Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2002, Blaðsíða 30
ingshöfuðverk. Eftir þriggja mánuða meðferð töldu 81%
þeirra að meðferðin hefði hjálpað sér eða að þeir hefðu fengið
fulla bót sinna meina.
Hjúkrunarfræðingar hafa gert rannsóknir á áhrifum svæða-
nudds og fótanudds. Til að skoða hvort svæðanudd hefur áhrif á
streitu og verki var gerð rannsókn með 23 sjúklingum með
lungna- og brjóstakrabbamein. Tilgangurinn var að athuga hvort
svæðanudd hefði áhrif á verki og kvíða. Þýðinu var skipt tilvilj-
unarkennt í tvo hópa þar sem allur hópurinn fékk svæðanudd í
30 mínútur og svo enga meðferð í 30 mínútur. Niðurstöður
sýndu að kvíði reyndist hafa minnkað marktækt í sjúklingum
sem fengu svæðanudd á fætur. Ekki reyndist unnt að fá viðun-
andi niðurstöður varðandi verkina þar sem einungis tveir sjúkl-
inganna höfðu verki. Samkvæmt þessum niðurstöðum má ætla
að svæðanudd geti haft einhver áhrif til að draga úr kvíða hjá
þessum sjúklingum (Stephenson, Weinrich og Tavakoli, 2000).
Ahrif svæðanudds á fyrirtíðaspennu voru athuguð í rann-
sókn Oleson og Flocco (1993). Svæðameðferð var beitt á ein-
kenni fyrirtíðaspennu í alls átta vikur á tvo hópa, annar hópur-
inn fékk raunverulegt svæðanudd en hinn fékk sýndarsvæða-
nudd (gervi- eða platmeðferð). Niðurstöður sýndu marktækan
mun á hópunum þar sem meira hafði dregið úr einkennum
fyrirtíðaspennu meðan á meðferð stóð, hjá þeim sem fengu
raunverulegt svæðanudd.
Hodgson (2000) gerði rannsókn þar sem könnuð voru áhrif
svæðanudds á líðan og aðstæður krabbameinssjúklinga. Tólf
krabbameinssjúklingum var raðað tilviljunarkennt í tvo hópa
þar sem annar hópurinn fékk raunverulegt svæðanudd en hinn
sýndarsvæðanudd þrisvar sinnum. Þátttakendur fylltu út lista
um sjálfsmat á ýmsu sem tengdist líðan og aðstæðum fyrir og
eftir meðferð. Niðurstöður sýndu að allir þáttakendur töldu
líðan og aðstæður betri eftir bæði svæðanudd og sýndar-
meðferð, en þó taldi svæðanuddshópurinn batann mun meiri
en hinn hópurinn. I þessari rannsókn virðist svæðanudd bæta
líðan og aðstæður krabbameinssjúklinga.
Rannsóknir hafa líka verið gerðar á áhrifum einfalds fóta-
nudds, (Hayes og Cox, 1999). Fimm mínútna fótanudd var
boðið 25 sjúklingum á gjörgæslu, sem þátt tóku í rannsókn-
inni, í því skyni að draga úr streitueinkennum hjá þeim.
Endurtekið tilraunasnið (quai-experimental repeated mearures
design) var notað til að safna upplýsingum fyrir, eftir og á
meðan á meðferð stóð. Líffræðilegar breytur, hjartsláttur,
meðalþrýstingur í slagæð, öndun og súrefnismettun, voru
mældar af skjá við rúm sjúklings fyrir, eftir og á meðan á
meðferð stóð. Tölfræðileg vinnsla upplýsinga gaf til kynna að
hjartsláttur, blóðþrýstingur og öndun lækkuðu marktækt.
Meðferð hafði engin áhrif á mettun súreíhis. Niðurstöður gáfu
til kynna að fótanudd er líklegt til að auka slökun hjá sjúkling-
um á gjörgæslu þótt meðferðin standi stutt hverju sinni. Þegar
sjúklingar hafa verið spurðir um áhrif svæðanudds hafa þeir
getið þess hversu róandi það er og auki orkuflæði (Trousdell,
1996; Joyce og Richardsson, 1997) og veiti almenna vellíðan
(Launsö, Brendstrup og Arnberg, 1999).
