Fréttablaðið - 05.04.2017, Blaðsíða 13
Bjarni, mig hefur lengi langað til þess að tjá þér aðdáun mína á því hvernig þú hefur tekið því
þegar ég hef dregið þig yfir naglabrett-
ið í skrifum mínum. Ég hef hætt þig,
gert grín að þér, ásakað þig um ljóta
hluti og gert lítið úr þér og stundum
hefur mér tekist ágætlega upp við þá
iðju. Undantekningalaust hefur þú
tekið þessu með bros á vör. Ég er hand-
viss um að ef hlutverk okkar hefðu
víxlast hefði mig skort bæði þá stærð
og jafnvægi sem þarf til þess að halda
reisn sem þú gerðir hins vegar eins og
að drekka vatn. Sá grunur hefur að vísu
leitað á suma að þetta sé vegna þess
að þér sé alveg sama, þú hafir í raun
réttri engan áhuga á pólitík. Ég kaupi
það ekki.
Í byrjun nítjándu aldar var Baldvin
Einarsson einn af baráttumönnunum
fyrir sjálfstæði Íslands. Hann dó hins
vegar fyrir aldur fram þrjátíu og eins
árs, árið 1833. Nafni þinn Thoraren-
sen byrjaði minningarljóð eftir hann
á þessum orðum:
Ísalands
óhamingju
verður allt að vopni
eldur úr iðrum þess
ár úr fjöllum
breiðum byggðum eyða
Sagan segir að hann hafi ekki kom-
ist lengra vegna þess að sorgin yfir-
bugaði hann, lokaði ljóðabarkanum
algjörlega. Jaxlarnir sem börðust fyrir
sjálfstæði þjóðarinnar voru nefnilega
tilfinningamenn, þeim stóð ekki á
sama. Við Íslendingar höfum búið í
okkar harðbýla landi í ellefu hundruð
ár og við værum ekki hér núna nema
vegna þess að við vorum heppin af
og til. Það hafa hins vegar komið þær
stundir þegar það var ósköp eðlilegt
að álykta sem svo að óhamingju þess-
arar þjóðar yrði gjarnan allt að vopni.
Ein af þessum stundum var þegar efna-
hagslíf þjóðarinnar hrundi árið 2008.
Menn greinir á um smáatriði þess sem
gerðist, en eitt er víst að bankarnir fóru
á hausinn af því þeir tóku áhættu sem
þeir höndluðu ekki og við það fór
samfélagið á hausinn. Það vill nefni-
lega svo til að áhættan sem bankarnir
tóku var aðallega á kostnað samfélags-
ins en ekki eigenda bankanna eða
stjórnenda.
Bjarni, það er hægt að draga alls
konar ályktanir af hruninu og heill
bálkur þeirra lýtur að bönkunum:
Bankar eru grundvallarstofnanir
samfélagsins. Þeir sem hafa yfirráð
yfir bönkum geta nýtt sér það til
þess að kreista fé út úr samfélaginu
næstum eins og þeim sýnist. Bankar
taka áhættu á kostnað samfélagsins
engu síður en eigenda þeirra. Og svo
má lengi telja. Það er því svo sannar-
lega mál allrar þjóðarinnar hverjir eiga
bankana. Þegar eignarhald á banka
skiptir um hendur og þjóðinni er sagt
að henni komi ekki við hverjir nýir eig-
endur séu ber að líta á það sem með-
vitaða tilraun til þess að koma af stað
vopnaðri byltingu.
Nú kemur að ástæðu þess að ég er
að ergja þig með þessu bréfi. Hún er sú
að þér virðist standa of mikið á sama, í
það minnsta í samanburði við frelsis-
hetjurnar sem við viljum bera forsæt-
isráðherra okkar saman við. Þeir grétu
með þjóð sinni þegar illa gekk í stað
þess að reyna að græða á eymd hennar
og þeir hlógu með henni í stað þess að
hlæja að henni. Ég er ekki að halda því
fram að þú gerir þetta en þögn þín um
mikilvæg mál og yfirlýstur vilji þinn til
þess að gleyma þeim býður svo sann-
arlega heim þeim misskilningi. Þú
verður að taka þig saman í andlitinu
og leiðrétta þetta vegna þess að þú ert
í hjarta þínu hlýr maður og vilt ekki að
þjóðin þín sé þjökuð af áhyggjum og
angist sem á rætur sínar í misskilningi.
