SÍBS blaðið - feb. 2016, Page 6

SÍBS blaðið - feb. 2016, Page 6
6 SÍBS-blaðið sé að fjarlægja streituvaldinn. Ef streituvaldurinn er t.d of margar skyldur, þá getum við unnið að því að fækka þeim eða ef skyldurnar eru of fáar þá þurfum við að skapa nýjar. Ef við getum ekki fjarlægt streituvaldinn þurfum við að efla okkur eða læra að takast á við það sem við getum ekki fjarlægt eða breytt. Ýmis bjargráð Við þurfum að vera meðvituð um hvernig við bregðumst við streitu og ójafnvægi í daglegu lífi. Góður kostur er að tileinka sér uppbyggilegar venjur þar sem heilnæmir lifnaðarhættir, góð tímastjórnun og raunhæf markmið eru höfð að leiðarljósi. Síðast en ekki síst höfum við alltaf í huga hvað skiptir okkur máli og gefur lífinu gildi. Slökun Slökun er andstæðan við streitu og er því gott verkfæri gegn streitu. Jákvæð áhrif slökunar eru aukið jafnvægi, betri ein- beiting, minni spenna og kvíði. Stunda þarf slökun reglulega til þess að ná góðum tökum á henni. Hana er hægt að stunda hvar og hvenær sem er í amstri dagsins. Slökun getur verið hluti af daglegu lífi og daglegum venjum á sama hátt og að hreyfa sig reglulega. Tíminn sem er tekinn frá fyrir slökun þarf ekki að vera langur, þó það séu ekki nema 5 mínútur geta þær stuðlað að betri líðan. Tímastjórnun Við höfum öll sama tímann en það er misjafnt hvernig hver og einn kýs að verja honum. Ýmis verkfæri er hægt að nota til að nýta tímann sem best. Umhverfi sem er vel skipulagt og með góða yfirsýn dregur úr streitu þar sem gott er að geta gengið beint að hlutum eða verkefnum. Vikudagskrá eða stundatafla getur t.d. hjálpað þeim sem eru að koma sér upp nýrri rútínu eða þeim sem eiga erfitt með að takast á við verkefni dagsins. Verkefnalistar eða minnismiðar eru hentugir þegar mörg verk- efni bíða. Verkefnalistinn getur dregið úr streitu þar sem hann gefur góða yfirsýn og við þurfum ekki alltaf að vera hugsa um verkefnin þegar þau eru komin á blað. Stundum þarf að búta stór verkefni niður og taka eitt fyrir í einu. Ef mörg atriði eru á listanum þarf að forgangsraða og endurskoða hvort einhver megi bíða eða hvort hægt sé að deila þeim út til annarra. Þeg- ar kemur að því að draga úr álagi og eiga tíma til að sinna þeim verkefnum sem eru okkur mikilvægust þurfum við oft að draga úr fullkomnunaráráttu og segja nei við öðrum verkefnum. Markmiðssetning Það hefur sýnt sig að þeir sem setja sér markmið eru líklegri til þess að ná árangri. Þeir eru þá að stefna í ákveðna átt en eru ekki eins og korktappi úti á sjó þar sem engin stefna er. Til að ná fram breytingum er gott að hafa markmið sem eru skrifleg, mælanleg, tímasett og raunhæf. Ef við skrifum ekki markmiðin niður er auðvelt að gleyma þeim og eins getur verið erfiðara að framkvæma þau. Til að losa við afsökunina „ég geri þetta á morgun“ er ráðlagt að tímasetja markmið sín og setja þau þannig upp í vikudagskrá eða í dagbókina sína. Gildi og áhugamál Það er okkur öllum mikilvægt að eiga áhugamál sem við njótum að stunda og veita okkur gleði. Ekki má gleyma að líta í eigin barm og forgangsraða því sem skiptir okkur máli. Það vill oft verða þannig að þegar mikið er að gera eða ef orkan er lítil þá fá áhugamálin fyrst að víkja og við bíðum betri tíma til að sinna þeim. Oft er þetta röng forgangsröðun, því hafa þarf í huga hvað nærir okkur og hvað gefur okkur orku. Munum að gefa okkur tíma til að njóta en ekki þjóta. Lífið er núna! Til að ná fram breytingum er gott að hafa markmið sem eru skrifleg, mælanleg, tímasett og raunhæf

x

SÍBS blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.