Fréttablaðið - 05.04.2017, Page 38

Fréttablaðið - 05.04.2017, Page 38
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Reynir Jóhannesson síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Mörk, lést þann 29. mars sl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. apríl kl. 15. Birgir Reynisson Ragnhildur Bjarnadóttir Kolbrún Stefánsdóttir Marteinn Ari Reynisson Gitana Miseviciute Sigrún Reynisdóttir Tryggvi Guðmundsson Anna Soffía Reynisdóttir Jónas Freyr Harðarson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir, mágur og tengdasonur, Halldór Helgi Backman lögmaður, Perlukór 12, lést sunnudaginn 2. apríl. Útförin fer fram frá Lindakirkju, miðvikudaginn 12. apríl kl. 11.00. Ragnheiður Kolviðsdóttir Sylvía Líf, Margrét Eva, Kolviður Sævar Valgerður Bergsdóttir Valgerður Margrét Backman Jóhann Halldórsson Margrét Backman Birgir Hilmarsson Margrét Hreinsdóttir Kolviður Helgason Okkar elskulegi eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Óskar G. Baldursson Ársölum 3, lést á líknardeild Landspítalans 31. mars. Útförin verður auglýst síðar. Sigþrúður B. Stefánsdóttir Guðmundur Óskarsson Hildur Óskarsdóttir Viðar Blöndal Regína Ósk Óskarsdóttir Sigursveinn Þór Árnason Trausti Óskarsson og afabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Jóna Guðbrandsdóttir Hörðukór 1, Kópavogi, verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtudaginn 6. apríl kl. 15. Ásbjörn Einarsson Einar Jón Ásbjörnsson Elísabet Reykdal Jóhannesd. Elín Björk Ásbjörnsdóttir Gísli Jóhann Hallsson og barnabörn. Þökkum auðsýnda samúð við fráfall Sæmundar R. Jónssonar Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar. Hrafnhildur Jónasdóttir og fjölskylda. Þökkum af alhug hlýjar kveðjur og stuðning vegna andláts og útfarar móður okkar, ömmu og langömmu, Unnar Jóhannsdóttur frá Laxárdal í Hrútafirði, öllum vinum hennar, nágrönnum í Hólabergi 84 svo og samstarfsfólki í félagsstarfi aldraðra í Lönguhlíð og Gerðubergi fyrir einstaka vináttu og ræktarsemi. Síðast en ekki síst öllu heilbrigðisstarfsfólki fyrir hlýlega umönnun og alúð. Aðalheiður Gunnarsdóttir Kristján Örn Frederiksen Elísabet Ragnarsdóttir Elísa Guðrún Ragnarsdóttir Sigrún Rut Ragnarsdóttir Snorri Gústafsson Jóhann Ragnarsson Jóna Guðrún Ármannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Föðursystir okkar, Rannveig Magnúsdóttir frá Völlum á Kjalarnesi, Sléttuvegi 13, andaðist á Vífilsstöðum 27. mars. Hún verður jarðsungin frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 12. apríl kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Grensáskirkju eða líknarfélög. Jóhann Ólafsson Sigrún Ólafsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, sambýliskona, Marilou Suson meinatæknir, frumkvöðull og félagsliði, Sæviðarsundi 23, fæddist á Filippseyjum 12. október 1955. Hún lést á Kvenlækningadeild Landspítalans 31. mars síðastliðinn. Útförin fer fram frá Landakotskirkju á föstudaginn 7. apríl og hefst athöfnin kl. 15. Francis Suson Cagatin Ruth Zara Angulo Fabio Eliseo Suson Cagatin Joy Oliveria-Cagatin Garri Lee Suson Cagatin Kriselle Lou Suson Cagatin Xabier Þór Tejero Landa Sara Lind Jónsdóttir Glaser David Glaser Cephas Elison Suson Cagatin Jón Hilmar Þórarinsson Öll ömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Þórir Jóhannsson frá Syðra-Lágafelli, Miklaholtshreppi, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum þann 30. mars. