Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.05.2017, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 09.05.2017, Qupperneq 16
Lekið hefur í fjölmiðla að til standi að „sameina“ tvo stærstu framhaldsskóla landsins, Tækniskólann og Fjölbrautaskólann við Ármúla. Tækniskólinn er einka- rekinn skóli af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum iðnaðarins, Samorku og Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík með áherslu á iðnmennt- un. Fjölbrautaskólinn við Ármúla er ríkisrekinn skóli með bóknám og starfsmenntun á heilbrigðissviði. Skólameistari Tækniskólans, Jón B. Stefánsson, upplýsti á dögunum að ráðherra mennta- og menn- ingarmála hefði í febrúar á þessu ári falið skólameisturum beggja skóla að kanna hagkvæmni „sam- einingarinnar“. Niðurstöður höfðu legið fyrir síðan í apríl og töldu skóla- meistarar beggja skóla að hagkvæmt væri að „sameina“ skólana á þeim forsendum sem ráðherra hafði lagt þeim fyrir. En hvaða forsendur eru lagðar til grundvallar mati á hagkvæmni? Enginn nema skólameistararnir og nokkrir útvaldir voru upplýstir af ráðherra. Í Bakþönkum Frétta- blaðsins þann 6. maí átaldi Sirrý Hallgrímsdóttir, aðstoðarkona fyrr- verandi mennta- og menningar- málaráðherra, þingmann Pírata fyrir að ræða ekki um kosti og galla „sam- einingar“ skólanna. En hvernig getur viðkomandi þingmaður rætt hag- kvæmni umræddra breytinga þegar efnislegum forsendum er haldið leyndum, jafnvel fyrir starfsfólki og stjórnendum viðkomandi skóla. Voru skólameistararnir að kanna hagkvæmni í rekstri? Auðvitað er hagkvæmara að vera með stóra hópa en litla. Það er líka hagkvæmara að leyfa ekki nemendum sem eru eldri en 25 ára að stunda nám í ríkis- reknum skólum eins og fyrrverandi ráðherra skipaði fyrir og núverandi ráðherra hefur fellt úr gildi. Eða á að meta hagkvæmni með því að taka inn þætti eins og öfluga stoðþjón- ustu við nemendur, sjálfbæra skóla- þróun, umhverfisvitund og margt annað sem Fjölbrautaskólinn við Ármúla er þekktur fyrir? Fjölbrautaskólinn við Ármúla er vel rekinn skóli eins og sést á úttekt sem gerð var á öllum þáttum skóla- starfsins í byrjun vorannar 2017. Starfsandinn er góður og hefur skólinn fengið viðurkenningu sem Fyrirmyndarstofnun árin 2015 og 2016. Skólinn er leiðandi á Íslandi í framboði fjarnáms á framhaldsskóla- stigi. Er ástæðan e.t.v. sú að ráðherra vilji færa Tækniskólanum vandað og vinsælt fjarnám sem byggt hefur verið upp í Fjölbrautaskólanum við Ármúla? Eins og nefnt er að framan er erf- itt að ræða efnislega kosti og galla breytinga þegar engar upplýsingar liggja fyrir um forsendur þeirra og enginn faglegur undirbúningur hefur átt sér stað. Starfsfólk beggja skóla býr yfir mikilli reynslu sem ætla mætti að skipti miklu máli þegar um svo mikilvægt mál er að ræða þegar einn stærstu skóla landsins er lagður niður. Ég lýsi eftir upplýsingum frá ráð- herra um forsendur málsins og um þá menntastefnu sem forsendurnar byggjast á. Vinnubrögð ráðherra eru ófagleg og lítilsvirðing gagnvart starfsmönnum skólanna, nemend- um og foreldrum þeirra. Leynimakk ráðherra Helmut Hinrichsen gæðastjóri í Fjöl- brautaskólanum við Ármúla Fyrir alþingiskosningar í októ-ber 2016 voru frambjóðendur spurðir um hvað þeir ætluðu að gera til að bæta kjör örorkulíf- eyrisþega. Í svörum sínum lofuðu þeir úrbótum, en hvar eru efndirnar? Staða örorku- og endurhæfingarlíf- eyrisþega hefur ekki batnað eftir að ný stjórn og nýr þingmeirihluti tók við. Enginn þarf að velkjast í vafa um að aðstæður margra örorkulífeyris- þega eru mjög erfiðar, þar sem tekjurnar duga ekki til framfærslu nema hluta mánaðarins. Hvernig á fólk að geta framfleytt sér með undir 200.000 krónum á mánuði? Stór hluti örorku- lífeyrisþega býr einfaldlega við fátækt. Hjá þeim sem ekki eru þegar fastir í fátækt þarf oft ekki nema viðbótar- útgjöld, s.s. að ísskápurinn bili, leigan hækki eða kaupa þurfi sýklalyf, til að fjárhag- urinn fari á hliðina. Ein meginástæða þess að fólk er í þessari stöðu er að lífeyrir almannatrygginga dugir ekki til