Nú ætla ég að gefa þér nokkur dæmi
um það sem þú þarft að leiðrétta, helst
með rauðum penna:
1. Íslendingar standa á öndinni yfir því hvernig S-hópurinn plataði
Búnaðarbankann út úr þjóðinni og
fylgdi honum síðan inn í Kaupþing og
notaði aðstöðu sína þar til þess að fylla
vasa sína fé, meðal annars með því að
blekkja heiminn til þess að trúa því
að bankinn stæði betur en raun bar
vitni, ef marka má Hæstarétt Íslands.
Einhvern veginn finnst þjóðinni eins
og þú látir þér þessa sögu í léttu rúmi
liggja og hafir ekki séð ástæðu til þess
að fordæma verknaðinn af þeim krafti
sem leiðtogi þjóðarinnar ætti að gera.
Þjóðin var blekkt af S-hópnum. Ef
leiðtoga þjóðarinnar er umhugað um
líðan hennar verður hann að fordæma
S-hópinn af því afli að neistar fjúki.
Það getur hann að vísu ekki nema
honum finnist athæfi hópsins þess
eðlis að það kalli á fordæmingu. Ég
efast ekki um að þú hafir sömu skoðun
á S-hópnum og þjóðin almennt, svo lát
oss heyra. Síðan á þjóðin erfitt með
að skilja hvernig stendur á því að þú
virðist ekki skynja mikilvægi þess að
fylgja eftir uppgötvuninni á svínaríi
S-hópsins með rannsókn á einkavæð-
ingum bankanna allra, bæði þeim fyrri
og seinni.
Þegar ég hef spurt þá sem gerst
þykjast vita hvernig standi á þessum
áhugaskorti þínum fæ ég bara eitt svar
sem er að fjölskylda þín hafi verið á
bólakafi í bankaskítnum og ef það yrði
farið að moka þann flór, þá myndu
ýmsir úr henni enda í fjóshaugnum.
Viðmælendur mínir benda í því sam-
bandi á eignarhald fjölskyldu þinnar
á Íslandsbanka og setu föðurbróður
þíns og viðskiptafélaga til margra ára í
stjórn hans og því hvernig ykkur tókst
að selja ykkur út úr bankanum nokkr-
um klukkustundum áður en hann fór
á hausinn. Ég stend í þeirri trú að þetta
sé líklega allt rangt eða í það minnsta
orðum aukið. Þú verður hins vegar að
tjá þig til þess að kveða niður þennan
róg og síðan að sjá til þess að við vitum
að þú viljir að einkavæðingin verði
rannsökuð í tætlur.
2. Fyrir rétt rúmum átta árum fór íslenskt efnahagslíf á hliðina.
Bankarnir voru reknir með vöxt og
skammtímagróða í huga frekar en
öryggi og stöðugleika. Áhættan sem
þessu fylgdi var að mestu á kostnað
samfélagsins þannig að þegar bank-
arnir fóru á hausinn fór samfélagið að
mestu leyti sömu leið. Dómstólar hafa
komist að þeirri niðurstöðu að rekstur
bankanna hafi undir það síðasta
markast glæpsamlegum blekkingum,
sem hafi verið ætlað að sannfæra
heiminn um að keisarinn væri ekki
nakinn. Það er því ljóst að þeir sem
eiga og stjórna bönkum eru ekki yfir
það hafnir að taka áhættu á kostnað
samfélagsins né skirrast þeir við því
að plata samfélagið til þess að ná sínu
fram. Því er það sjálfsögð og réttlát
krafa að eignarhaldi banka á Íslandi
sé aldrei leynt og að samfélagið hafi
úrslitaáhrif á það hverjir eigi bankana.
