SÍBS blaðið - Feb 2016, Page 24
24
SÍBS-blaðiðGrein
Kvíði er eðlileg tilfinning bæði hjá börnum og fullorðnum.
Hann tengist yfirleitt nýrri reynslu og því sem er óþekkt eins
og að byrja í skóla, nýrri vinnu eða að eignast barn. Einnig
getum við fundið fyrir kvíða þegar við þurfum að gera eitthvað
sem veldur okkur óöryggi. Mikilvægt er að hafa í huga að ef
kvíðinn er í hófi og undir góðri stjórn er hann jákvæður og
getur hjálpað okkur að nýta betur hæfileika okkar og getu.
Einnig getur kvíðinn hjálpað okkur að bregðst hratt við ef þörf
er á og forðast raunverulegar hættur eins og í umferðinni.
Aftur á móti er litið á kvíða sem vanda þegar hann er meira
eða minna stöðugur eða ekki í samhengi við aðstæður. Þegar
kvíðinn er farinn að hafa hamlandi áhrif á daglegt líf og lífs-
gæði er talað um að viðkomandi sé með kvíðaröskun.
Kvíðaraskanir
Kvíðaraskanir eru algengt vandamál og er tíðni þeirra hér á
landi talin svipuð og í nágrannalöndum okkar. Áætla má að
tæplega fjórðungur Íslendinga fái kvíðaröskun einhvern tíma
á ævinni.
Kvíðaröskunum er skipt niður eftir eðli og einkennum
í fælni, kvíðaköst (með eða án víðáttufælni), almennan
kvíða, áfallastreitu og áráttu og þráhyggju. Með fælni er átt
við óraunhæfan ótta sem veldur því að viðkomandi forðast
ákveðnar aðstæður, hluti eða atferli. Fælni getur komið fram
í erfiðleikum með að vera innan um annað fólk (félagsfælni),
sem hræðsla við að vera einn á berangri eða innilokun (við-
áttufælni) eða beinst að ákveðnum hlutum eða aðstæðum
eins og flugvélum, lyftum og kóngulóm (sértæk fælni). Kvíði
getur einnig fylgt fjölmörgum sjúkdómum bæði andlegum og
líkamlegum.
Hvað veldur kvíða?
Það er mjög einstaklingsbundið hvað við þolum mikla streitu
en algengt er að kvíði komi fram í tengslum við langvarandi
streitu og álag. Talið er að það sé einkum tvennt sem orsaki
kvíða. Annars vegar eru það ytri þættir eins og atburðir,
aðstæður eða kröfur sem þarf að mæta hvort sem þær koma
frá okkur sjálfum eða umhverfinu og hins vegar viðbrögð
okkar við þessu áreiti, það er að segja hvernig við upplifum og
túlkum það sem er að gerast.
Einkenni kvíða
Miklum kvíða fylgja yfirleitt sterk líkamleg einkenni og til-
finningar en kvíðinn hefur einnig áhrif á athygli, einbeitingu,
félagslega þátttöku og fleira. Ekki er óalgengt að fólk óttist að
það sé með einhvern líkamlegan sjúkdóm eða það sé að missa
tökin. Einnig er algengt að þeir sem eru kvíðnir óttist að líta
illa út í augum annarra og verða sér til skammar.
Hvað viðheldur kvíða?
Flestum er það mikilvægt að ráða við aðstæður en þeir sem
eru kvíðnir eiga margir sameiginlegt að gera miklar kröfur til
sín, hafa lítið sjálfstraust og eru fullvissir um vanmátt sinn
til að takst á við hlutina. Þeim hættir til að meta fjölmargar
aðstæður sem ógnvekjandi, hættulegar eða erfiðar, það er
að segja ofmeta hættuna en vanmeta bjargráð sín og getu.
Venjulegir hlutir eins og að vera innan um margt fólk eða fara
út í búð virðast meira ógnvekjandi en þeir eru í raun og veru
og þetta ofmat setur í gang kvíðaferli eða vítahring sem getur
verið erfitt að stöðva.
Talið er að það séu kvíðatengdar hugsanir sem viðhalda
kvíðanum en það eru einkum hugsanir um:
• Aðstæður sem enda illa
• Hugsanir um kvíða og líkamleg einkenni
• Hugsanir tengdar litlu sjálfstrausti
Rósa María Guðmundsdóttir
geðhjúkrunarfræðingur Reykjalundi
Inga Hrefna Jónsdóttir
sálfræðingur Reykjalundi
Ekki er óalgengt að fólk
óttist að það sé með einhvern
líkamlegan sjúkdóm eða það
sé að missa tökin
Kvíði