Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 11

Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 11
Aprfl 1983 StÐA 11 Kristín Halldórsdóttir, efsta kona á kvennalistan- um í Reykjaneskjördœmi, er fjögurra barna móðir og heimavinnandi húsmóðir með ótal verkefni utan heimilis. Kona sem hefur áhuga á að sameina heimil- isstörfin og þá vinnu sem hún hefur menntun og starfsreynslu til. Og áhuga á að taka þátt í að móta samtíðina. Að búa börnum okkar betri heim „Mérfinnst ég ekki geta skorist undan því að vera með, meðal annars vegna þess að ég hef betri aðstæð- ur en margar aðrar konur. Og mig langar til að taka þátt í að búa börnunum okkar betri heim. “ „Börnin hafa tekið þessu vel, þeim finnst ég að vísu vera mjög upptekin þessa dagana. Þau eru vanari því að pabbi þeirra sé í sviðsljósinu og barnauppeldið hefur meira verið á minni könnu. En ég er svo lánsöm að móðir mín býr hér hjá okkur og gott samband er milli hennar og barn- anna. Svo er eiginmaðurinn lista- kokkur og ekki einn af þeim karl- mönnum sem eldar bara veislu- mat á sunnudögum. Hlutverkaskipting kynjanna er að breytast. Sérstaklega hjá unga fólkinu. Feður eru farnir að axla ábyrgð í umönnun barnanna." Hvaða erindi á margra barna móðir á þing? „Okkar mat er að reynsla kvenna leiði af sér annað verð- mætamat en karla. Ástandið í dag er þannig að það er nauðsyn- legt að sjónarmið kvenna komi betur fram í sviðsljósið þegar á- kvarðanir eru teknar í þjóðmál- um. Til þess er stefnuskráin að kynna þau og kvennalistarnir að fylgja þeim eftir. Framtak kvennaframboðsins í Kristín Halldórsdóttir, efsta kona á Kvennalistanum í Reykjanes- kjördœmi. Reykjavík og á Akureyri í fyrra vakti athygli mína og forvitni og síðan hefur þetta verið að smá þróast. Ég hef alltaf haft áhuga á þjóðmálum og á pappírunum hafa konur og karlar sömu möguleika á að hafa áhrif á samfélagið, en reynslan sýnir annað. Og nú er þörf á að láta til sín heyra. Okkur konum hefur ekki tekist að koma okkar sjónarmið- um 'á framfæri og vera teknar gildar á okkar forsendum, fyrr en með kvennaframboðinu. Við mótumst óneitanlega mjög af því að vera þær sem ölum börn- in og önnumst þau. Starf kvenn- alistans er þess vegna allt öðru vísi en annað pólitískt starf og við leggjum áherslu á önnur mál.“ Kristín er stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri og tók auk þess kennarapróf frá Kennarask- ólanum eftir menntaskólanámið. Hún var barnakennari í tvö ár, hefur verið í kaupavinnu, vist, skógrækt, saltað síld, unnið í frystihúsi og verið au-pair í öðru landi. Hún hefur sem sagt starfs- reynslu sameiginlega með mörg- um öðrum konum. Sú vinna sem hún hefur þó lengst unnið utan heimilis er í blaðamennsku, bæði á dagblaði og vikublaði. Þessa starfsreynslu hefur hún nýtt sér með húsmóðurstarfinu. „Svo hef ég áratuga reynslu í að vera kona og mikilvægasta starfsreynslan mín er auðvitað fengin úr hús- móðurstarfinu." „Ég hef lifað hálfa ævina í sveit og hálfa ævina í þéttbýli. Hvort tveggja hefur haft áhrif á lífsvið- horfin. En áhugamálin eru helst að reyna á skrokkinn, ég fer eins oft og ég kemst á skíði, stunda blak einu sinni í viku allan vetur- inn, syndi þegar ég get og gæti vel hugsað mér meira af því tagi.“ Kristín hóf kosningabaráttuna trú þessum hugmyndum með því að fara með fjölskyldunni í viku- ferð á skíði norður í land til að byggja upp líkama og sál og treysta á sambandið við konurnar í Norðurlandskjördæmi eystra. Framundan er slagur sem hing- að til hefur einkum verið ætlaður körlum, en nú er húsmóðir og fjögurra barna móðir komin í framlínu fyrir nýju verðmæta- mati. í Flokkarnir eru ekki aðgengilegir konum Málmfríður Sigurðardóttir er efst á Kvennalista í Norðurlandskjördæmi ey- stra. Bláðið náði tali af henni sem snöggvast meðan hún beið á Akureyri eftir ferð fram í Kristnes þar sem hún er aðstoðarráðskona. Málmfríður er kona lágvaxin, reynsludrættir í andliti og augun votta greind hennar. Hún var lengi sigurvegari í spurningaþætti út- varpsins Veistu svarið? í vetur og vakti athygli fyrir skemmtileg svör og fjölbreytta