Fréttablaðið - 05.04.2017, Side 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Bjarni
Benedikts-
son verður
að óska eftir
fundi með
Theresu May,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, hið
fyrsta til að
tryggja
hagsmuni
Íslendinga
við útgöngu
Breta úr ESB.
Við þurfum
að hafa minni
áhyggjur af
siðferðisþreki
smáfiskanna
og passa
okkur frekar
á hákörl-
unum.
Þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafði verið forsætisráðherra í tvo mánuði hafði hann átt einkafundi með framkvæmdastjórum Sam-
einuðu þjóðanna og NATO, æðstu ráðamönnum ESB,
forsætisráðherrum Danmerkur, Noregs, Svíþjóðar og
Finnlands, formanni landsstjórnarinnar á Grænlandi
og lögmanni Færeyja. Hann hafði fundað með for-
seta Finnlands og forsætisráðherra Rússlands. Bjarni
Benediktsson hefur nú verið mánuði lengur forsætis-
ráðherra en hefur ekki enn átt fund með neinum
þjóðarleiðtoga. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn fór með
forsætisráðuneytið í hátt í tvo áratugi yfir síðustu alda-
mót, gættu forsætisráðherrar hans þess að þeir hefðu
tökin á efnahagsmálunum og þjóðaröryggismálunum.
Nú stýrir Benedikt Jóhannesson efnahagsmálunum og
Guðlaugur Þór Þórðarson fer með varnar- og öryggis-
mál.
Það eru frávik frá íslenskri hefð að forsætisráðherra
leiki svo smátt hlutverk í alþjóðasamskiptum þjóðar-
innar. Hann gerði vissulega góða ferð til New York og
Washington til að vekja athygli á alþjóðlegri jafnréttis-
baráttu en á hvorugum staðnum hitti hann æðstu ráða-
menn.
Fram undan eru risastórar áskoranir þar sem for-
sætisráðherra verður að gera sig gildandi. Samskipti
við stærstu útflutningsmarkaði eru að taka miklum
breytingum. Það verður að tryggja aðgengi sjávarafurða
að breskum markaði, markaðsstöðu íslenskra fyrirtækja
í Bretlandi verður að festa, réttindi íslenskra náms-
manna í Bretlandi eru í hættu.
Bjarni Benediktsson verður að óska eftir fundi með
Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, hið fyrsta til
að tryggja hagsmuni Íslendinga við útgöngu Breta úr
ESB. Í slíkri ferð á hann að hafa með sér sérstaka sendi-
nefnd úr viðskiptalífinu, háskólasamfélaginu og vísinda-
geiranum og hitta í leiðinni alla helstu ráðamenn og
hagsmunaaðila. Þá skipuleggi hann fundi með Donald
Tusk og Jean-Claude Juncker hjá Evrópusambandinu
til að passa upp á að rödd Íslendinga heyrist þegar EES-
samstarfið breytist við útgöngu Breta. Það er ekki eftir
neinu að bíða, en Bjarni þarf að fara af stað.
Hvað gerir Bjarni?
Kristján Guy
Burgess
alþjóðastjórn-
málafræðingur
Nánari upplýsingar og skráning á si.is
Aðgangur er ókeypis.
Hvaða aðferðum er hægt að beita
til að auka þekkingu og færni
starfsfólks innan matvælagreina?
Opin ráðstefna á vegum Matvælalandsins Íslands.
M
AT
VÆLALANDIÐ
ÍSLAND
FJÁRSJÓÐUR
FRAMTÍÐAR
ÞEKKING OG FÆRNI Í
MATVÆLAGREINUM
HÓTEL SÖGU, 2. HÆÐ
FIMMTUDAGINN
6. APRÍL
KL. 11.30-16.00
D jöfullinn danskur höfum við haft á orði allt frá dögum einokunar danskra kaupmanna og höfum enn um sitthvað sem okkur þykir of slæmt til þess að það geti verið á okkar ábyrgð. Þannig er það t.d. með þá
aðför sem gerð var að örorkulífeyrisþegum af hálfu
hins opinbera í kjölfar skýrslu Ríkisendurskoðunar
frá því í febrúar 2013. Þegar betur var að gáð, árum
og lagasetningu síðar, reyndist skýrslan meira en
lítið vafasöm, byggð á umdeildri danskri skýrslu og
niðurstöður yfirfærðar á íslenskt samfélag án nánari
athugana. Auk þess voru niðurstöður Ríkisendur-
skoðunar byggðar á þýðingarvillu.
