Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 22
22 SÍÐA
Aprfl 1983
Sumarleikföng
í miklu úrvali
Búsáhöld og leikföng
Strandgötu 11-13
Sími50919
Þurrkun á saltfiski
söltun
frysting
útgerð
Símar: 7120,7107
Fiskverkun
Guðbergs
Ingólfssonar
ísstöðin H/F
Fjörður H/F
Eftirtaldir aðilar veittu
Kvennalistanum stuðning
við útgáfu þessa blaðs:
Fjarðarkaup hf, Trönuhrauni
Ferðamiðstöðin, Aðalstræti ,
Búsáhöid og gjafavörur, Glæsibæ
Bílamálun, Skeifunni 5
Lyfjabúð Breiðholts, Arnarbakka 4-6
Verslunin Valgarður, Leirubakka 36
Hárgreiðslu og Snyrtistofan Dy-Vy, Eddufelli 2
Verslunin Tinni, Fellagörðum
Broadway
Klippótek, hársnyrtistofa Eddufelli 2
Verslunin Kjöt og Fiskur, Seljabraut 54
Skyndimyndir, Hverfisgötu 18
Bókaútgáfan Bjallan hf.
Þumalína, Leifsgötu 32
Barnafataverslunin Bangsi
Happdrætti DAS, Aðalstreæti 6
Gullfískabúðin, Aðalstræti 4
Fornbókaverslun Kr. Kristjánssonar
Þórunn Arnadóttir, Tjörn, Alftanesi
Antique Gallery, Skólavörðustíg 20
Arnarhóll, veitingahús
Rolf Johansen & Co
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18
Verslunin Marella, Laugavegi 41
Trésmiðjan Víðir hf., Smiðjuvegi 2, Kóp.
Fornversl. Grettisgötu 31
Garðyrkjustöðin Laugabrekku Eyjafirði
Bílasalan hf. Fordumboðið Strandgötu 53
Bautinn - Smiðjan
Kaupfélag Svalbarðseyrar
Teiknistofan Stíll
Pedromyndir Ijósmyndaþjónusta
Ofnasmiðja Norðurlands h/f
Filmuhúsið Ijósmyndavörur
Búrið s/f, Strandgötu 37
Heilsuhornið, Skipagötu 6
Brauðstofan, Skólastíg 5
Verslunin Ásbyrgi Akureyri
Rabb að norðan
Senn líður að Alþingis-
kosningum. Sjaldan hafa
kjósendur átt fleiri val-
kosti. í Norðurlandskjör-
dœmi eystra eiga þeir um
sex lista að velja. Það er
búið að fara mörgum
orðum um þann mikla
„efnahagsvanda“ sem ís-
lenska þjóðin eigi við að
stríða. Nú verðurað vanda
valið.
Einn þessara lista er einvörð-
ungu skipaður konum. Þessi listi
kom seint fram. Prófkjöri varð því
ekki við komið, en ekki er mér
kunnugt um annað en að góð ein-
ing sé um skipan hans, þótt ætla
mætti að valið yrði nokkuð handa-
hófskennt á svo skömmum tíma.
Frambjóðendur þessa lista hafa
hvorki „flokksapparat" né „kosn-
ingavél“ á bak við sig og að sjálf-
sögðu ekkert fjármagn. Það verður
því ekki farið með lúðrablæstri eða
gamanvísnasöng um kjördæmið.
Áhugasamir stuðningsmenn og
málstaðurinn verða að duga.
En við höfum þá trú að nú sé mál
að konur verði hafðar meira með í
ráðum og taki meiri þátt í ábyrgð á
stjórnun þjóðfélagsins. Konur eru
vanar að fara með fjárreiður
heimilanna og haga þá velflestar
innkaupum sínum eftir fjárhag
hverju sinni, láta enda ná saman
fremur en stofna til skulda. Skuldir
þarf alltaf að borga.
Þessari reglu hefir því miður
ekki verið fylgt við stjórnun íslands
á undanförnum árum.
Þórarinn Björnsson skóla-
meistari, lét þess eitt sinn getið í
ræðu að hann áliti að íslensk æska
settist of ung að veisluborði lífsins.
Mér flýgur í hug að íslenska þjóðin
hafi sest of snemma að veisluborði
þegar kreppunni fór að létta og
stríðsgróðinn flæddi yfir þjóðina.
Við þetta veisluborð viljum við svo
sitja áfram.
En nú harðnar í ári og ég held að
mér sé óhætt að fullyrða að nú sé
veislukostum að minnsta kosti mis-
skipt. Einstæðar mæður og lág-
launafólk yfirleitt getur ekki veitt
sér neinn munað. Er ekki tími til
kominn að við förum að temja okk-
ur einfaldari lífsmáta.
Byggingaframkvæmdir undan-
farna áratugi hafa verið miklar.
Mikill hluti fólks býr í eigin húsnæ-
ði. Þetta húsnæði er rúmgott og vel
búið að öllu leyti. Það er vel. En
hvað hefir þetta kostað? Eitt er víst
að efnaminna fólk hefir þetta kost-
að óheyrilega vinnu hvar sem hana
hefir verið að fá. Skuldabagginn
fylgir á eftir. Það þarf meiri vinnu
til að borga þá víxla. Foreldrar sem
eru þrúgaðir af fjárhagsáhyggjum
og örþreyttir af vinnu eru ekki á-
kjósanlegir uppalendur barna,
fjölskyldulífinu er hætta búin. Þá
víxla getur orðið örðugt að borga.
Margir spyrja eflaust: Hverju hald-
ið þið að það breyti þótt kvenna -
listarnir komi konum á þing?
Ég minnist þess að fyrir nokkr-
um árum háðu forráðamenn
Grensásdeildar Borgarspítalans
harða baráttu til að fá fjárveitingu
til sundlaugarbyggingar. Þá bar
það til að 2 eða 3 alþingismenn
þurftu að leita sér þar lækningar.
Er þeir komu til þingstarfa á ný
tóku þeir höndum saman og veittu
málinu brautargengi á Alþingi.
Þessir menn voru þó pólitískir and-
stæðingar en sameiginleg reynsla
kenndi þeim að skilja þörfina. Eftir
því sem konum fjölgar á þingi
hlýtur viðhorf þeirra og reynsla að
nýtast þar betur. Konur eiga margt
sameiginlegt hvar í flokki sem þær
standa. Eftir því sem raddir þeirra
verða fleiri verður meira tekið eftir
þeim.
Það gerast kannski engin krafta-
verk eða stökkbreytingar en við
megum ekki sofna á~ verðinum
heldur halda baráttunni áfram,
takmarkið er að karlar og konur
standi saman að stjórnun í minnstu
en ef til vill mikilvægustu einingum
þjóðfélagsins, heimilunum og að
æðstu stjórnun þjóðarinnar.
Þannig mun málum best borgið.
Hólmfríður Jónsdóttir.
Hef umboð og þjónustu fyrir
Datsun og Subaru.
Komiðog kynniðykkur
greiðsluskilmáiana.
Bifreiðaverkstæði
Sigurðar
Valdemarssonar
Ósevri 5,600 Akureyri,
s. 22500.
Stofuskilrúm.
Stigahandrið,
og nú smíðum
við stigana
líka.
Sími24842
Heimasími 22942
Húsgagnavinnustofa
Ármanns Þorgrímssonar
Lundi
ítillí
& ^SSs.
>