Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 5

Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 5
Apríl 1983 SIÐA 5 Guðrún Agnarsdóttir, lækn- ir skipar 2. sæti á lista Kvennaiistans í Reykjavík. Hún er gift Helga Valdimars- syni lækni og eiga þau 3 börn. Hver er þinn námsferill? Ég byrjaði í Grænuborg og fór síðan í Miðbæjarskólann og þaðan í Verslunarskóla íslands. Eftir stú- dentspróf frá V.í. 1961, lá leiðin í læknisfræði í Háskóla íslands og þaðan lauk ég prófi í febrúar ’68. Um haustið fór ég til Bretlands og var þar við framhaldsnám og störf í veirufræði við Hammersmith sjúkrahúsið í London og lauk síðar sérfræðiprófi frá Royal College of Pathologists í Bretlandi. Auk þjón- ustustarfa á sjúkrahúsum hef ég unnið við rannsóknir á hæggengum veirusjúkdómum og ónæmis- viðbrögðum gegn veirum. Eg kom síðan heim í september ’81 eftir 13 ára dvöl erlendis. Hvers vegna þessi áhugi á kvennapólitík? Ja, þegar ég lít til baka þá hef ég í rauninni alltaf haft þennan áhuga, öðrum þræði. í æsku hafði ég gam- an af að lesa bækur um stúlkur sem sem stóðu sig vel og höfðu hug- rekki og þrautseigju til að berjast fyrir því sem þær trúðu á. En áhugi minn á þeirri kvenfrelsisbaráttu sem verið er að heyja í dag byrjaði þó ekki fyrr en upp úr 1971. Þá fór ég smám saman að vakna til meðvitundar um þessi mál þótt ég tæki ekki virkan þátt í félagsstarfi. Eftir að ég kom heim til íslands var í mörgu að snúast og mér fannst ekki tímabært að skipta mér af þjóðmálum eftir 13 ára búsetu er- lendis. Fannst eðlilegt að doka aðeins við og skoða þjóðfélagið. Þó hafði ég strax áhuga á því fram- taki sem Kvennaframboð til borg- arstjórnarkosninga sýndi sl. vor en var þó aðeins áhugasöm úr fjar- lægð. En hvernig stóð á því að þú gafst kost á þér í slaginn? í gegnum sterkan áhuga minn á friðarmálum kynntist ég konum úr Kvennaframboðinu sem voru þar að auki áhugamanneskjur um Al- þingisframboð. Síðan leiddi hvað af öðru uns ég stóð frammi fyrir því að hrökkva eða stökkva-ég stökk. Er lausn kvennabaráttunnar fólgin í því að komast á þing? Nei, það er aðeins ein leið af mörgum fyrir konur til að hafa á- hrif á mótun samfélagsins. Það að rödd kvenna og viðhorf heyrast úr sölum Alþingis er ennfremur hvati og geíur ákveðið fordæmi fyrir þær sem á eftir koma. Það að konur verði sýnilegar á Alþingi eins og í öðrum stjórnarstofnunum hefur uppeldislegt gildi fyrir komandi kynslóðir. Við megum ekki gleyma því að það sem við gerum fyrir okk- ur sjálfar í dag þess njóta dætur okkar og synir á morgun. Hvernig geta konur kosið í sjórn- málum eftir kynferði - þegar kosið er um hugmyndir? Hugmyndir manna mótast að ýmsu leyti af kynhlutverki og okk- ar kynhlutverk er að ala börn og annast. Þess vegna höfum við kon- ur um margt önnur viðhorf og aðra reynslu en karlar. Kynhlutverkið ákvarðar ennfremur oft þau störf sem við vinnum en störfin móta líka reynslu okkar og hugmyndir. Ég tel að konur geti fundið það ríkan samnefnara í reynslu sinni, að þær geti staðið saman og leitað réttar síns. Aðrir gera það tæpast fyrir okkur. Þessi samstaða kvenna nú finnst mér skiljanleg og eðlileg. Við sækjum styrk, samúð og skiln- ing hver til annarrar meðan við fót- um okkur á ótroðnum slóðum. Ég lít samt á þetta sem tímabundna leið sem vonandi tekur minna en 50 ár frekar en 500. Hvað þá með þær konur sem berjast innan flokkanna? Það eru auðvitað margar leiðir færar konum til að koma sjónar- miðum sínum á framfæri og verða virkar í stjórnsýslu. Ég kasta engri rýrð á þær konur sem velja flokks- leiðir en óska þeim velgengni. Sú staðreynd hve fáar konur sitja á Alþingi þykir mér þó benda til þess að þær eigi ekki greiða leið þangað gegnum stjórnmálaflokkana. Þeir eru grónar valdastofnanir karla þar sem hefðbundin félagsgerð og bar- áttuaðferðir ríkja. Ef til vill eiga sjónarmið og nálgun kvenna erfitt uppdráttar þar þó er líklegt að margar ástæður komi til. Sjálferég hlynnt kvennaframboði á forsend- um kvenna þar sem konur hafa svigrúm og ráð til að móta stefnu eftir eigin höfði, stefnu sem tekur mark og mið af verðmætamati og reynslu kvenna. Ég hygg að það sem konur hafa fram að færa til þjóðmála verði hvað verðmætast þegar þær taka á málum upp á eigin spýtur en ekki sem eftirhermur karla. Hvernig geta íslenskar konur haft áhrif á gang heimsmála t.d. friðarmála? Sérhvert okkar hefur tækifæri til að leggja sitt lóð á vogarskálina til að breyta jafnvægi mála. Það er kostur að vera meðlimur lítillar þjóðar, þá gefast okkur tækifæri til að hafa enn meiri áhrif en einstak- lingar hafa meðal stórþjóða jafn- an. Við erum stærri hluti heildar hvert og eitt. Með því að standa saman um varðveislu friðar, taka- afstöðu með friði og gegn vígbún- aði jafnt heima fyrir og á erlendum vettvangi, þannig getum við lagt okkar lóð. Við vitum að vopnin eru óþörf ef óvináttu er éytt. Einörð samstaða lítillar þjóðar getur vakið athygli annarra þjóða. Við getum meira að segja lyft grettistökum ef vel tekst til. Hvernig ætlarðu að sinna þess- um þremur störfum: húsmóðir - læknir - þingmaður? Ætli ég hafi ekki skipti á læknis- og þingmannshlutverkinu ef til kæmi. Ég myndi þá leggja rann- sóknarstörf til hliðar næstu 4 árin nema á sumrin svona rétt til að halda mér við. Reyndar gildir hér það sama og áður, gagnkvæmur skilningur og það að gera raunsæj- ar kröfur til sjálfs síns og annarra. Ekki sakar það svo að vera nærsýn, þá er alltaf hægt að sjá heiminn og heimilið í hæfilegri fjarlægð með því að taka niður gleraugun - það hefur geðbætandi áhrif. Annars held ég að þetta hafist fyrst og fremst með skipulagningu, mikilli vinnu og því að hafa samábyrgð á verkunum.

x

Kvennalistinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn
https://timarit.is/publication/1236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.