Hjúkrunarkvennablaðið - 01.12.1957, Side 7
HJÚKRUNARKVENNABLAÐIB
5
Ungbamadcild.
þessar konur skeyta oft
litlu, en líður þó miklu
betur er þær hafa fengið
lyf og ráðleggingar við
því. Nær öllum konum er
ráðlagt að taka lýsi og
gefnar leiðbeiningar um
viðeigandi mataræði. Með
góðu eftirliti má því
koma í veg fyrir ýmsa
smá kvilla og gera með-
göngutímann ánæg.i u-
legra og þægilegra tíma-
bil en ella, og hefur það
líka sína þýðingu. En
fyrir þær konur, sem eru
veikar um meðgöngutím-
ann, hafa toxemíu eða preeklampsiu,
er þetta eftirlit beÁnlínis lífsnauð-
synlegt. — Það nægir að minna á hvað
margar konur dóu af þessum orsökum
áður fyr, áður en reglubundnu eftir-
liti var komið á. Nú orðið komast flestar
konur, sem eru undir eftirliti og hlýða
settum reglum, heilar í gegn um barns-
burð og sængurlegu.
Takmark mæðradeildarinnar er það
að byggja upp heilsu og hreysti barnsins
þegar í móðurlífi og viðhalda heilsu móð-
urinnar. Hefur hún einnig mikið verk-
efni framundan, sem enn hefur ekki ver-
ið unnt að koma í framkvæmd, en vonir
standa til að takast áður en langt líður.
Má segja að góð mæðravernd, með
fræðslu og leiðbeiningum um meðferð og
uppeldi barna, sé grundvöllurinn að allri
góðri heilsuvernd, vegna þeirra áhrifa
sem mæðurnar hafa á hina uppvaxandi
kynslóð.
IV. Geðvemdardeild, eða Áfengisvarna-
deild. Þangað leita áfengissjúklingar ogfá
læknishjálp og ýmislega félagslega að-
stóð. Þessi deild var starfrækt sem sjálf-
stæð stofnun frá 1952, þar til hún fluttist
inn sem deild Heilsuverndarstöðvarinnar
sumarið 1955. Þessi deild hefur einnig
mikið verkefni framundan, sem krefst
góðs undirbúnings.
V. Húð- og kynsjúkdómwdeild. Hún
hefur verið starfrækt í húsinu í rétt 3
ár, en var áður á vegum ríkisins, sam-
kvæmt lögum um ókeypis lækningu
sjúklinga með kynsjúkdóma. En lækning
kynsjúkdóma hefur breyzt mikið á síðari
árum, eftir að hin nýju lyf komu til sög-
unnar. Á þessari deild er unnið eftir
sömu reglum og á berklavarnadeildinni,
að finna sjúklinga og lækna þá, koma í
veg fyrir að aðrir smitist og rannsaka
þá, sem hafa verið útsettir fyrir smit.
Gildir einnig það sama með þessa sjúk-
dóma og berklaveikina, að ef slakað verð-
ur á eftirlitinu, má búast við að þeir
blossi upp að nýju.
í húsakynnum húð- og kynsjúkdóma-
deildarinnar starfar í tvíbýli við hana
Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Er hún
kostuð af Krabbameinsfélaginu, en sóm-
ir sér vel í samvinnu við Heilsuverndar-
stöðina. Er hún enn á tilraunastigi, en
lofar góðum árangri.