SÍBS blaðið - feb. 2016, Síða 22

SÍBS blaðið - feb. 2016, Síða 22
22 SÍBS-blaðið Í hnotskurn mynda örugg tilfinningatengsl barns við foreldra/umönnunaraðila ákveðinn grunn hvað varðar til- finninga- og félagsþroska síðar á ævinni. Barnið lærir í þessu fyrsta samspili bæði traust og ást á báða vegu, þ.e. upplifir að vera elskað og að treysta, tekur það til sín og myndar sjálft tilfinninguna á móti. Samskipti og tjáning síðar á ævinni Við eigum nær stöðugt í samskiptum við aðra. Hegðun okkar og samskiptavenjur eru aldrei nákvæmlega eins í mismunandi aðstæðum. Mannleg samskipti fela í sér bæði orð og athafn- ir, m.a. ýmis viðbrögð sem við sýnum við orðum og hegðun annarra og sem aðrir sýna við orðum og gerðum okkar. Viðmið samfélagsins og tíðarandi hvers tíma móta að nokkru leyti samskipti okkar, við lærum hvað má og hvað er ekki við- eigandi. Í samskiptum við aðra gilda oft ákveðnar fyrirfram gefnar reglur. Við vitum t.d. hvernig við högum okkur í leikhúsi og öðrum fastmótuðum aðstæðum. Við vitum hvernig við get- um talað við og treyst þeim sem við þekkjum vel og eru okkur nánir. Við vitum oft nokkurn veginn um viðbrögð annarra. Hugtakið tjáskipti vísar til gagnkvæmni þess að tjá sig og að taka við tjáningu. Við notum oft látbragð til að leggja áherslu á orð okkar og þannig eru tjáskipti með og án orða yfirleitt samofin í daglegum samskiptum manna. Í öllum venjulegum samskiptum felst einhvers konar samkomulag milli fólks um hvað sé að gerast. Þegar einhver réttir okkur höndina finnst okkur líklegt að hann vilji heilsa okkur með handabandi. En þó flestir skilji og fari eftir hinum almennu leikreglum samfélagsins, þá upplifir fólk og skynj- ar atburði og orðræður á mismunandi hátt. Sumir eru mjög leiknir í að lesa í aðstæður og hvað er við hæfi, meðan aðrir geta komið sér í vanda vegna þess að þeir eru ekki eins færir að lesa í aðstæður. Leiðir sem menn nota til að tjá sig eru nær óteljandi. Öll samskipti manna einkennast af einhvers konar tjáskiptum, hvort sem er í riti, í tali, með svipbrigðum eða á annan hátt. Við sendum stöðugt frá okkur merki sem fólk í kringum okkur túlkar og á sama hátt túlkum við orð, hegðun og fas annarra. Tungumál eru undirstaða félagslegra samskipta. Við skiljum merkingu þess sem sagt er, þó það liggi ekki beint í orð- unum. Við lærum að lesa milli línanna og túlka raddblæ og líkamstjáningu. Stór hluti þess sem við viljum koma öðrum í skilning um, getur komist til skila án orða. Látbragð er eins og annað líkamsmál notað til að fylla upp í samtal og undirstrika þýðingarmikil atriði sem ekki eru sögð í orðum. Látbragð er breytilegt eftir menningarsvæðum og tíðaranda. Svipbrigði og látbragð eru greinilegustu boðin án orða, en einnig getur skipt máli fyrir túlkun viðmælandans fjarlægð milli viðkomandi, þögn og hreyfingar. Samskipti/tjáskipti eru leið til skilnings en því miður oft einnig leið til misskilnings. Það sem við sendum frá okkur er oft á tíðum mistúlkað. Það er m.a. orsök ágreinings og átaka milli hópa og einstaklinga. Það er mikilvægt að fólk geri sér grein fyrir að aðrir geta verið með aðra skoðun og að skoðun annarra sé virt þó að hún samræmist ekki eigin skoðun. Það er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir hvernig við bregðumst við öðrum og hvað það er sem kemur okkur úr jafnvægi. Það er mikilvægt að geta brugðist við tilfinningum annarra án þess að komast úr jafnvægi með sínar eigin tilfinningar. Í samskiptum eða samræðum reynir fólk að ná ásættan- legu jafnvægi bæði hvað varðar stjórn samskiptanna og innileik þeirra. Þetta getur reynst erfitt en oft er jafnræði í samskiptum t.d. milli vina á góðri stund. Misskipt stjórn í samskiptum getur ráðist af hlutverkum þeirra sem í hlut eiga, t.d. kennara og nemanda, læknis og sjúklings. Oft ræðst þó stjórnin af framkomu þeirra sem í hlut eiga. Einkenni þess sem reynir að ná stýrandi hlutverki í samskiptum er ákveðin yfirgangssemi, t.d. að grípa fram í, tala mikið, látbragð og fas sem gefur til kynna að maður hafi yfirhöndina auk yfirlætislegs orðalags. Sá sem stendur á sínu í samskiptum hvað sem það kostar er líklegri til að særa aðra og ganga á rétt annarra en sá sem virðir skoðanir og rétt annarra en stendur samt á sinni skoðun og rökstyður sitt mál. Einkenni þess sem hefur víkjandi hlutverk í samskiptum er að láta undan í samskiptum, standa ekki á eigin rétti og virða ekki eigin skoðanir nægjanlega. Í hvorugu tilvikinu er um jafn- vægi/jafnræði að ræða í samskiptunum og þau þ.a.l. líklegri til misskilnings og vanlíðunar. Ábyrg og ánægjuleg samskipti eiga sér stað þegar við berum ábyrgð á því sem við segjum og gerum en tökum einnig ábyrgð á því hvernig við túlkum orð og hegðun annarra. Að kunna að hlusta er lykillinn að mannlegum samskipt- um, hvort sem um er að ræða ágreining eða ánægjulegar sam- ræður. Besta leiðin til að sannfæra aðra er að nota eyrun – að hlusta. Virk hlustun felur í sér m.a. að horfa á viðmælanda sinn, að sýna áhuga og lesa í svipbrigði og raddblæ, spyrja uppbyggilegra og hvetjandi spurninga, að grípa ekki fram í og taka undir og gefa þannig til kynna að maður sé að hlusta. Með því að læra og skilja og virða á hve marga vegu við erum mismunandi og ólík verða öll samskipti ánægjulegri og meira jafnvægi og jafnræði ríkir í samskiptum. Byggt á fyrirlestrum úr Geðheilsuskóla Reykjalundar Ítarefni /heimildir: Árin sem enginn man – Sæunn Kjartansdóttir Fyrstu 1000 dagarnir – Sæunn Kjartansdóttir The development of the person – L. Alan Sroufe Öll samskipti manna einkennast af einhvers konar tjáskiptum, hvort sem er í riti, í tali, með svipbrigðum eða á annan hátt

x

SÍBS blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.