SÍBS blaðið - 01.10.2008, Síða 12

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Síða 12
12 í Múlabæ, hjúkrunarfræðingar, iðjuþjálfar og félagsráðgjafar. Einnig myndlistar-og handa- vinnukennarar. Fljótlega kom í ljós við rekstur Múlabæjar að Alzheimersjúklingar stæðu mjög höllum fæti í heilbrigðiskerfinu og óskir um þjónustu við þá urðu fljótlega fleiri en hægt var að sinna í Múlabæ. Rekstraraðilar hans komu þá á fót dagvistun fyrir þennan hóp í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið og Reykjavíkurborg, sem lagði til húsnæði að Flókagötu 53. Þessi nýja stofnun fékk nafnið Hlíðabær og tók til starfa 1986. Þar hefur verið dagvistun og þjálfunar- miðstöð fyrir fólk með heilabilun síðan. Bæði þessi heimili, Múlabær og Hlíðabær hafa starfað frá stofnun og fram á þennan dag við mjög góðan orðstír. Við upphaf beggja heim- ilanna var þjónusta af því tagi sem þar er boðin af skornum skammti í þjóðfélaginu og því um nokkurs konar frumkvöðlastarf að ræða. Það hefur breyst mikið og nú er dagvist fyrir aldraða sjálfsagt viðfangsefni sveitarfélaga og mun fleiri úrræði eru nú fyrir heilabilaða en áður var. Eftir því sem leið á öldina fór félögum sjúk- linga og öryrkja að fjölga. Þá hófust umræður um nauðsyn þess að mynda samstöðu þeirra um hagsmunamál. Upphaflega mynduðu þrjú félög samstarfsnefnd og eftir reynslu af því samstarfi var Öryrkjabandalag Íslands stofn- að 1961. Aðild að því gátu átt öll starfandi öryrkjafélög og styrktarfélög öryrkja, auk sams konar félaga sem kynnu að verða stofnuð síðar. Saga Öryrkjabandalagsins er annað stórkostlegt ævintýri sem sýnir hvað veikburða einstakling- ar geta áorkað þegar þeir taka höndum saman. ÖBÍ tók húsnæðismál öryrkja föstum tökum frá upphafi og byggði stórhýsi við Hátún 10 í Reykjavík og einnig í Fannborg í Kópavogi á fyrstu árum sínum þar sem hundruð öryrkja áttu kost á húsnæði en einnig voru skrifstofur og vinnustofur í Hátúni. Með tilkomu Íslenskr- ar getspár, Lottósins 1986 fékk ÖBÍ fastan tekjustofn sem hefur reynst drjúgur í áranna rás. Hússjóður ÖBÍ fær bróðurpart þessara tekna en félagsstarfsemi bandalagsins og þar með aðildarfélögin hafi einnig notið góðs af þessum tekjum. SÍBS hefur frá upphafi verið fjölmenn- asta aðildarfélagið í Öryrkjabandalaginu og er það ennþá. Árið 1989 bundust Hjartavernd, Landssamtök hjartasjúklinga (nú Hjartaheill) og SÍBS sam- tökum um að stofna til viðhaldsþjálfunar eftir hjarta- og lungnaendurhæfingu, en á því var talin mikil þörf. Sjúklingarnir þurftu að geta æft undir eftirliti fagfólks og lækna með mark- vissum hætti. Þessir aðilar lögðu til stofnfram- lög og HL stöðvar tóku til starfa í Reykjavík og síðar á Akureyri. Þessi starfsemi hefur sýnt sig að var hin þarfasta og er með blóma í dag. Að stórum hluta er starfið fjármagnað með þátt- tökugjöldum en jafnframt fæst framlag á fjár- lögum til starfseminnar. Auk þessara tveggja stöðvar er starfrækt HL stöð í Neskaupstað og víðs vegar um landið eru svokallaðir HL hópar í tengslum við heilsugæslustöðvar auk fjöl- margra gönguhópa. Kjörorð SÍBS, „Styðjum sjúka til sjálfsbjargar“ hefur verið stjórn og starfsfólki SÍBS leið- arljós allt frá byrjun og er enn í dag. Í því felst grunnhugmynd að endurhæfingu, sem er aðal- viðfangsefni SÍBS og stofnana. Viðamest er hún á Reykjalundi en Múlalundur hefur einnig Formenn stjórnar Múlalundar Kjartan Guðnason 1959-1962 Þórður Benediktsson 1962-1972 Kjartan Guðnason 1972-1974 Guðmundur Guðmundarson 1974-2000 Þorbjörn Árnason 2000-2002 Valur Stefánsson 2002-2004 Birgir Kjartansson 2004-2007 Óskar Árni Mar 2007-

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.