SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 43

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 43
 Einar Árnason er rúmlega fimmtugur verktaki sem gaf sér tíma til að skreppa úr vinnunni í hálftíma og segja okkur frá lungna- minnkunaraðgerð sem hann undirgekkst í mars s.l.: „Ég reykti í hátt í þrjátíu ár og hafði ekki áhyggjur af því frekar en svo margir aðrir. Fyrir mörgum árum lenti ég svo í því að þegar ég var að mála gólf með sterku epoxylakki þá féllu lungun saman. Það var strax brugðist við því, gert gat á brjóstholið og lungun soguð upp og það gekk frekar vel. Eftir það komu svo blöðrur ofan á lungun sem sáust á röntgenmyndum og fóru stækkandi. Smátt og smátt fór að þrengja heldur að önd- uninni og þrekið var ekkert orðið. Fyrir 4-5 árum, en þá var ég hættur að reykja, hættu blöðrurnar að sjást á röntgenmyndum en öndunin batnaði ekki. Læknar töldu þetta samt vera á réttri leið en þegar ég var settur í sneiðmyndatöku kom í ljós að það voru stórar blöðrur ofan í lungunum. Í stuttu máli sagt þá virkar þetta þannig að möguleiki lungnanna á að dragast saman voru orðnir mjög skertir og öndunin grunn að sama skapi. Þetta kallast lungnaþemba. Mér voru gefnir tveir kostir, annars vegar að fá ventla í lungun eða þá að fara í skurðaðgerð, - lungnaminnkun. Hvort tveggja átti aðgeta bætt líðan mína. Ég valdi að fara í skurðaðgerðina og sé ekki eftir því. Fyrst var ég settur í und- irbúningsmeðferð á Reykjalundi og var þar tvis- var í fyrravetur og líkaði mjög vel. Síðan var aðgerðin þann 25. mars s.l. þar sem var tekið ofan af báðum lungum. Ég var svo á spítalan- um til 28. apríl, vegna þess að það kom upp leki sem ekki átti að vera og því þurfti ég að vera þar lengur. Það voru svo sem engin vandræði því þarna er alveg sérstaklega gott fólk, lækn- irinn, Kristinn Jóhannsson, hjúkrunarfræðingar og annað starfsfólk dekraði við mig og það fór mjög vel um mig í höndum þeirra. Það var svolítið sérstakt að strax þegar ég vaknaði eftir aðgerðina fann ég að ég gat andað miklu dýpra og allt varð léttara þrátt fyrir sársauka. Ég fór svo aftur á Reykjalund í endurhæfingu eftir sjúkrahúsdvölina. Það var Lungnaminnkun gerði mig vinnufæran á ný eins og að koma heim eftir fyrri dvölina og þar styrktist ég dag frá degi. Núna, fimm mánuðum seinna, er ég farinn að vinna aftur og líður bara alveg ágætlega, verk- irnir fara minnkandi en eftir svo stóra aðgerð eru það margir fletir sem þurfa að gróa saman og það er hreyfing á þessu öllu saman. Mér finnst þessi aðgerð hafa tekist mjög vel, hún hefur gjörbreytt líðaninni hjá mér og ég horfi bjartsýnn til framtíðarinnar. Efst í huga er þakklæti til starfsfólks á Reykja- lundi og Landsspítala fyrir það sem þau hafa gert fyrir mig.“ Polarolje náttúruolía Niðurstöður doktorsrannsóknar Linn Anne Bjelland Brunborg við Háskólann í Bergen sýndi með kliniskum rannsóknum sínum að Selolía linar liðbólgur og liðverki hjá þeim sjúklingum sem haldnir eru IBD (þarmasjúkdómar sem valda bólgum), og hefur áhrif á bata á þarmabólgu. Niðurstöður rannsóknar hafa sýnt, að omega-3 fi tusýrur í selolíu geta haft fyrirbyggjandi áhrif á sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma. Prófessor Arnold Berstad í Bergen hefur framkvæmt margar rannsóknir á sjúklingum með liðvandamál sem orsakast af bólgum í þörmum. Hann lýsir rannsóknarniðurstöðum þannig: „Olían hefur ekki einungis áhrif á verki hjá sjúklingum á árangursríkan hátt, heldur kemur árangurinn fl jótt í ljós. Við höfum séð sjúklinga ná góðum bata eftir einungis viku meðhöndlun“ Polarolían fæst í apótekum og heilsuhúsum, einnig í Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni og Melabúðinni Sími 699 7887 – 698 7999

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.