Kvennalistinn - 01.04.1983, Blaðsíða 15
Apríl 1983
SÍÐA 15
Við viljum halda sveitum lands-
ins í byggð og skila komandi kyn-
slóðum betra landi. Við viljum
stefna að traustum landbúnaði sem
fullnægir innanlandsmarkaði.
Við viljum auka fjölbreytni
landbúnaðarafurða og fullvinna
þær hér. Við leit nýrra markaða
erlendis verður að bjóða íslenskar
landbúnaðarvörur sem sérstaka
gæðavöru.
Við viljum að vinnsla landbún-
aðarafurða verði sem næst fram-
leiðslustað. Með því er tryggt betra
hráefni og atvinna skapast í
dreifbýli umfram það sem nú er.
Við viljum ekki frekari stóriðju
hvorki innlenda né erlenda. Stór-
iðja hefur kostað okkur hundruð
milljóna í rekstrarstyrkjum, er-
lendum lánum og fríðindum ýmis
konar og hefur ekki skilað okkur
arði. Stóriðju fylgir byggðaleg og
félagsleg röskun og mengun af
ýmsu tagi. Hvort tveggja hefur ó-
fyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir land
og þjóð. Stóriðja er ekki atvinn-
uskapandi miðað við þann fjár-
magnskostnað sem henni fylgir.
Fram til aldamóta er búist við því
að a.m.k. 25 þús. manns komi út á
vinnumarkaðinn. Stóriðjuppbygg-
ing í samræmi við stórvirkjanaá-
ætlanir til sama tíma mundu aðeins
veita tæplega 6% af því fólki
atvinnu.
Við viljum því ekki frekari stór-
virkjanir heldur virkjanastefnu
sem miðar við okkar eigin þarfir.
Við viljum ekki frekari erlendar
lántökur til rekstrar óarðbærra
fyrirtækja. Við viljum að aukin
tækni verði nýtt til þess að stytta
vinnutíma án þess að rýra launa-
kjör.
Við viljum að tryggt verði að
tölvunotkun verði ekki til þess að
draga úr atvinnumöguleikum
kvenna.
Við viljum að grundvöllur hvetj-
andi launakerfa verði endur-
skoðaður og að við þá endur-
skoðun verði gæði og nýting hrá-
efnis metin til launa í stað hraða og
afkasta.
Við viljum að verðbætur á laun
verði reiknaður í krónutölu en ekki
hlutfallslega eins og nú er.
Við viljum atvinnustefnu sem
miðar að fullri atvinnu fyrir allt
vinnufært fólk í landinu og teljum
að vænlegasta leiðin til þess sé að
efla smáiðnað til innanlandsnota
og fullvinna hér útflutningsvörur
okkar, fisk og landbúnaðarvörur.
Áform um nýtt og betra samfé-
lag stoða þó lítt ef haldið verður
áfram á þeirri braut rányrkju og
umhverfismengnunar sem nú ógn-
ar öllu lífi á jörðinni. í stað þess að
ganga stöðugt á auðlindir jarðar-
innar verðum við að koma á jafn-
vægi milli manns og náttúru. Við
viljum nýta auðlindir lands og sjáv^
ar á þann veg að ekki verði gengið í
berhögg við lögmál náttúrunnar
eins og nú er gert með ofnýtingu
fiskistofna, ofbeit, fyrirhyggju-
lausri mannvirkjagerð og óhóflegri
umferð um viðkvæm landssvæði.
Við verðum hvert og eitt að vera
ábyrg fyrir umhverfisvernd og
marka verður ákveðna stefnu með
heildstæðri löggjöf um umhverf-
ismál og nýtingu auðlinda.
FRIÐAR OG
UTANRÍKIS'
MÁL
ísland er hluti af samfélagi þjóð-
anna og okkur ber að axla þá
ábyrgð sem því fylgir. í því samfé-
lagi er gæðum jarðar misskipt og
réttlæti fótum troðið. íslendingum
ber-að taka afstöðu á alþjóðavet-
tvangi gegn misrétti og kúgun í
hvaða mynd sem er.
Við viljum að íslendingar veiti
þá þróunaraðstoð sem þeim ber
samkvæmt samþykktum Sam-
einuðu þjóðanna og hagi ávallt
aðstoð sinni í samræmi við þarfir og
aðstæður íbúa á hverjum stað.
