SÍBS blaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 17
17
• Ein stjórn fer með málefni SÍBS og allra
stofnana þess
• Lykilhugmyndir verða: Einfaldleiki/skýrleiki,
skilvirkni/gagnsæi og rekstrarhagkvæmni.
• Starfsemi SÍBS mun skiptast í þrjú svið:
Endurhæfingarsvið, félagsmál og fjáröflun
og eignaumsýslusvið. Framkvæmdastjór-
ar þessara sviða munu funda reglulega og
mynda framkvæmdaráð
• Stefnt er að því að eftirlitshlutverk stjórn-
arinnar verði virkt, m.a. með samræmdum
reglum um framkvæmd áætlana hjá sér-
hverri stofnun og eftirlit með þeim. Þjón-
ustuhlutverk stjórnarinnar við félagsmenn
á að vera í öndvegi auk þess sem mikið er
lagt upp úr stefnumótunarhlutverki hennar.
Mikil vinna liggur að baki þeim hugmyndum
sem fram verða lagðar á þinginu og ræðst þar
hvort þessar miklu breytingar á allri starfsemi
SÍBS verða að veruleika.
Þessi yfirlitskafli eða stiklur úr sögu SÍBS er
meira til að gefa hugmynd um starfsemina
en að hún sé kynnt til hlítar. SÍBS á að baki
glæsta sögu og hefur áorkað ótrúlegum hlutum
til heilla fyrir íslenska þjóð. Félagsmenn aðild-
arfélaganna, sem bera hag sambandsins mjög
fyrir brjósti, hafa mikla trú á því að framtíðin
verði ekki síður mótuð af framsækni og dugn-
aði. SÍBS hefur alla burði til þess að vera í for-
ystu í endurhæfingarmálum á Íslandi hér eftir
sem hingað til og að því marki verður stöðugt
keppt.
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
06
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Fagleg og persónuleg
þjónusta
Sjúkraliði RV, Jóhanna Runólfsdóttir, leiðbeinir
skjólstæðingum TR, einstaklingum með
þvagleka og aðstandendum þeirra og
veitir ráðgjöf varðandi hjúkrunarvörur.
Sími: 520 6673
johanna@rv.is
www.rv.is
Ýmis úrræði
og ráðgjöf
vegna þvagl
eka Við höfum gefið út vandaðan TENA bækling- um úrræði og ráðgjöf vegna þvagleka. Hafðu samband og við sendum þér eintak.