Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 14

Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 14
14 SÍÐA Aprfl 1983 Stefna hinnar hagsýnu húsmóður komandi skóla. Með valddreifingu af þessu tagi viljum við stuðla að frjórra og fjölbreytilegra mannlífi sem tekur tillit til þess sem hver og einn hefur fram að færa þar sem samheldni og samábyrgð sitja í fyrirrúmi. SKÓLA- OG MENNINGARMÁL, HEILBRIGÐIS- OG FÉLAGSMÁL Framkvæm'd þessara mála snerta; mjög daglegt líf fólks í landinu og þó einkum og sér í lagi líf kvenna og barna. Þetta eru því málaflokk- ar sem við munum láta okkur miklu varða. Okkur þykir þeir hafa setið á hakanum undir forystu karla og á þessum sviðum þarf að taka til höndum engu síður en í atvinnu- og efnahagsmálum. Við viljum aukið fé til rekstrar skóla, þannig að tryggt verði að skóladagur barna í grunnskóla verði samfelldur, að börnum sé tryggt athvarf í skólanum og að skóladagur þeirra geti miðast við dagvinnutíma foreldra. Við viljum rammalöggjöf um framhaldsnám og fullorðinsfræðslu, sem tryggi öllum jafna aðstöðu til náms óháð búsetu. Við viljum jafnframt tryggja að hver skóli hafi sjálfsforræði við mótun skólastarfsins. Við viljum stóraukið framlag ríkisins til byggingar dagheimila. Við viljum að dagheimili verði raupverulegur valkostur fyrir börn og foreldra. Við viljum að fæðing- arorlof verði a.m.k. 6 mánuðir fyrir alla og að foreldrar skipti því með sér. Lög um félagslega þjónustu er nú að finna í fjölmörgum lagabálk- um og framkvæmd þeirra er í hönd- um hinna ýmsu ráðuneyta. Þetta leiðir oft til mistaka og ágreinings um hver beri ábyrgð á þjónustunni og hvernig hún skuli framkvæmd. Við viljum því rammalöggjöf í fél- agsmálum sem tryggi fólki félags- lega þjónustu í samræmi við þarfir og aðstæður. Við viljum þar með leysa af hólmi ýmis konar sérlög- gjöf sem tekur til hópa fólks t.d. vegna aldurs eða örorku og undir- strikar þar með sérstöðu þeirra og einangrun. Við viljum breytta stefnu í hús- næðismálum. Við viljum stóraukna byggingu leiguhúsnæðis annað hvort á vegum hins opinbera eða á vegum félagasamtaka. Endur- skoða verður lánakjör þeirra er eignast vilja húsnæði til eigin af- nota. Við viljum að fólk geti í reynd valið um það hvort það býr í leiguhúsnæði, byggir sjálft eða festir kaup á öðru húsnæði. Við viljum aukið fé til lista- og menningarmála, því að í blóm- strandi menningarlífi og vakandi menningarvitund felst fjöregg þjóðarinnar. Við viljum stuðla að nýsköpun í listum og auðvelda þátttöku fólks í hvers kyns list- sköpun. Þar sem ljóst er að konur búa iðulega við þrengri kost á þess- um sviðum sem öðrum viljum við leggja áherslu á að bæta aðstöðu þeirra til listsköpunar og menning- arstarfsemi. Við viljum ekki breyta útvarp- slögunum að því er tekur til einka- réttar Ríkisútvarpsins til útsend- inga en styðjum hugmyndir um fleiri rásir, landshlutaútvarp og beinan aðgang hópa eða félags- samtaka að ríkisfjölmiðlum. 1 samræmi við hugmyndir okkar um valddreifingu viljum við leggja niður flokkspólitísk ráð og stjórnir á öllum sviðum menningar og lista. EFNAHAGS- OG ATVINNUMÁL í efnahagsmálum stöndum við nú frammi fyrir miklum og bráðum vanda. Það er ljóst að framundan er barátta ólíkra hagsmunahópa um leiðir út úr öngþveitinu. í þeirri baráttu stöndum við misjafnt að vígi bæði hvað snertir áhrif og kjör. Við munum þar íyrst og fremst standa vörð um kjör kvenna, fjölmennasta láglaunahóps þessa lands. Við vitum að viðteknar aðferðir við lausn efnahagsmála hafa bitnað harðast á láglaunahópum. Við höfnum slíkum lausnum, því þær leysa ekki vandann og nú er svo komið að hætta er á atvinnuleysi og versnandi lífskjörum. Við höfnum lausnum sem byggja á vinnuþrælkun sem forsendu þess að hægt sé að lifa í landinu. Við höfnum lausnum sem fela í sér stór- lega skert kjör launafólks og sam- drátt í atvinnu. Við höfnum lausnum í atvinnu- og efnahags- málum sem byggjast á rányrkju á landi og auðlindum. Auðlindir lands okkar eru fyrst og fremst við sem byggjum þetta land, sú þekk- ing og tæknikunnátta sem við bú- um yfir, fiskimið okkar, gróður landsins, jarðvarmi og fallvötn. Við viljum annars konar nýtingu á þessum auðlindum okkar, þar sem annað verðmætamat en stundar- gróði og rányrkja er stefnumót- andi. Við viljum skilgreina hugtökin hagkvæmni og arðsemi á nýjan hátt. Við viljum að í arðsemisút- reikningum verði spurt - hver verða áhrif ákvarðana á líf fólks í nútíð og framtíð og hvernig sam- ræmist arðsemin verndun náttúru- auðlinda. Við viljum að tækni og þekking verði notuð í þágu okkar allra, að við stjórnum tækninni, en hún stjórni ekki okkur. Hagkvæmnisútreikningar sem byggja á ofangreindum forsend- um, en ekki á skjótfengnum pen- ingagróða eru undirstaða annars verðmætamats - verðmætamats sem setur mannleg gildi og félags- lega samábyrgð í öndvegi. Grundvallaratriði í allri efna- hagsstefnu hlýtur að vera að tryggja atvinnu og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar. Við mótun hennar leggjum við til grundvallar stefnu hinnar hagsýnu húsmóður, stefnu sem miðar að því að íslend- ingar geti í sem ríkustum mæli lifað á eigin framleiðslu og hagi útgjöld- um í samræmi við tekjur. Við viljum efnahagsstefnu sem miðar að því að við fullvinnum sjálf útflutningsvörur okkar í sam fjöl- breytilegustu formi og að við vinn- slu þeirra séu það fremur gæði en magn sem ráði ferðinni. Við viljum stórefla íslenskan smáiðnað og endurvinnsluiðnað af ýmsu tagi til innanlandsnota. Með því vinnst tvennt. í fyrsta lagi getum við þá dregið úr innflutningi neysluvarn- ings og í öðru lagi skapast aukin atvinna. Við viljum miða veiðar og fiski- skipastól landsmanna við þol fiski- stofna við landið, þannig að tryggt verði að við göngum ekki of nærri þessari auðlind, okkur sjálfum og afkomendum okkar til óbætanlegs tjóns. Við viljum fullvinna hér sjávar- afurðir og efla rannsóknarstarf- semi sem miðar að því að finna ný nýtanleg hráefni í sjávarútvegi og bæta nýtingu þess hráefnis sem við nú öflum. Við viljum efla gæðaeft- irlit með vinnslu sjávarafurða og að það verði framkvæmt af sjálfstæðri eftirlitsstofnun. Jafnframt verði það í vaxandi mæli unnið í sam- vinnu við starfsfólk fiskvinnslunn- ar. 1 1

x

Kvennalistinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn
https://timarit.is/publication/1236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.