SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 20

SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 20
20 Meðal allra fyrstu verka SÍBS var að finna leið- ir til að fjármagna hugsjónir félagsmanna um að bæta hag berklasjúklinga. Þing SÍBS árið 1940 samþykkti að SÍBS skyldi einbeita kröft- um sínum „til fjársöfnunar fyrir vinnuheimili útskrifaðra berklasjúklinga og vinna að skjótum framgangi þess máls að öðru leyti“. Þegar var hafist handa um fjáröflun og var undravert hversu hugmyndaríkir og duglegir berklasjúklingarnir voru. Berklavarnardagurinn – SÍBS dagurinn Fyrst er að geta Berklavarnadagsins, sem var fyrsti sunnudagur í október ár hvert, í fyrsta sinn haustið 1939. Þá voru seld merki dagsins og blaðið Berklavörn, síðar Reykjalundur. Þessi starfsemi var sambandinu mjög mikilvæg og reyndist afar öflug tekjulind á fyrstu áratug- um SÍBS, enda var vel staðið að henna. Þegar fram liðu stundir tók þó blaða- og merkjasala að dragast saman, síðasti Berklavarnadagurinn var árið 1984 og voru þá þessir fjáröflunardag- ar orðnir fjörutíu og sex. Áfram er þó fyrsti sunnudagur októbermánaðar helgaður málefn- um SÍBS, nefndur SÍBS dagurinn og það hefur haldist fram á þennan dag. Tekjur SÍBS jukust verulega árin 1943 og 1944. Stóran þátt í þeirri tekjuaukningu má rekja til svokallaðra skattfrelsislaga sem sett voru 1943 og kváðu á um skattfrelsi af gjöfum til vinnu- hælis berklasjúklinga og giltu til ársloka 1944. Happdrætti um flugvélar og bíla Árið 1945 var hleypt af stokkunum happdrætti sem mikla athygli vakti. Í þessu happdrætti var aðalvinningurinn ný bandarísk flugvél, tveggja sæta, ásamt flugkennslu. Í síðasta tölublaði SÍBS blaðsins er fjallað ítarlega um þetta, en flugvélarhappdrættið færði SÍBS góðan hagnað. Árin 1947 - 1948 var efnt til enn nýstár- legra happdrættis. Þar voru í boði 20 Renault bifreiðir sem voru frekar vinsælar um þessar mundir. Einhvern tíma voru þær þó uppnefnd- ar „Hagamýs“ af einhverjum ástæðum en þær voru minni en algengt var um bíla hér á stríðs- árunum. Dregið var fjórum sinnum í þessu happdrætti, um fimm bíla í senn. Í happdrætt- inu seldust alls 111.561 miði og af því varð 660.000 króna hagnaður. Eigandi eins vinn- ingsmiðans gaf sig aldrei fram og bifreið sú sem ekki gekk út var um mörg ár notuð í þágu SÍBS. Að fá gjaldeyrisleyfi Á stjórnarfundi SÍBS hinn 18. janúar 1949 var rætt um enn eitt happdrætti. Á þessum tíma var gífurlega erfitt að fá gjaldeyri til kaupa á bifreið, en nú bar svo vel í veiði að Oddi Ólafssyni, yfirlækni á Reykjalundi, hafði tek- ist að verða sér úti um leyfi fyrir einkabifreið sér til handa af Hudson gerð. Hann bauðst til að afsala sér bifreiðinni ef SÍBS vildi stofna til happdrættis um hana. Þessu höfðinglega boði var tekið, það seldust 49.000 miðar og happ- drættið skilaði 367.000 króna hagnaði, sem rann í Vinnuheimilissjóð. Í október þetta ár tók svo Vöruhappdrætti SÍBS til starfa og þar með var ekki efnt til fleiri happdrætta af þessari gerðinni en áfram var leitað allra leiða til að afla fjár eins og sjá má annars staðar hér í blaðinu. Fjáröflun SÍBS á fyrstu árunum

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.