Nú er hins vegar búið að selja
drjúgan hluta Arion banka nokkrum
vogunarsjóðum og Goldman Sachs
sem eru að öllum líkindum að kaupa
fyrir aðra ónefnda. Nú ef raunveru-
legir eigendur eru vogunarsjóðirnir
og Goldman Sachs þá er bankinn að
færast í hendur þeirra sem vinna fyrir
saltinu í grautinn sinn með því að taka
þá tegund áhættu sem kom samfélag-
inu á hausinn árið 2008, ef ekki þá er
verið að leyna eignarhaldi. Það er ljóst,
Bjarni, að samfélaginu finnst ekki að
þú gangir vasklega fram í að upplýsa
þetta mál og sýnir því grunsamlegt
fálæti. Það eru meira að segja þeir
sem halda því fram að það sé vegna
þess að fjölskylda þín sé að undirbúa
að kaupa sig inn í bankakerfið öðru
sinni, til dæmis með því að láta Borgun
kaupa Íslandsbanka með aðkomu líf-
eyrissjóða. Þetta verðurðu að kveða í
kútinn sem fyrst.
3. Það ætlar seint að þagna kliður-inn sem hlaust af sölu Lands-
bankans á Borgun. Sagan segir að
kaupendur hafi fengið hlutinn fyrir
slikk og meðal þeirra hafi verið menn
úr frændgarði þínum. Í einni útgáf-
unni, nokkuð vinsælli, segir að fyrst
hafi gengið á fund stjórnenda Lands-
bankans hópur manna frá Borgun
og falast eftir hlutnum en ekki haft
erindi sem erfiði. Nokkru síðar leitaði
annar hópur frá Borgun til Bankans
og í þetta skiptið var Einar Sveinsson,
föðurbróðir (þinn) fjármálaráðherra, í
för með þeim og í það skiptið var þeim
tekið opnum örmum og hluturinn
var seldur þeim á þann máta að það
er varla hægt að líta á það sem annað
en gjafagjörning; Landsbankinn gaf
þessum nýja hópi mikil verðmæti.
Sagan segir líka að frændsemi þín við
Einar Sveinsson og staða þín sem fjár-
málaráðherra sé ástæða þess að svona
hafi verið staðið að verki. Þetta þarftu
að leiðrétta ef þess er kostur.
4. Þessi gróusaga, sem er sú síðasta sem ég rek hér, fjallar um rútur
sem aka farþegum til og frá flugstöð-
inni í Keflavík. Fyrirtækið utan um
þær ku vera í eigu föður þíns og systk-
ina og segir sagan að það sé enginn
einn aðili sem hafi notið meira undan-
þágu frá fullum virðisaukaskatti sem
hlotnaðist rútufyrirtækjum heldur
en einmitt þessi gullmoli fjölskyldu
þinnar. Ein aðalástæða þess er að þetta
fyrirtæki hefur einkaleyfi á því að flytja
farþega til og frá flugstöðinni í Kefla-
vík. Einkaleyfið á, samkvæmt sögunni,
að hafa fengist hjá ISAVIA þar sem
Ingimundur Sigurpálsson er stjórnar-
formaður. Ingimundur er náinn vinur
fjölskyldu þinnar og varð stjórnarfor-
maður í umboði fjármálaráðherra
sem þá varst þú, Bjarni Benediktsson.
Í fullri lengd sinni er þessi saga með
kafla um það þegar þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins reyndu að sjá til þess
að Ingimundur yrði ekki endurkosinn
stjórnarformaður á aðalfundi ISAVIA
um daginn, vegna þess að þetta liti
illa út fyrir þig og fjölskyldu þína en
þú hafir yppt öxlum af því að þér sé
sama. Þetta er eitt af því sem kallar á
rauðan penna til leiðréttingar.
Bjarni, ég hef ekki rakið þessar sögur
vegna þess að ég telji að það sé líklegt
að þær séu sannar heldur vegna þess
að það hittast varla svo tveir eða fleiri
Íslendingar í dag án þess að þær séu
sagðar.
