Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Side 5
námsvörum, svo sem basti, tág-
um, efni í smíðavinnu, handa-
vinnuefni og fleira. Auk þess
þurftum við að kaupa ýmsar
smávörur: Málningu, horn, sag-
arblöð og þ. u. 1. 1 skólann voru
teknir nemendur tvisvar á ári,
í september og marz. f hvert
skipti komust aðeins 18 nem-
endur að, karlar eða konur, en
um skólavist sækja að meðal-
tali 100 fyrir hvert námskeið.
Námstíminn var tæp 3 ár og
kennsla fór fram að mestu leyti
í skólanum sjálfum og stofnun-
um, þar sem löggiltur sjúkra-
kennari verður að vera. Fyrstu
4 mánuðina fór kennsla fram í
skólanum, en næstu 4 mánuði
Vorum við látin hjálpa til á
sjúkrahúsum í Kaupmannahöfn
íyrri hluta dagsins, en síðari
klutann var venjulegur skóli og
heimavinna þar á eftir. Eftir
bessa 8 mánuði fengum við úr-
skurð um, hvort við vorum fær
að ljúka náminu og starfa
sem sjúkrakennarar eða ekki.
Annað árið var kennsla í skól-
auum og þá tókum við próf í
úllum verklegum og flestum bók-
^gum greinum. Á 3. ári unn-
Ulu við svo allan daginn, 4 mán-
uði á geðsj úkrahúsum og 4 mán-
uði á handlækningadeildum eða
s®vstökum æfingastöðum fyrir
sjúklinga. Þann tíma þurfum
Vjð ekki að greiða skólagjald,
eu fengum í þess stað laun frá
i'ikinu eða stofnuninni, sem
Svaraði um 700 ísl. krónum á
ú^ánuði. Auk þess fengum við
Ntt fæði, en urðum að greiða
húsnæði sjálf. Að þessum 8 mán-
uðum loknum vorum við í skól-
anum í 2 mánuði, þar sem við
fengum viðbótarkennslu, upp-
rifjun og lukum þeim prófum,
sem eftir voru.
— Hvaða námsgreinar voru
kenndar?
Náminu var skipt í tvennt,
bóklegt og verklegt, en meira
var lagt upp úr því bóklega.
Aðal bóklegu fögin voru:
Líffærafræði, ca. 170 stundir,
aðaláherzla var lögð á
vöðva, bein og hreyfingar,
sérstaklega hendur og fæt-
ur.
Sjúkdómafræði, ca. 170
stundir, aðaláherzla lögð á
beinbrot, taugasjúkdóma og
vöðvabólgur.
Lífeðlisfræði, ca. 90 stundir,
geðsjúkdómafræði, ca. 70
stundir.
sálarfræði, ca. 40 stundir,
reikningshald, ca. 20 stundir
og auk þess voru ýmis smá-
fög.
Aðal verklegu fögin voru:
Handavinna, ca. 200 stundir,
tré-, málm- og beinsmíðar, ca.
200 stundir,
knippling ca. 150 stundir.
Að lokum var hagnýt sjúkra-
kennsla.
Þá fórum við í heimsókn á
sjúkrahús í borginni og næsta
nágrenni, skoðuðum þessar
stofnanir og fengum síðan 1—2
sjúklinga að sjá og spjalla við
og áttum við svo, þegar heim
kom, að skrifa um þá ritgerðir,
skipuleggja vinnu þeirra og
meðhöndlun hjá sjúkrakennara.
Mikil áherzla var lögð á hjálp-
argögn fyrir sjúklinga og hvaða
hreyfingar og verkefni hæfði
þeim í hverju tilfelli. í þessum
aðalnámsgreinum lukum við
prófi, en auk þess lærðum við
vefnað, bast- og tágavinnu, smá-
barnaföndur, leðurvinnu, leir-
smíði, málningu á efni (stof-
tryk) og sitt hvað fleira. Ýmsar
aðrar stofnanir en sjúkrahús
heimsóttum við, svo sem söfn
og verksmiðjur og hlustuðum á
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 3