SÍBS blaðið - 01.10.2008, Side 14
1
haft stórt hlutverk í þessum efnum og ekki má
gleyma hlutverki HL stöðvanna, sem hafa brúað
bil hjá mjög mörgum eftir dvöl á Reykjalundi
eða öðrum endurhæfingarstofnunum.
Húsnæðismál SÍBS
Fyrstu árin hafði SÍBS hvorki fastan starfs-
mann eða opna skrifstofu. Virtist stefnt að
því að starfsemin yrði til húsa á sama stað og
vinnuheimili þegar það risi. Margir töldu þó
heppilegt að aðsetur yrði einnig í Reykjavík.
Það var ekki fyrr en árið 1943 að opnuð var
skrifstofa sambandsins í húsnæði sem fékkst í
Lækjargötu 10B og var opin tvo tíma á dag. Til
var þá eitt skrifborð í eigu SÍBS en leitað var til
Heilsuhælissjóðs um styrk til kaupa á húsgögn-
um. Upp frá þessu var farið að greiða einhver
laun fyrir vinnu að málefnum SÍBS, en fyrstu
árin var öll vinna unnin í sjálfboðavinnu.
Næsta húsnæði var í Hamarshúsinu við
Tryggvagötu en eftir um hálft ár var flutt
þaðan í gott húsnæði að Hverfisgötu 78. Þar
var heldur ekki staldrað lengi við heldur flutt
í Austurstræti 9 árið 1948 þar sem fékkst gott
leiguhúsnæði. En umsvif SÍBS fóru jafnt og
þétt vaxandi og húsnæðisþörfin að sama skapi.
Árið 1959 flutti SÍBS loks í eigið húsnæði að
Bræðraborgarstíg 9. Aðalumboð happdrætt-
isins var þó áfram í Austurstræti. Þegar fram í
sótti þótti þetta frekar óhentugt og var þá keypt
húseign í Suðurgötu 10 þar sem öll starfsemi
skrifstofu SÍBS og happdrættisins rúmuðust
undir einu þaki. Þangað var flutt 1973 og þar
var heimili samtakanna og happdrættisins allt
til ársins 2002. Þarna í miðbænum var gott að
vera en með tímanum varð bílastæðaskortur
nokkuð til trafala. Vorið 2002 var húseignin
seld og flutt í Síðumúla 6 þar sem rúmt er um
starfsemi samtakanna og aðildarfélaganna og
happdrættisins, auk þess sem hluti húsnæðisins
er leigður út. Var húsnæðið leigt fyrstu fjögur
árin en fékkst síðan keypt. Unnið hefur verið
að breytingum á húsinu og umhverfi þess, til
að bæta aðgengi fatlaðra, bílastæði stækkuð
bílastæði og lóðin ræktuð og snyrt.
Ný félög koma til liðs við SÍBS
Með árangursríku starfi SÍBS ásamt tilkomu
nýrra berklalyfja fór berklasjúklingum fækkandi
og í framhaldi af því komu aðrir brjósthols-
sjúklingar til liðs við SÍBS. Astma- og ofnæm-
Formenn sambandsstjórnar SÍBS í 70 ár:
Andrés Straumland 1938-1945
Maríus Helgason 1945-1956
Þórður Benediktsson 1956-1974
Kjartan Guðnason 1974-1988
Oddur Ólafsson 1988-1990
Garðar P. Jónsson 1990
Haukur D. Þórðarson 1990-2004
Sigurður Rúnar Sigurjónsson 2004-
Formenn sambandsstjórnar SÍBS voru upphaflega kallaðir forsetar. Þannig tók Þórður Benediktsson
við starfi forseta SÍBS 1956 og er sá síðasti með þann titil, en Kjartan Guðnason tekur við starfi for-
manns af honum 1974. Í fréttum af starfi SÍBS er þó ýmist notað orðið forseti eða formaður á þessum
árum.
Oddur Ólafsson lést í janúar 1990 og Garðar P. Jónsson sem þá var varaformaður stjórnar gegndi for-
mennsku fram á næsta þing SÍBS haustið 1990.
Lengst gegndu formennsku Kjartan Guðnason og Haukur D. Þórðarson í fjórtán ár hvor.
Oddur Ólafsson sat lengst allra í stjórn SÍBS eða alls 46 ár. Jafnframt var hann í byggingarnefnd og
síðar stjórn Reykjalundar og ein helsta driffjöðrin í öflugu starfi SÍBS allan þennan tíma.