SÍBS blaðið - Feb 2016, Page 4

SÍBS blaðið - Feb 2016, Page 4
4 SÍBS-blaðiðGrein Brynhildur Guðmundsdóttir iðjuþjálfi Reykjalundi Jafnvægi í daglegu lífi Að upplifa jafnvægi í daglegu lífi stuðlar að bættri heilsu og vellíðan. Þegar það er gott jafnvægi á milli eigin umsjár, þeirra starfa sem við sinnum, áhugamála og hvíldar líður okkur vel. Það er misjafnt á milli manna hvar við finnum þetta góða jafn- vægi, það sem er skyldustarf fyrir einn getur verið gleðigjafi fyrir annan og öfugt. Gott jafnvægi er þegar við getum haldið utan um það sem er ætlast til að við gerum, okkur langar til að gera og það sem við þurfum að gera. Því er mikilvægt að skoða hlutverk sín reglulega án þess að bera þau saman við hlutverk annarra og vera tilbúin að breyta til að öðlast betra jafnvægi. Hlutverk Við þurfum reglulega að huga að hlutverkum okkar þar sem þau eru breytingum háð. Hlutverkin breytast yfir ævina, um miðjan aldur erum við með flest hlutverk en þeim fækkar þeg- ar við eldumst og er þá mikilvægt að eiga hlutverk sem hafa þýðingu og gildi. Þetta er eðlileg þróun og yfirleitt gerist hún jafnt og þétt svo við náum að aðlagast breytingunum. Hins vegar getum við misst hlutverk vegna sjúkdóms, slyss eða annars áfalls. Þegar slíkt gerist er enginn aðlögunartími og getur því verið erfitt að takast á við þær breytingar. Mikilvægt er þá að endurskoða hlutverk sín og stundum þarf að finna ný sem hafa tilgang og þýðingu. Við þurfum að spyrja okkur reglulega hvaða hlutverk eru mikilvægust og hvort við séum að forgangsraða þeim í samræmi við það. Við þurfum líka að minna okkur á að hlutverkið að sinna „sjálfum sér“ þarf að vera í fyrsta sæti. Stundum rekum við okkur líka á að gömlu venjurnar virka ekki lengur og þá þarf að endur- skoða þær og reyna koma sér upp nýju vanamynstri. Þegar við skoðum hlutverk okkar og jafnvægið á milli þeirra er gott að hafa þessar spurningar til hliðsjónar: • Hvað fer mikill tími í eigin umsjá/störf/áhugamál og hvíld? • Hvernig er hlutverkum forgangsraðað, hvað er mikil- vægast? • Er tími til að sinna skemmtun og ánægju? • Hvernig er viðhorfið og hugarfarið? • Hverju þarf að breyta, hvaða leiðir er hægt að fara? Streita hefur áhrif Í nútíma þjóðfélagi hefur streita áhrif á jafnvægið hjá mörg- um. Spennan er okkur nauðsynleg og góð til að takast á við margt í lífinu en hún má ekki verða viðvarandi því hún getur haft skaðleg áhrif á bæði líkama og sál. Streita getur myndast þegar kröfurnar sem við eða aðrir gerum til okkar eru meiri heldur en þeir styrkleikar sem við búum yfir. Þá er gott að spyrja sig hvaðan koma kröfurnar? Erum við að setja of miklar kröfur á okkur sjálf eða er það umhverfið? Er hægt að auka styrkinn eða þarf að minnka kröfurnar? Streita hefur mismunandi áhrif á okkur þar sem persónu- leikinn, sjálfsmatið og þekking okkar á streituvöldum skiptir máli. Einkenni streitu geta ýmist verið líkamleg, andleg eða hegðunin breytist. Stundum tekur fólkið í kringum okkur fyrst eftir þeim þar sem við höfum ekki gefið okkur tíma til að gefa einkennunum gaum eða bíðum eftir að ástandið líði hjá. Þess vegna er mikilvægt að staldra stundum við og taka eftir hvernig okkur líður og kanna þær væntingar sem við höfum. Eins þurfum við að vera meðvituð um hverjir streitu- valdarnir eru svo við getum tekist á við þá og undirbúið okkur fyrir aðstæðurnar sem geta skapast. Þá er gagnlegt að skoða hugarfarið og áhrif hugsana okkar. Um leið og við förum inn í aðstæður með neikvætt hugarfar og jafnvel búin að áætla að þær verði streituvaldandi getur verið erfiðara að takast á við þær. Jákvætt hugarfar og trú á sjálfan sig auðveldar okkur að takast á við dagleg verkefni og betri líðan fylgir í kjölfarið. Ef streita er til staðar er byrjað á því að skoða hvort hægt Gott jafnvægi er þegar við getum haldið utan um það sem er ætlast til að við gerum, okkur langar til að gera og það sem við þurfum að gera

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.