Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2016, Blaðsíða 14
14 Fréttir Erlent Vikublað 16.–18. febrúar 2016
Sími 568-5556 www.skeifan.is
Eysteinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000
eysteinn@skeifan.is / skeifan.is
Magnús Hilmarsson
Sölumaður / Sími: 896-6003
magnus@skeifan.is / skeifan.is
Sigurður Hjaltested
Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400
sigurdur@skeifan.is / skeifan.is
Föst
söluÞÓKNuN
Sími 568-
5556 www
.skeifan.is
1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá
RaðmoRðingjaR okkaR tíma
n 10 alræmdir morðingjar sem handsamaðir voru á þessari öld n Mannætur og sadistar
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
Baldur Guðmundsson
astasigrun@dv.is / baldur@dv.is
Geymdi líkin í
íbúðinni sinni
Nafn: Anthony Sowell
Fjöldi morða: 11
Handtekinn: 2009
Dæmdur: 2011
n Anthony Sowell er bandarískur
raðmorðingi sem kallaður var „Cleveland
Strangler“ af bandarískum fjölmiðlum.
Hann var handtekinn árið 2009 grunaður
um morð á ellefu konum. Lík þeirra höfðu
þá fundist á heimili hans í Cleveland. Sowell
var margheiðraður sjóliði en lét af störfum
á níunda áratugnum. Árið 1989 var hann
ákærður fyrir ofbeldi, tilraun til nauðgunar
og mannrán á barnshafandi konu og var í
fangelsi til ársins 2005. Hann fékk vinnu
um tíma og bjó í blokkaríbúð. Nágrannar
hans kvörtuðu reglulega yfir skelfilegri lykt
en ekkert virðist hafa verið gert í málunum.
Árið 2009 var hann aftur kærður fyrir
ofbeldi, þá nauðgun. Við húsleit á heimili
hans fann lögreglan tvö lík. Fleiri fundust í
bakgarðinum. Hann var árið 2011 dæmdur
fyrir 11 morð, líkamsárásir og 70 nauðganir.
Hann bíður aftöku.
100 blaðsíður af
glæpum en engin sýni
Nafn: Samuel Little
Fjöldi morða: 3 staðfest
Handtekinn: 2012
Dæmdur: 2014
n Þegar lögreglan hafði hendur í hári
Samuel Little átti hann að baki hundrað
blaðsíðna langa sakaskrá. Hann var boxari
og réðst á konur. Hann kýldi þær, kyrkti og
fróaði sér svo yfir lífvana líkama þeirra.
DNA-sýni tengdi hann við þrjú morð sem
framin voru á árunum 1987–1989. Little
er grunaður um að hafa myrt fleiri konur,
en engar sterkar sannanir þess efnis hafa
komið fram. Lögreglan hefur farið yfir
fjölmörg gömul mál til að kanna frekari
tengingar. Lögregla hafði hendur í hári hans
í Kenntucky þar sem hann var handtekinn á
heimili fyrir heimilislausa karlmenn vegna
fíkniefnaneyslu. DNA-sýni, það fyrsta sem
af honum var tekið, sýndi tengsl hans við
morðin og var hann framseldur til Los Ang-
eles í kjölfarið. Hann var 74 ára þegar réttað
var yfir honum en á fimmtugsaldri þegar
hann framdi glæpina. Hann var dæmdur til
fangelsisvistar fyrir lífstíð og getur aldrei
sótt um reynslulausn.
Leitaði upp
örvæntingarfullar
konur
Nafn: Mohan Kumar
Fjöldi morða: 20
Handtekinn: 2009
Dæmdur: 2013
n Indverski barnakennarinn Mohan
Kumar gerði sér dælt við ungar konur
sem áttu fáa aðra valkosti en hann.
Konurnar áttu ekki heimanmund eða
gekk illa að finna sér eiginmenn. Hann
vingaðist við þær, en þegar sambandið
hafði varað í einhvern tíma gaf hann
þeim blásýrupillur. Hann sagði þeim að
þetta væru getnaðarvarnartöflur. Hann
rændi þær svo, eða því litla sem þær
áttu. Hann var ákærður og dæmdur
til dauða fyrir 20 morð fyrir rétti í
Mangalore. Hann varði sig sjálfur.
Ógnaröldina þarf að rannsaka frekar
Nafn: Lonnie Franklin Jr.
Fjöldi morða: 11
Handtekinn: 2010
n Raðmorðinginn Grim Sleeper (Vægðarlausi svefninn) hræddi íbúa Los Angeles á árunum
1985–1988 og 2002–2007. Hann fékk nafngiftina vegna þess langa tíma sem leið á milli
morða og árása . Hann réðst á 11 konur og einn karlmann. Ein kona komst lífs af úr árásum
hans. Árið 2010, við rannsóknarleit, fannst DNA-sýni í kerfi lögreglunnar. Það var mjög
líkt DNA-sýnum sem fundist höfðu við rannsóknir á morðunum. Sýnið reyndist vera úr
Christopher Franklin, syni Lonnie David Franklin Jr. Lonnie var handtekinn í kjölfarið og
ákærður. Hann mun hafa skotið flest fórnarlömb sín, og voru flestar konurnar vændiskonur.
Lögreglan hefur óskað eftir aðstoð almennings við að finna og bera kennsl á fleiri einstak-
linga, en 1.000 ljósmyndir og nektarmyndir af þeim fundust á heimili hans við húsleit. 180
þeirra voru gerðar opinberar. „Þetta fólk er ekki grunað um neina glæpi, við vitum ekki einu
sinni hvort þau eru fórnarlömb. En við vitum þetta: Ógnaröld Lonnie Franklin í Los Angeles,
sem náði yfir tvo áratugi og skilur eftir sig að minnsta kosti 12 fórnarlömb, þarf að rannsaka
frekar,“ sagði lögreglustjórinn Charlie Beck. Franklin hefur enn ekki verið dæmdur, en hefja
átti réttarhöld í desember 2015.
Bílnúmerið kom
upp um hann
Nafn: Thiago Gomes da Rocha
Fjöldi morða: 39
Handtekinn: 2014
n Öryggisvörðurinn Thiago Gomes da
Rocha var handtekinn á mótorhjólinu sínu,
með stolin bílnúmer í Goiás í Brasilíu. Við
handtökuna fannst byssa og í kjölfarið féll á
hann grunur um að hafa myrt 39 einstak-
linga. Rocha er sagður hafa nálgast fólk á
mótorhjólinu sínu, kallað: „Þetta er rán“ og
skotið fólkið. Hann rændi það hins vegar
ekki. Yngsta fórnarlambið var 14 ára gamalt
og var myrt í janúar 2014. Rocha hefur
enn ekki hlotið dóm, en mun hafa reynt
sjálfsmorð í fangaklefa þar sem hann hefur
dúsað frá handtöku.