Þegar þú leggst í leiðréttingar á
gróu sögum af þeirri gerð sem hér hafa
verið raktar er mikilvægt að gera það af
einlægni og þannig að það skiljist hvað
þú ert að reyna að segja. Ekki ætla ég
mér þá dul að ráðleggja þér um það
hvernig sé best að standa að því, en
get gefið þér dæmi um það hvernig á
ekki að gera svona lagað: Þegar Dagur
B. Eggertsson var spurður í Silfrinu um
daginn hvað honum fyndist um þau
ummæli þín að borgin yrði að gyrða
sig í brók í húsnæðismálum svaraði
hann því til að sér fyndist það „ódýrt“.
Hvað á maðurinn við?
Húsnæðismál í borginni, sem og
víða annars staðar á landinu, eru í
ólestri. Þegar maður er með buxurnar
á hælunum af hvaða ástæðu sem er
stendur manni ekki annað til boða en
að gyrða sig. Hann fór í vörn og með
því fór einlægnin út um gluggann,
sem var einfaldlega ekki í boði. Bjarni,
þetta er gott dæmi um það hvað það
getur verið hættulegt fyrir pólitíkus að
hrökkva í vörn.
Síðar í þættinum sagði Dagur: „Við
erum með sérstaka áherslu á sam-
vinnu við uppbyggingaraðila sem eru
ekki að byggja í hagnaðarskyni.“ Hann
er nýbúinn að skrifa undir samning
við Ólaf Ólafsson S-hóps foringja um
að byggja 320 íbúðir fyrir Borgina. Þar
af leiðandi er enginn möguleiki fyrir
venjulegt fólk að skilja hvað hann
meinar með því að hann leggi sérstaka
áherslu á samvinnu við aðila sem vilja
forðast hagnað. Það hefur reyndar vaf-
ist fyrir mörgum manninum að skilja
Með rauðum penna
Opið bréf til forsætisráðherra Íslands
taumlaust orðskrúðið sem flæðir út úr
Degi. Í þetta skiptið hallast ég að því að
hann hafi ekki skilið það sjálfur. Þegar
þú ræðst í leiðréttingarnar verðurðu
að gera þær kröfur til þín að þjóðin
skilji og virði það sem þú segir.
Nú vil ég leggja áherslu á að ekk-
ert af því sem ég hef sagt hér að ofan
ber að skilja sem árás á Ólaf Ólafs-
son, þann vaska mann. Frá mínum
bæjardyrum séð er hann er einfald-
lega bísnissmaður sem fyrir hrun gerði
það sem við sem þjóð og eftirlitsaðilar
okkar létu hann komast upp með og
er nú aftur kominn á kreik af því að
við leyfum honum það sem hlýtur að
teljast merki um einhvers konar brjál-
æði. Ég er því ósammála landlækni
þegar hann segir að Íslendingar bryðji
of mikið af geðlyfjum, ég held því fram
að hegðun þeirra bendi til þess að þeir
þjáist af skorti á þeim.
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar
erfðagreiningar
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
Á T T U V O N
Á G E S T U M ?
Ítalskur svefnsófi með góðri
dýnu. Fæst dökkgrár, rauður,
ljósbrúnn og röndóttur.
Dýnust.: 140x200 cm.
Q UA D R O
PA L E R M O
C L I O
Ítalskur svefnsófi frá
Natuzzi Edition með góðri
dýnu. Hvítt eða rautt
vandað leður. Dýnust.:
140x200 cm.
FULLT VERÐ: 289.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
217.425 K R.
FULLT VERÐ: 389.900 KR.
TILBOÐSVERÐ
292.425 K R.
Svefnsófi með góðri dýnu.
Rautt og dökkgrátt áklæði.
Dýnust.: 140x200 cm.
TILBOÐSVERÐ
277.425 K R. FULLT VERÐ: 369.900 KR.
2 5 % A F S L Á T T U R
A F Ö L L U M S V E F N S Ó F U M
S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M i ð V i k u D A G u R 5 . A p R í L 2 0 1 7
0
5
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:5
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
C
-6
B
6
C
1
C
9
C
-6
A
3
0
1
C
9
C
-6
8
F
4
1
C
9
C
-6
7
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K