Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Qupperneq 3

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Qupperneq 3
Ýmislegt úr dagsins önn Stjórn félagsins óskar öllum félögum farsældar á nýbyrjuðu ári og þakkar sam- starfið á liðna árinu. Hjúkrunarfélagi íslands bárust, eins og undanfarin ár, margar jóla- og nýárs- kveðjur, frá einstaklingum og erlendum hjúkrunarfélögum, sem H.F.t. á sam- leið með innan S.S.N. og I.C.N. Formaður S.S.N. Aagot Lindström skrifar: „Kjære kolleger og venner i Is- land. Takk for friskt págangsmot og initiativ i áret som gikk. Med önsker om en god jul, — og et framgángsrikt 1967 for dere allesammen sender jeg hver enkelt min hjerteligste hilsen“. Systir Benedicte Ramsing bað fyrir kveðjur til allra hjúkrunarkvenna, sem hún hitti hér síðastliðið sumar. Margir, sem hlýddu á fyrirlestur hennar, mundu vafalaust fagna, fengist hún til að flytja fyrirlestur, ef hún verður hér á ferð aftur. Heyrst hefur að það geti komið til mála. Félaginu berast tímarit og bækur, sem gefnar eru út af félögum innan S.S.N. Auk þess koma blöð og tímarit hjúkrunarkvenna frá öðrum löndum og ýmsum stofnunum, sem vinna að heilbrigðismálum. Ritin eru varðveitt á skrifstofu félagsins, og geta félagar fengið þau lánuð. Ingibjörg Ólafsdóttir, sem verið hefur síðasta ár í hálfsdags vinnu á skrif- stofu félagsins hætti störfum 1. febrúar 1967, og þökkum við henni fyrir að hafa tekið að sér fyrsta áfangann. Alda Halldórsdóttir hefur verið ráðin í henn- ar stað frá 15. febrúar. Vegna þess að Alda mun einnig starfa að kennslu við Hjúkrunarskóla íslands, og störf hennar þar þurfa að vinnast síðdegis, mun hún vinna á skrifstofunni 5 morgna vikunnar (ekki laugardaga). Einnig kl. 17—19 á mánudögum og fimmtudögum, sem ætti að verða ákjósanlegir viðtals- tímar. Þegar ársskýrsla félagsins er samin er forvitnilegt að kanna, hvort eitthvað hefur miðað áfram frá fyrri árum. Alltaf má að minnsta kosti gera ráð fyrir að félögum hafi fjölgað og þá eðlilegt að draga þá ályktun að starfandi hjúkr- unarkonur séu einnig fleiri. En samkvæmt síðustu ársskýrslu kemur í ljós að í ársbyrjun 1966 eru starfandi hjúkrunarkonur færri en var á sama tíma árið áður. Vonandi verða nú straumhvörf í þessum málum. Á einhvern hátt verður að ráða hér bót á. I heimildum frá Svíþjóð má sjá, að þar í landi eru 60% hjúkrunarkvenna, sem hafa meðaltals aldur 38.8 í fullri vinnu. Þó eru Svíar að flytja inn hjúkrunar- konur frá Júgóslavíu, Kóreu og Filippseyjum. Við samanburð á tölfræðiskýrslu árið 1961 og eldri skýrslu, kemur í ljós, að fjöldi hjúkrunarkvenna, sem vinnur hálfsdagsvinnu, eða hluta úr degi, hefur hækkað úr 10% í 17%, en tala þeirra, sem vinna fullt starf hefur lækkað úr 77% í 69%. Hjúkrunarstarfið er erfitt og vandasamt, en tilbreytingaríkt, og margt kát- broslegt getur þar hent. Eftirfarandi frásögn er úr grein í desemberblaði danska hjúkrunarfélagsins eftir hjúkrunarkonu á næturvakt. Einni sjúkrastofunni hafði verið breytt og var ekki enn tímabært að taka í notkun, er Anna gamla var lögð þar inn, vegna þess að annars staðar var ekki rúm fyrir hendi. Kyrrð ríkti í stofunni, þar sem hin rúmin sjö stóðu auð. Lítil ljóstýra logaði, en óvart hafði hurðinni verið læst. Anna gamla fór að hugsa: Á sjúkrahúsi liggja sjúklingar. Það er gefið mál. Hér eru engir, þar af leið- andi get ég ekki verið á sjúkrahúsi. Þvínæst klifraði hún yfir grindurnar, lædd- ist um og þuklaði á rúmunum. Gekk því næst að hurðinni, sem hún gat ekki opnað. Þá vissi hún að hún hlaut að vera í kapellunni. í því kemur næturvaktin og vill þá Anna vita, hvort ættingjunum hafi verið tilkynnt að hún væri látin. Þegar hjúkrunarkonan svarar því til, að hún sjái ekki betur en að henni líði vel, grípur Anna fram í og segir: „Ja, det ska do no ikke bland’ dig i. Det er mæ, der er död“. M. P. LAHDS30KASAFN 271287 fSlAHDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.