilsusérfræðingi Fæst í apótekum, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is, Heimkaup og Iceland Engilhjalla. www.balsam.is Bætt heilsa og betri líðan með Natural Health Labs 100% náttúruleg bætiefni ORKA – EINBEITING - JAFNVÆGI Sjávarþörungur • Lífrænn fjölvítamíngjafi • Aukin orka, einbeiting og úthald • Öflug vörn gegn flensu og kvefpestum Sjávarþörungur • Nýtt útlit, öfl ugri og hljóðlátari • Stiglaus hraðastýring ásamt pulse rofa og 5 prógrömmum • Uppskriftabók fylgir Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Pro750 galdurinn á bak við ferskt hráefni Að rækilega ígrund­uðu máli var það samdóma álit framkvæmda­stjórnar og dagskrár­stjóra að hleypa Hildi og laginu hennar áfram. Þar liggja margar ástæður að baki, m.a. sem tengjast dagskrárgerðinni, faglegu mati framkvæmdastjórnar á heildarsvip keppninnar og framvindu hennar, frammistöðu umrædds keppanda og höfundar til þessa, möguleikum í úrslitunum, niðurstöðum símakosninga í und­ anúrslitum o.fl.,“ segir Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, spurður út í þá ákvörðun að hleypa söngkonunni Hildi Kristínu Stefánsdóttur með lagið Bamm­ baramm í gegn í keppninni þó að hún hafi ekki verið kosin áfram í fyrri undankeppninni. Þess má geta að í framkvæmdastjórninni eru þau Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Birna Ósk Hansdóttir framleiðslu­ stjóri, Helgi Jóhannesson pródú­ sent og Rúnar Freyr Gíslason, verkefnastjóri keppninnar. Eftir fyrri undankeppnina sendi Hildur formlega kvörtun frá sér og kvartaði undan hljóðblöndun. Í kjölfarið skapaðist mikil umræða og margir tóku undir með Hildi og sögðu lag hennar ekki hafa notið sín nægi­ lega vel í útsend­ ingunni. E n H i l du r og aðdáendur hennar ættu að geta andað rólega því að sögn Skarp­ héðins munu öll lögin sem keppa í lokakeppn­ inni á laugardaginn njóta sín í botn. „Við leggjum að sjálfsögðu nótt við dag og kappkostum að öll fram­ kvæmd keppninnar; flutningurinn, viðburðurinn, umgjörðin og útsend­ ingin á laugardaginn verði eins og best verður á kosið. Ekki bara það, heldur getum við fullum fetum lofað glæsilegri sýningu þar sem lögin sjö fá að njóta sín sem aldrei fyrr, bæði hljóð og mynd,“ segir Skarphéðinn sem lofar heljarinnar sýningu. „Og svo má ekki gleyma sænska Måns Zelmerlöw sem mun taka sigurlagið sitt „Heroes“ auk þess sem sigur­ vegarinn frá því í fyrra, Greta Salóme, mun bjóða upp á glæsilegt upp­ hafsatriði.“ En þetta er ekki í fyrsta sinn sem gripið er til svokallaðrar Svarta Péturs reglu í Söngvakeppninni, þ.e. þegar einu aukalagi er hleypt áfram í úrslitin, til viðbótar við þau sex sem komast áfram í kosningunni. „Þetta hefur komið fyrir þrisvar sinnum áður síðan reglan var innleidd árið 2013, en það var árin 2013, 2014 og 2015. Í fyrra var ákveðið að ekkert lag færi áfram sem Svarti Pétur, enda áskil­ ur framkvæmda­ stjórn keppn­ innar sér rétt til að ákveða hvort hún velur sjöunda lagið áfram sem Svarta Pétur eða ekki, eftir því sem framkvæmda­ stjórn sér ástæðu til hverju sinni,“ útskýrir Skarphéðinn. „Það er skýrt kveðið á um Svarta Pétur í reglum um Söngvakeppnina, að til þess geti komið að sjöunda lagi kunni að vera veitt brautargengi með þessum hætti og því eru væntanlega allir keppendur meðvitaðir og undir þetta búnir allt frá byrjun.“ Hildur var að vonum himinlifandi yfir að komast áfram í lokakeppnina að sögn Skarphéðins. „Hildur tók þessum óvæntu tíðindum að sjálf­ sögðu fagnandi og okkur heyrist á öllu að hún ætli sér stóra hluti á laugardag.“ „Alveg tvímælalaust,“ segir Skarp­ héðinn aðspurður hvort það ríki óvenju mikil spenna yfir keppninni þetta árið. „Keppnin í ár er ekki einasta einhver sú allra sterkasta í lengri tíma, heldur er hún óvenju jöfn og óvenju mörg lög sem gætu farið alla leið og unnið keppnina. Við spáðum þessu fyrir fram þegar lögin 12 lágu fyrir. Nú þegar þessi sjö ólíku lög eru eftir bendir allt til þess að lokakvöldið verði eitthvert það allra mest spennandi í sögu keppninnar. Það sjáum við ekki bara á símakosningunni, sem hefur verið áberandi góð til þessa, heldur einnig á aðsókninni, en uppselt var á bæði undanúrslitakvöldin. Svo hefur umfjöllun í fjölmiðlum og áhuginn á samfélagsmiðlum verið með mesta móti, sem segir alltaf heilmikið um áhugann á keppninni og þeim lögum sem keppa um að komast til Kænu­ garðs í maí. Eitt er víst að það er ómögulegt að spá um úrslit og stuðn­ ingsmenn laganna verða að hafa sig mjög í frammi svo að þeirra lag fari alla leið.“ gudnyhronn@365.is allir í stjórninni sammála um að fá hildi í lokakeppnina Söngkonan hildur kristín stefánsdóttir var ekki kosin áfram í lokakeppni Söngva- keppninnar eftir fyrra undankvöldið. En í seinni undan- keppninni kom í ljós að framkvæmda- stjórn keppninnar beitti Svarta Péturs- reglunni og hleypti Hildi í gegn. Skarp- héðinn Guðmunds- son, dagskrárstjóri RÚV, segir alla í stjórninni hafa verið sammála um að Hildur ætti að kom- ast áfram. Skarphéðinn lofar heljarinnar keppni á laugardaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN Hildur mun keppa í lokakeppni Söngvakeppninnar á laugardaginn og spennan magnast. 7 . m a r s 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D a G U r26 L í f I Ð ∙ f r É T T a B L a Ð I Ð 0 7 -0 3 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 6 3 -F 7 5 C 1 C 6 3 -F 6 2 0 1 C 6 3 -F 4 E 4 1 C 6 3 -F 3 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 3 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.