Auðvitað bar því ekki sála ábyrgð í þessu máli
heldur mátti rekja allt saman til þýðingarvillunnar. Því
fylgir kannski léttir fyrir embættismenn sem þrýstu á
lagabreytingar sem fólu í sér hertar eftirlitsheimildir
til handa Tryggingastofnun. Jafnvel léttir fyrir þing-
mennina sem samþykktu lögin og höfðu jafnvel uppi
gífuryrði um örorkulífeyrisþega sem ýttu undir for-
dóma í samfélaginu. En það er engin bót í því fyrir þá
sem urðu fyrir óréttlæti af völdum þessara vinnubragða
að djöfullinn hafi eiginlega alltaf verið danskur eða að
minnsta kosti þýðingarvilla í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar og því alls engum um að kenna.
Það er vandséð að einhver annar þjóðfélagshópur
hefði mátt þola viðlíka vinnubrögð, afleiðingar þeirra
og svo yfirklór en einmitt örorkulífeyrisþegar. Lögin
leiddu í fyrsta lagi til þess að Tryggingastofnun beitti
auknum heimildum til aðgerða á hendur viðskipta-
vinum sínum er varða persónuréttindi þeirra og hags-
muni. Og í öðru lagi, en þetta er ekki síður alvarlegt, þá
áttu þessi vinnubrögð Ríkisendurskoðunar stóran þátt í
því að réttlæta frestun á löngu tímabærum kjarabótum
þessa hóps. Ríkisendurskoðun hefur reyndar ekki, að
minnsta kosti þegar þetta er skrifað, getað fundið það
hjá sér að biðja örorkulífeyrisþega afsökunar á þessu
enda er djöfullinn danskur eins og allir Íslendingar vita.
Reyndar er erfitt að verjast þeirri hugsun að þetta mál
kristalli viðhorf stofnana á borð við Ríkisendurskoðun
og Tryggingastofnun auk hins háa Alþingis til örorkulíf-
eyrisþega. Viðhorfið virðist gegnsýrt af efasemdum og á
stundum er eins og stjórnendur greiði örorkulífeyri úr
eigin vasa en ekki sameiginlegum sjóðum þjóðarinnar
sem hluta af sáttmála sem á meðal hennar ríkir. Þetta
þekkja flestir örorkulífeyrisþegar og kannski er frekar
ástæða til þess að leggjast í skýrslugerð um stofnan-
irnar, innviði þeirra og starfshætti fremur en viðskipta-
vinina. Stjórnendur stofnana og stjórnmálamenn sem
oft hafa á orði mikilvægi þess að við lærum af hinum og
þessum mistökum þeirra ættu kannski að tileinka sér
þann lærdóm reynslunnar. Við þurfum að hafa minni
áhyggjur af siðferðisþreki smáfiskanna og passa okkur
frekar á hákörlunum.
Djöfullinn
danskur
Ef einhvern tíma var tilefni
Í bréfi Steingríms Ara Arasonar til
Davíðs Oddssonar frá árinu 2002,
þar sem hann segir sig úr nefnd um
einkavæðingu bankanna, segir að
ástæða úrsagnarinnar séu vinnu-
brögð sem leiddu til þess að áhuga-
samir kaupendur voru sniðgengnir
þrátt fyrir hagstæðari tilboð í
Landsbankann. Í bréfinu kallar
Steingrímur eftir rannsókn óhlut-
drægs aðila á einkavæðingunni.
Það er áfellisdómur yfir íslenskum
stjórnmálum að engin rannsókn
fari af stað þegar nefndarmaður
af þessu kaliberi kallar eftir því.
Þess í stað er það verkefni stjórn-
málanna, fimmtán árum síðar, að
samþykkja rannsókn einkavæð-
ingarinnar. Ætlar forsætisráðherra
að feta í fótspor forvera síns og
humma þá kröfu fram af sér?
Minnisleysið
Það eru margir úr viðskiptalífinu
og stjórnmálunum sem muna sitt-
hvað merkilegt frá einkavæðingar-
ferlinu. Fáir hafa hins vegar stigið
fram. Í blaðinu í dag er greint frá
því að Valgerði Sverrisdóttur hafi
verið greint frá rökstuddum grun-
semdum um að Société Générale
hafi aldrei raunverulega ætlað að
koma að kaupunum á Búnaðar-
bankanum. Í síðustu viku sagðist
hún aftur á móti bæði hissa og sàr
yfir þeim blekkingum sem beitt
var við kaupin. Kannski er hún
búin að gleyma fundinum fyrir
fjórtán árum – eða kannski kemur
minnisleysið fram á óvenju heppi-
legum tímapunkti.
snaeros@frettabladid.is
5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r12 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B l a Ð I Ð
SKOÐUN
0
5
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:5
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
C
-6
1
8
C
1
C
9
C
-6
0
5
0
1
C
9
C
-5
F
1
4
1
C
9
C
-5
D
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K