158
Ekki hafa verið gerðar margar rannsóknir á áhrifum
handa- og fótanudds (Snyder og Tseng, 2002). Þrátt fyrir auk-
inn áhuga á rannsóknum á áhrifum svæðameðferðar og þær
gefi jákvæðar niðurstöður er samt ljóst að erfitt er að fram-
kvæma slíkar rannsóknir. Sýndarmeðferð hefur jaíhvel einnig
reynst jákvæð þó gagnsemin sé ekki alltaf jafnmikil og af
raunverulegu svæðanuddi. Atriði eins og líðan og árangur
krabbameinssjúklinga er erfitt að meta. Áreiðanlegar rann-
sóknir þarf að gera og mörgum spurningum er ósvarað um
áhrif svæðanudds. Er svæðanudd eitthvað betra en einfalt
fótanudd? Geta hjúkrunarfræðingar notað svæðanudd til að
hjálpa skjólstæðingum sínum að slaka á og líða betur?
Hvers ber að gæta?
Margt þarf að hafa í huga þegar svæðameðferð er veitt.
Skjólstæðingur verður alltaf að gefa leyfi sitt fyrir að vera
snertur því þótt flestum þyki nudd gott er ekki alltaf sem fólki
finnst það þægilegt. Ástand fóta verður að meta áður en nudd
á sér stað með tilliti til bólgu, litar, sára og lyktar. Sérstaklega
þarf að skoða neglur og húð og athuga vörtur og sveppasýk-
ingar og líkþorn (Kozier, Erb, Blais og Wilkinson, 1998).
Líkamlegt ástand skjólstæðings er líka mikilvægt og góðar
upplýsingar um heilsufar eru nauðsynlegar. Ef skjólstæðingur
hefur einhver vandamál varðandi blóðflæði til fóta vegna sjúk-
dóma eins og sykursýki, taugasjúkdóma eða æðakölkunar
verður að gæta sérstakrar varúðar og ekki beita miklum þrýst-
ingi við nudd eða svæðameðferð þar sem sársaukaskyn getur
verið mjög skert. Einnig þarf oft að fræða skjólstæðinga um
hvernig þeir eiga að meðhöndla fæturna til að halda þeim í
eins góðu ástandi og mögulegt er.
Undirbúningur
Skjólstæðingur ætti að liggja eða sitja þægilega og helst
aðeins hærra en sá sem nuddar. Mörgum finnst gott að hafa
kodda undir hnjám og höfði til að slaka betur á. Herbergið ætti
að vera hlýtt og rólegt, og oft finnst skjólstæðingi notalegt að
láta vefja sig í teppi. Fætur eiga að vera berir og í þægilegri
stöðu og gott er að losa um klæðnað sem þrengir að blóðflæði.
Notkun slökunartónlistar og ilmolíu getur aukið á áhrif nudds-
ins og gert það enn meira slakandi. Nuddarinn þarf að hafa í
huga að hann er ekki að greina eða meðhöndla sjúkdóma.
Hins vegar getur hann hjálpað við að draga úr einkennum
sjúkdóma og hjálpað þannig við að koma líkamanum í betra
jafnvægi. Mikilvægt er að útskýra fyrir skjólstæðingi hvað og
hvernig meðhöndlun fer fram áður en byijað er. Lengd með-
ferðar er mismunandi og getur verið allt frá 30 og upp í 50
mínútur. Sé meðferð of stutt er hætt við að ekki hafi náðst
næg örvun og of stutt meðferð getur verið oförvandi en slíkt
þola ekki allir. Mælt er með að koma í meðferð einu sinni til
tvisvar í viku í samtals 8-10 skipti.
Til að geta skilið betur út á hvað svæðanudd gengur er gott
að skoða meðfylgjandi mynd (mynd 1) en hún sýnir hvar á
fótunum svæðin eru staðsett. Vinstri fótur samsvarar vinstri
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 78. árg. 2002