SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 31

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 31
1 Með réttri notkun astmalyfja og líkamsrækt eiga einstaklingar með astma möguleika á að lifa lífinu til fulls. Það hefur stór hópur sýnt fram á með þátttöku í Astmamaraþoninu 2008, sem var samstarfsverkefni Astma- og ofnæm- isfélagsins, AstraZeneca og World Class. Í nóvember á síðasta ári hófst undirbúningur að Astmamaraþoni 2008 sem lauk með þátttöku keppenda í Reykjavíkurmaraþoninu í ágúst síð- astliðnum. Þátttakendur í verkefninu, sem voru einstaklingar með astma, voru hvattir til að stunda þolþjálfun og nota astmalyfin rétt. Fær- ustu sérfræðingar veittu aðstoð og undirbjuggu þá fyrir keppni. Það er skemmst frá því að segja að þátttak- an var framar vonum og tókst keppnin með afbrigðum vel. Cornelia Brusmark var eina konan í hópnum sem hljóp heilt maraþon. Þeir Þórir Magnússon og Viðar Bragi Þorsteinsson hlupu báðir heilt maraþon á 3:34. Þátttakend- ur hafa haft á orði að þeir hafi eignast nýtt líf með þátttöku í verkefninu. Þeir Þórir og Viðar Bragi tóku þátt í Berlínar maraþoninu 28. sept- ember, en sú maraþonkeppni er talin ein sú erf- iðasta sem í boði er. Í hópi sérfræðinganna sem stóð að undirbún- ingi Astmamaraþonsins var Björn Rúnar Lúðvíksson læknisfræðilegur stjórnandi verk- efnisins. Auk þess veittu sérfræðilega ráðgjöf lungnalæknarnir Magni Jónsson, Gunnar Guð- mundsson og Sigurður Þór Sigurðarson. Fríða Rún Þórðardóttir, næringarráðgjafi hjá LSH, þjálfaði þátttakendur en hún er jafnframt í stjórn Astma- og ofnæmisfélagsins. AstraZeneca þakkar þessum vaska hópi sér- fræðinga fyrir gott og óeigingjarnt samstarf, en ekki síður þeim hetjum, sem tóku áskorun um að sigrast á hindrunum – og höfðu betur. Astmi þarf ekki að vera hindrun! Astmamaraþon 2008

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.