SÍBS blaðið - feb. 2016, Side 20
20
SÍBS-blaðiðGrein
Tengsl og samskipti
Klara Bragadóttir
sálfræðingur Reykjalundi
Mannleg tengsl og samskipti eru okkur manneskjunum
lífsnauðsynleg. Það má segja að það besta sem við upplifum á
lífsleiðinni eigi sér stað í samskiptum við aðra. Bestu stundir
okkar eru yfirleitt þegar við eigum í ánægjulegum samskiptum
og finnum fyrir tilfinningalegri nánd við aðra manneskju. Sama
má segja um okkar verstu stundir, en þær tengjast oftast
missi, rofnum tengslum eða samskiptum sem eru á einhvern
hátt erfið eða vond. Leikni okkar í samskiptum byggir að
verulegu leyti á hæfileikanum til að tjá okkur. Á því byggir allt
mannlegt samfélag. Grunnurinn að hæfni okkar í mannlegum
samskiptum er að miklu leyti lagður strax í frumbernsku.
Tengsl og öryggi
Ungabörn eru afar næm á umhverfi sitt og þar með á þá
umönnun sem þau fá. Foreldrar/umönnunaraðilar eru ábyrgir
fyrir fyrstu samskiptareynslu barnanna. Það samspil sem á
sér stað á fyrstu mánuðum og árum í lífi barnsins er talið hafa
áhrif á alla ævi þess.
Heila- og taugaþroski barns er hraðastur á fyrstu þremur
árum þess. Við fæðingu er höfuð barns um 40% þeirrar stærð-
ar sem höfuð fullorðins einstaklings er. Við þriggja ára aldur er
höfuðstærð barns orðin 85% af fullorðinsstærð og við fjögurra
ára aldur er það 90% af höfuðstærð fullorðinna. Barnið mynd-
ar heilafrumur mjög hratt fyrstu 15 mánuðina og fjöldi teng-
inga sem myndast þeirra á milli er að sama skapi gríðarlegur.
Þroski heilans er, samkvæmt aukinni þekkingu undanfarna
áratugi, mjög háður því félagslega og tilfinningalega samspili
sem á sér stað milli barnsins og umönnunaraðila þess, sem
eru oftast foreldrar barnsins. Reynsla barnsins af samskiptum
við þá sem annast það leggur grunn að þroska þess og heilsu
alla ævi. Nú teljum við okkur vita fyrir víst að reynsla barnsins
af þessum samskiptum í frumbernsku og þeim tengslum sem
það myndar við umönnunaraðila sína, skiptir miklu máli fyrir
líðan, hegðun, hugræna hæfileika, tilfinningastjórnun, sam-
kennd með öðrum og samskiptafærni í sinni víðustu merkingu,
þ.m.t. hæfileika til að eiga í nánum samböndum við aðra.
Börn hafa ólíka skapgerð og persónuleika frá fæðingu
en þau þroskast ekki sem persónur nema í samspili við aðra.
Börnum eru þessi félagslegu samskipti, og tilfinningaleg
tengslamyndun sem þeim fylgja, svo nauðsynleg að þau
tengjast jafnvel þó samskiptin valdi þeim vanlíðan og sárs-
auka. Flestir foreldrar hafa eðlislæga hæfni til að veita barni
sínu næga athygli og umhyggju og veita þeim þannig tilfinn-
ingalegt öryggi og grunntraust á tilverunni. Tengslamyndun
milli móður og barns hefst strax í móðurkviði og er samfellt
ferli líffræðilegra, lífeðlisfræðilegra og sálrænna þátta. Ef
barnið venst því að brugðist sé við af næmi við þörfum þess
(það fær huggun, næringu og aðra umönnun við hæfi) öðlast
það traust á að foreldrið sé til staðar, hjálpi og verndi þegar
þörf krefur.
En hvað er svona mikilvægt í samskiptum foreldra og
barna í frumbernsku? Þegar barninu líður illa skilja næmir
foreldrar líðan og þarfir barnsins, túlka þarfirnar og bregðast
við þeim ásamt því að spegla líðan barnsins og tilfinningar,
svo sem með raddblæ og andlitsdráttum. Barnið tengir því
hegðun foreldris við eigin líðan. Heilinn myndar svokallaðar
speglafrumur í samspili barnsins við foreldrið. Barnið upplifir
að foreldrið skynji líðan þess og í því felst huggun. Barnið fær
reynslu af því að vanlíðan þarf ekki að enda illa, það sefast
og því líður betur. Í þessu samspili myndast traust barnsins á
öðrum, traust á að geta leitað til annarra þegar því líður illa og
öðlast í gegnum þessa reynslu innra öryggi og grunntraust á
tilverunni. Þarna byrjar barnið að læra á og bregðast við sín-
um eigin tilfinningum en það að vera læs á tilfinningar sínar er
m.a. grunnur að góðri andlegri heilsu alla ævina. Þarna tekur
barnið líka fyrstu skrefin í átt að því að læra að stjórna eigin
tilfinningum, svo sem að geta sefað sig í vanlíðan í stað þess
að fyllast örvæntingu og upplifa vanmátt.
Reynsla barnsins af sam
skiptum við þá sem annast
það leggur grunn að þroska
þess og heilsu alla ævi