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Ingibjörg Þórðardóttir Ingibjörg Sveina Þórisdóttir Georg Hauksson Einar Björn Þórður Þórisson Hafrún Sigurðardóttir Anna Þórisdóttir Daði Hreinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sambýlismaður minn, sonur, faðir, fóstri, tengdafaðir, afi og bróðir, Guðmundur Sigurvin Magnússon smiður, Þóreyjarnúpi, lést á heimili sínu þriðjudaginn 28. mars. Útförin fer fram frá Garðakirkju, Álftanesi, föstudaginn 7. apríl kl. 13.00. Gerður Hauksdóttir Magnús Magnússon Helga Guðmundsdóttir Ingólfur Þór Guðmundsson Noemi Borbath Theodór Nói Arnar Guðmundsson Unnur Blandon Ragnar Smári Rúnarsson Margrét, Rúnar Smári, Sigurjón Emil Rúnar Magnús Magnússon Elín Ragnheiður Magnúsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför frænda okkar og vinar, Hólmars Henryssonar hjúkrunarheimilinu Mörk, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Markar fyrir einstaka umönnun og alúð. Fyrir hönd ættingja og vina, Björk Finnbogadóttir Ólafur Steingrímsson Finnbogi Karlsson Gauti Ólafsson Það var mikil heppni að við gátum sett saman þennan s a xó f ó n k va r t e t t m e ð fjórum mismunandi saxó-fónum,“ segir Vigdís Klara Aradóttir sem spilar á sópran saxófón. Ásamt henni í Íslenska saxófónkvartettinum er eiginmaður hennar, Guido Bäumer, á baritónsaxó- fón og þeir Sigurður Flosason á altsaxó- fón og Peter Tompkins á tenórsaxófón. Vigdís segir samstarfið hafa gengið vel í öll þau tíu ár síðan sveitin hefur verið starfandi. „Já, samstarfið hefur gengið mjög vel og við höfum verið svo heppin að finna okkur saman með þessi hljóð- færi. Samsetningin hefur því haldist óbreytt í gegnum árin, það hafa ekki orðið neinar færslur á milli hljóðfæra og aldrei verið gerðar mannabreytingar.“ Hljóðfæraleikararnir hafa allir fjöl- breytilegt nám og reynslu að baki. Vig- dís Klara stundaði nám meðal annars í klassískum saxófónleik í Sviss ásamt klarinettnámi og námi á fimm klappa klarínett og chalumeau, Sigurður er vel þekktur jazzleikari sem stundaði einnig nám í klassískum saxófónleik hér heima og í Bandaríkjunum, Peter stundaði nám í London og er meðal annars óbó- leikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands og spilar reglulega með Bach-sveitinni í Skálholti, Guido stundaði nám í Þýska- landi, Sviss og Bandaríkjunum og er einnig menntaður þverflautukennari. „Við þekktumst öll fyrir en stofnuðum kvartettinn þegar við vorum að spila á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands.“ „Við smullum bara saman og höfum haldið um fimmtíu tónleika síðan þá, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Þannig að við höfum spilað þó nokkuð mikið í gegnum árin þó maður vilji auðvitað alltaf gera aðeins meira,“ segir hún og hlær. Spurð út í hvað standi upp úr frá þessu tíu ára tímabili sem Íslenski saxófón kvart ettinn hefur verið starf- andi segir Vigdís: „Það er erfitt að segja til um það. Við höfum til dæmis spilað með Kammer sveit Reykjavíkur, þá með strengjasveit og slagverki og það er alltaf skemmtilegt. En það sem stendur kannski helst upp úr eru þau skipti sem við höfum frumflutt ný íslensk verk. Það er einmitt það sem við munum gera á afmælistónleikunum en um nýtt verk eftir Svein Lúðvík Björnsson er að ræða,“ segir Vigdís að lokum. Þess má geta að tónleikarnir hefjast klukkan 20.00. gudnyhronn@365.is Skemmtilegast að frumflytja íslensk verk Íslenski saxófónkvartettinn fagnar tíu ára starfsafmæli um þessar mundir og í tilefni þess verður fagnað með tónleikum í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, á morgun. Íslenska saxófónkvartettinn skipa þau Vigdís Klara Aradóttir, Sigurður Flosason, Peter Tompkins og Guido Bäumer. 5 . a p r í l 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r18 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B l a Ð I Ð tímamót 0 5 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :5 0 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 C -6 6 7 C 1 C 9 C -6 5 4 0 1 C 9 C -6 4 0 4 1 C 9 C -6 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.