framfærslu. Til að bæta gráu ofan á svart eru miklar tekjutengingar í almanna- tryggingakerfinu, sem halda fólki í spennitreyju. Þessar tekjutengingar eru í raun fátæktargildrur og á það sérstaklega við um „krónu á móti krónu“ skerðingar. Um þriðjungur örorku- og endurhæfingarlífeyris- þega fær greidda uppbót til að hífa tekjur þeirra upp í ákveðið lágmarks- viðmið, sem í dag er 227.883 kr. á mánuði fyrir skatt (útborgað rúmar 196.000 krónur). Reyndar er hluti hópsins með enn lægri heildartekjur, en það er efni í aðra grein. Hvað gerist ef örorku- eða endur- hæfingarlífeyrisþegi með sérstaka framfærsluuppbót fær tekjur eða greiðslur annars staðar frá? Lítum á nokkur dæmi: Dæmi I. Séreignarsparnaður Jón er 45 ára endurhæfingarlífeyris- þegi. Hann tók út 300.000 kr. sér- eignarsparnað (fyrir skatt) og við það lækkuðu greiðslur til hans frá TR um 25.000 kr. á mánuði (samtals 300.000 kr.) eða krónu á móti krónu. Dæmi II. Lífeyrissjóðstekjur Árni er 50 ára örorkulífeyrisþegi. Eftir að hann fékk greiðslur frá líf- eyrissjóði sínum, 40.000 kr. á mánuði (fyrir skatt) lækkuðu greiðslur Trygg- ingastofnunar til hans um sömu upphæð. Samanlagðar tekjur hans eru 196.610 kr. eftir skatt, með og án lífeyrissjóðstekna. Það bætir því engu við lífskjör hans að hafa greitt í lífeyrissjóð og áunnið sér rétt þar. Dæmi III. Atvinnutekjur Sunna er 30 ára örorkulífeyrisþegi. Hún hefur mjög litla starfsgetu en nær að vinna sér inn 20.000 kr. á mánuði (fyrir skatt og iðgjöld). Þrátt fyrir atvinnutekjurnar hækka saman- lagðar ráðstöfunartekjur ekkert, hún fær áfram útborgaðar 196.610 kr. á mánuði. Atvinnutekjur hennar lækka greiðslur TR til hennar um 20.000 kr. á mánuði eða krónu á móti krónu. Hvatinn til vinnu er enginn. Dæmi IV: Dánarbætur frá TR Anna er 50 ára örorkulíf- eyrisþegi. Við andlát eigin- mannsins sótti hún um dánarbætur hjá Trygginga- stofnun, sem eru 47.186 kr. fyrir skatt. Við það lækkuðu greiðslur Tryggingastofnun- ar til hennar um nákvæm- lega sömu krónutölu. Kæri lesandi, finnst þér í lagi að örorku- og endur- hæfingarlífeyrisþegar séu í þessari stöðu? Myndir þú sætta þig við þetta? Málefnahópur ÖBÍ um kjara- mál vill fá breytingar strax og sendi öllum alþingismönnum áskorun um að afnema „krónu á móti krónu“ skerðingar til örorku- og endurhæf- ingarlífeyrisþega. Þingmenn voru spurðir hvernig og hvenær þeirra þingflokkur ætli að efna loforð um að afnema þessar skerðingar. Fyrir alþingiskosningar voru uppi loforð um að afnema „krónu á móti krónu“ skerðingar. Svör frambjóðenda er að finna á YouTube-síðu Öryrkjabanda- lags Íslands. Óskað var svara innan ákveðins frests, sem nú er liðinn, en fá svör hafa borist frá þingmönnum. Af svörunum má ráða að vilji er hjá stjórnarandstöðuflokkum að taka málið upp og frá einum þingmanna stjórnarflokkanna barst svar um að taka málið til umræðu með fjármála- áætluninni. Þingmenn, þið getið með laga- breytingu afnumið „krónu á móti krónu“ skerðingar. Þetta þarf að gera strax og með afturvirkum hætti. Örorku- og endurhæfingarlífeyris- þegar geta ekki beðið lengur eftir að losna úr þessari fátæktargildru. Hvar eru efndirnar? María Óskars- dóttir fyrir hönd mál- efnahóps ÖBÍ um kjaramál Þingmenn, þið getið með lagabreytingu afnumið „krónu á móti krónu“ skerðingar. Þetta þarf að gera strax og með aftur- virkum hætti. Rúsínur Kanill Möndlur Grjónagrautur 1 7 -1 2 3 9 -H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Gríptu með þér grjónagraut með ristuðum möndlum, rúsínum og kanil. Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og hollum og stökkum toppi. Einnig fáanlegt: kotasæla með berjum og möndlum og grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum. Grjónagrautur er nærandi millimál 9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R16 s k o Ð U n ∙ F R É T T a B L a Ð I Ð 0 9 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C D 1 -1 B 7 0 1 C D 1 -1 A 3 4 1 C D 1 -1 8 F 8 1 C D 1 -1 7 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 8 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.