Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Síða 10

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1967, Síða 10
Alda Halldórsdóttir: Hjúkrun innan sjúkrahúsa Framsöguerindi á þingi S.S.N. í Stokkhólmi í sept. s.l. MÓTTAKA S.IÍ’KI.I\(>S öllum er ljóst, hve fyrstu áhrif umhverfis valda miklu um afstöðu manna till þess. Og jafnvíst er, að þessi áhrif verða því meiri og varanlegri, sem tilfinningalíf mannsins .er í meira uppnámi. Að jafnaði mun sálarástand sjúklings, við komu hans á sjúkrahúsið markast af bæði þjáningu og ótta, líkamlegri vanlíðan á öllu hugsanlegu stigi, og eðlilegum beyg, sem sérhver maður hýsir, gagnvart hinu óþekkta og framandi. Og þar að auki má gera ráð fyrir, að sjúklingur sé þrúgaður alls kon- ar persónulegum áhyggjum. vegna fjölskyldunnar og ann- arra ástvina, atvinnu sinnar og fjárhagsafkomu, óleystra áhuga- og viðfangsefna, o. s. frv., án enda, og hann leitar því jafnt eftir andlegum stuðningi þeirra persóna sem munu ann- ast hann, eins og lækningu á einhverju líkamlegu meini. Að koma inn á móttökudeild (Poliklinik), er hvað mest þreyt- andi, og oftast nær hin erfið- asta raun fyrir hann. Ópersónu- legar og uppskriftarkenndar viðtökur starfsliðsins verka illa á sjúklinginn, þar sem hann kemur sem einhvers konar núm- er úr fullri biðstofu. Sjálfsvit- und, svo ekki sé svo djúpt í ár- ina tekið, að nefna stolt, er alla jafna ríkur þáttur í skaphöfn manna. Þeim er vissulega harla ógeðfellt að hafa það á tilfinn- ingunni, að þeir séu eins konar aukahjól í stórri óþekktri vél, og jafnvel til byrði og erfiðis- auka í kröm sinni. Þarna er of áberandi, hversu margir sjúkl- ingar eru afgreiddir á stuttum tíma, og þeir finna sig utan- gátta, þar sem þeir bíða að röð- in komi að þeim, það er nærri því beðist afsökunar á að vera til. — Og hverjum er það tilhlökk- unarefni að gefa skýrslu um sín einkamál, og þá e. t. v. í áheyrn fjöldans? Læknisskoðunin ei unnin í fljótheitum, því hrað- inn er mikill og næsti sjúkling- ur bíður. Þarna er gert lítið úr því sem skiptir hvað mestu máli fyrir sjúklinginn, og það sem verra er, það er gengið að hon- um án nokkurra orða, eða út- skýringa, hvers vegna þetta eða hitt er gert. Er því ekkert und- arlegt, þótt innra með honum hafi vaknað dulin og óvituð and- úð, sem gæti gert bæði honum og hjúkrunarliði þeirrar sjúkra- deildar, sem hann á að leggjast inn á, erfitt fyrir. Það ætti að vera keppikefli hvers sjúkrahúss, að koma í veg fyrir slíkar hugmyndir hjá sjúk- lingum sínum, og í stað þess skapa gagnkvæmt traust strax við fyrstu kynni. Ytri útbúnaður, svo sem litir, lýsing, húsgögn eða herbergja- skipan nær skammt til góðra áhrifa, ef traustið skortir. Þeg- ar kvölin hrjáir einstaklinginn líkamleg sem andleg, hrekkur tæknigaldur skammt, en mann- þekking, umhyggja og hlýtt þel er undirstaða alls, ef vel á að gera. Það þarf að bæta úr þessu ástandi sem hefur skapazt við komu móttökudeildanna (Poli- klinik). Það er of mikill ys og þys sem þar ríkir, og starfslið- ið vinnur of oft verk sitt á hlaup- um, hið persónulega samband við sjúklinginn hverfur meir og meir í önnum dagsins. Þetta ástand fer versnandi, það megum við vera fullviss um. Því um leið og lækningamáttur- inn og tæknin verður fullkomn- ari, styttist vera sjúklingsins á sjúkrahúsinu, hann útskrifast fyrr og það hækkar sífellt tala þeirra sem koma inn daglega. Margar ykkar, sem staddar eru hér, muna þá tíð, er öll mót- taka sjúklinga átti sér stað inni á sjúkradeildunum. Að vísu var það meira álag fyrir deildirnar, en hafði þann kost, að sjúkling- urinn komst strax í hendur þess fólks sem átti eftir að stunda hann, og sem sýndi áhuga fyrir honum. Við hjúkrunarkonur sem komum frá Islandi, þekkjum all- ar þetta fyrirkomulag, þar sem það tíðkast enn í sjúkrahússlífi þar. En við erum flestar víð- förular og höfum kynnzt mót- tökudeildum annarra landa. Móttökudeildir verða opnaðar næstu mánuðina við íslenzk sjúkrahús. Mjög líklegt er, Aö í framtíðinni munu þau eiga við sömu vandamál að stríða og fyrr er rætt um í þessu erindi, þótt að öllum líkindum þau verði 8 TÍMARIT HJÚKRUNAKFÉLAGS ÍSI.ANDS

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.