þekkingu. Málmfríður Sigurðardóttir er ekkja eftir Harald Jónsson frá Ein- arsstöðum í Reykjadal, en þau bjuggu á Jaðri í sömu sveit. Málm- fríður á þar heima en aðrir nýta túnið sem hún og Haraldur höfðu undir. Þau eignuðust sjö börn. Jaðar er við þjóðveginn og á árum áður var þar bensínsala og áætlun- arbílarnir milli Húsavíkur og Ak- ureyrar fóru þar um og einnig Austurrútan, svo oft var þar margt um manninn. I dagbók Málmfríðar má sjá að eitt sinn um veturpart komu að meðaltali áttatíu manns á mánuði að Jaðri. Dæmi um ólaunuð störf húsmóðurinnar sem ekki eru hátt metin sem starf- sreynsla þegar út í atvinnulífið kemur. Hvar er þinn uppruni Málmfríður? - Ég er fædd á Arnarvatni í Mý- vatnssveit, dóttir Hólmfríðar Pét- ursdóttur frá Gautlöndum og Sig- urðar Jónssonar frá Arnarvatni. Ég er ein af ellefu systkinum sem öll eru á lífi í dag, elsta systir mín er áttræð. Á Arnarvatni var þríbýli og þar bjuggu margar kynslóðir undir sama þaki. Sú umönnun og fræðsla sem fólkið veitti okkur börnum verður seint fullþökkuð, var okkur góður skóli og merkileg lífsreynsla sem ég er afar þakklát fyrir nú. Æskuheimili mitt var í þjóðbraut og þar voru fáir dagar án gesta og margt mætra manna bar þar að garði sem ýmislegt mátti læra af. í mínum uppvexti var farskóli í Mý- vatnssveit, til skiptis á bæjum einn mánuð í senn og þar var börnunum safnað saman. Yfirleitt fengum við ekki nema 3 mán. kennslu á ári. Ung fór ég til Reykjavíkur og var þar í 'h dags vist hjá Sigríði Briem, kennara við Kvennaskólann í Reykjavík. Ég tók próf inn í 3ja bekk Kvennaskólans og lauk þar námi. Ætlaði reyndar í Samvinnu- skólann en það breyttist fyrir orð húsmóður minnar. Hvers vegna er nafið þitt á Kvenn- alistanum Málmfríður? - Þegar ég stóð frammi fyrir því að taka afstöðu til þess að vera í efsta sæti á Kvennalistanum, gat ég ekki annað en tekið þátt í þessu uppruna míns vegna. Mér varð hugsað til móður minnar og vissi hver hennar afstaða hefði orðið. Hún helgaði málefnum kvenna svo mikið af sín- um tíma. Foreldrar mínir voru mikið félagshyggjufólk. Móðir mín starfaði mikið í Kvenfélagi Mý- vatnssveitar og var í mörg ár for- maður í Kvenfélagasambandi Suður Þingeyinga. Meðan ég var með börnin ung fannst mér eðlilegt að láta þau og búið ganga fyrir. En í dag er ég fús til að leggja mitt af mörkum og vinna að því að fleiri konur komist á þing. Telur þú kvennaframboð vera framtíðarlausn fyrir þær konur sem vilja taka virkan þátt í stjórn- málum? - Ekki endilega. Ég sé það sem leið til að vekja athygli á nauðsyn þess að konur verði með þar sem ák- varðanir eru teknar. Ég er ekki þeirrar skoðunar að það sé konum að kenna að þær nái ekki fótfestu innan flokkanna. Mér finnst flokk- arnir hafa sýnt að þeir eru ekki aðgengilegir konum. Þeir hafa ekki kallað konur til samstarfs, sumir hafa haft tilburði til þess en lítil alvara verið að baki og konur hafa því miður of oft verið notaðar sem skrautfjaðrir á lista. Ég þekki það af eigin reynslu, ég var slík fjöður á lista Alþýðubandalagsins í kosn- ingum 1979, leyfði þeim að nota nafnið mitt en tók það skýrt fram að ég gengi ekki í Alþúðubanda- lagið. Mér finnst kominn tími til að mark sé tekið á viðhorfum og skoðunum okkar. Það finnst mér karlmenn ekki gera. Sá karl sem stendur fast á sinni skoðun er virtur fyrir það, þykir ákveðinn og fastur fyrir. Kona sem sýnir sömu tilburði í fylg ni við sínar skoðanir er hinsvegar álitin skass. Það er í raun ekki fyrr en á efri árum að kona er virt fyrir að hafa ákveðnar skoðanir og þá er það e.t.v. ellin sem spilar inní. Vonandi tekst konum og körlum í framtíðinni að vinna saman að því þjóðfélagi sem við viljum lifa í og skila börnum okkar í hendur. En eins og málin standa í dag dugar víst ekkert minna en kraftaverk. Hér kvöddum við Málmfríði Sig- urðardóttur enda rútan fram í Kristnes að leggja úr hlaði, kvöldið næstum á enda og á morgun nýr erill.

x

Kvennalistinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennalistinn
https://timarit.is/publication/1236

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.