Vinna verður sérstaklega að úrbót-
um á aðstæðum kvenna og barna í
þriðja heiminum. Það er staðreynd
að auðævi jarðarbúa nægja til að
útrýma skorti - ef þau eru réttilega
notuð.
Nú er svo komið að lífi og um-
hverfi er ógnað af vígbúnaði sem á
engan sinn líka í veraldarsögunni.
Gjöreyðingarhættan er raunveru-
leg og vofir yfir okkur öllum. Fjár-
munum er sóað í vígbúnað meðan
hungruð börn hrópa á mat. Konur
vernda líf og viðhalda því og þess
vegna höfum við næma skynjun á
þeirri ógn sem mannlífinu stafar af
síaukinni söfnun tortímingar-
vopna. Okkur konum ber því
frumskylda til þess að sporna við
þessari geigvænlegu þróun.
1 áratugi hefur íslendingum ver-
ið skipt í tvær andstæðar fylkingar
með og á móti aðild að hernaðar-
bandalagi, með og á móti veru er-
lends hers í landinu og stjórnmála-
flokkar hafa notað það blygðunar-
laust sér til framdráttar. Á sama
tíma hefur vígbúnaður stórveld-
anna margfaldast og ógnar nú öllu
lífi á jörðinni. Spurningin er ekki
eingöngu um þátttöku okkar í
hernaðarbandalagi eða dvöl hers
hér á landi, spurningin er um líf eða
dauða. íslenskar konur verða því
að sameinast í baráttu fyrir afnámi
allra hernaðarbandalaga, afvopn-
un og friði.
Við viljum að íslensk stjórnvöld
taki afstöðu gegn vígbúnaði bæði
heima fyrir og á alþjóða vettvangi,
því ógnarjafnvægi leiðir ekki til ör-
yggis. Við viljum að stjórnvöld
beiti áhrifum sínum hjá alþjóða-
samtökum til eflingar friði og al-
Þjóðlegri réttarvernd.
Við viljum tryggja að kjarnorku-
vopn verði aldrei leyfð á íslandi.
Við viljum að íslensk efnahagslög-
saga verði friðuð fyrir kjarnorku-
vopnum og umferð kjarnorkuknú-
inna farartækja. Við mótmælum
harðlega losun kjarnorkuúrgangs
og eiturefna í hafið vegna þeirrar
hættu sem öllu lífríki og þar með
fiskistofnum er búin með slíku at-
hæfi.
_ Við viljum draga úr umsvifum
erlends hers meðan hann er hér á
ÍáNffi’ því aukin hernaðarumsvif
hvar sem er í heiminum auka á víg-
búnaðarkapphlaupið. Við viljum
strangt eftirlit með starfsemi hers-
ins. Við viljum að stjórnvöld skýri
undanbragðalaust frá framkvæmd-
um og herbúnaði Bandaríkjahers
hér, Við viljum minnka áhrif hers-
ins í íslensku efnahagslífi svo tryggt
vérði að afstaða til hans mótist ekki
af efnahagshagsmunum. Við
viljum að íslenskt atvinnulíf sé
óháð veru hersins.
Við styðjum hugmyndir um að
ákveðin svæði verði lýst kjarnorku-
vopnalaus og njóti alþjóðlegrar
viðurkenningar, því við teljum það
viðleitni til afvopnunar á jörðinni
allri. Á þeim grundvelli viljum við
að íslensk stjórnvöld stuðli að því
að Norðurlöndin í heild verði lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði.
Við styðjum friðar- og mannrétt-
indabaráttu hvar sem er í heimin-
um. Rödd íslands á að hljóma í
þágu friðarins. Pað eitt er í sam-
ræmi við sögu þjóðarinnar og
þannig teljum við að framtíð barna
okkar sé best tryggð.
Við viljum vinna með öllum
þeim konum og körlum sem telja
vitfirrt vígbúnaðarkapphlaup og
ábyrgðarlausa umgengni við lífríki
og náttúruauðlindir jarðar vera
mestu ógnir sem steðja að mann-
kyninu í dag. Hvort tveggja er af
mannavöldum og hvort tveggja má
stöðva.
Að_þessu viljum við vinna.