Fréttablaðið - 09.05.2017, Side 20
9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R20 S p o R t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
vera áfram úti. Ég tel að það sé rétt
skref að koma heim og vera á fullu
hérna,“ sagði Bjarki sem hefur verið
fastamaður í íslenska landsliðinu
undanfarin ár og spilaði t.a.m. einkar
vel á HM í Frakklandi í janúar. En er
hann svekktur að fá ekki tækifæri með
betra félagsliði?
„Jú, auðvitað stefnir maður hátt.
En það er ekkert útilokað. Ég tek tvö
ár hérna hjá Stjörnunni og svo sjáum
við hvað gerist,“ sagði Bjarki sem hefur
ekki gefið atvinnumennskuna upp á
bátinn.
„Auðvitað ekki. Ég á ekki eftir að
gera það fyrr en ég verð fimmtugur,“
sagði Bjarki og hló.
Hann segir að ákvörðunin að koma
heim og spila með Stjörnunni hafi
verið tekin í samráði við landsliðs-
þjálfarann Geir Sveinsson.
„Ef ég stend mig vel með landsliðinu
býst ég við að vera þar áfram,“ sagði
Bjarki sem ætlar að hjálpa Stjörnunni
að berjast um titla.
„Stefna ekki allir á Íslandsmeistara-
titil? Ég stefni allavega alltaf hátt og
ætla að gera allt sem ég get til að hjálpa
liðinu. Það er ekkert skemmtilegra en
að vinna titil og maður gleymir því
ekkert,“ sagði Bjarki sem varð Íslands-
meistari með HK 2012.
Ætla að berjast um titla
Um leið og Bjarki var kynntur til
leiks í gær var greint frá því að Einar
Jónsson hefði framlengt samning
sinn við Stjörnuna um eitt ár.
Stjörnumenn ollu miklum von-
brigðum í vetur og björguðu sér frá
falli í lokaumferðinni. Einar segir að
Stjarnan stefni hátt og vilji berjast
um titla. Þess vegna hafi Bjarki verið
fenginn í Garðabæinn.
„Við erum að láta vita að við ætlum
okkur stærri hluti heldur en í vetur.
Við sýnum það með svona ráðningu,“
sagði Einar. „Við ætlum okkur ofar og
okkar markmið er að berjast um bik-
ara. En það er langur vegur í það og við
þurfum að vinna okkar vinnu vel.“
Einar segir að Stjarnan hafi ekki sagt
sitt síðasta á leikmannamarkaðinum.
„Við ætlum að reyna að styrkja
okkur aðeins meira, það er ljóst. En
það er allt á viðræðustigi og lítið hægt
að segja um það,“ sagði Einar. En eru
þessir leikmenn sem Stjarnan er með
í sigtinu í svipuðum gæðaflokki og
Bjarki Már?
„Það er kannski erfitt að fá alveg
svona heimsklassa leikmenn eins og
staðan er í dag. En þetta eru klárlega
leikmenn sem koma til með að styrkja
okkur,“ sagði Einar sem hefur stýrt
Stjörnunni frá 2015. ingvithor@365.is
sport
Fram átti fyrsta höggið í úrslitaeinvíginu
Komnar yfir Fram er komið í 1-0 í úrslitaeinvíginu gegn Stjörnunni eftir eins marks sigur, 24-25, í fyrsta leik liðanna í TM-höllinni í Garðabæ í gær.
Fram var yfir lengst af en Stjarnan átti gott áhlaup undir lokin. Framstúlkur héldu þó út. Ragnheiður Júlíusdóttir, sem sést á myndinni hér að ofan,
skoraði átta mörk fyrir Fram. Guðrún Ósk Maríasdóttir átti sömuleiðis frábæran leik í marki Fram og varði yfir 20 skot. Fréttablaðið/ernir
HanDBoLtI „Það eru spennandi hlutir
í gangi hérna í Garðabænum. Þetta er
flottur klúbbur og ég þekki marga í
þessu liði,“ sagði landsliðsmaðurinn
Bjarki Már Gunnarsson eftir blaða-
mannafund á Mathúsi Garðabæjar
þar sem hann var kynntur sem nýr
leikmaður Stjörnunnar. Bjarki skrifaði
undir tveggja ára samning við félagið.
Varnarmaðurinn öflugi hefur
undanfarin fjögur ár leikið með
Aue í þýsku B-deildinni en ákvað
að snúa heim eftir að tímabilinu í
Þýskalandi lýkur. Að hans sögn voru
þau tilboð sem hann fékk erlendis
ekki nógu spennandi.
„Það var ýmislegt sem bauðst en
ekkert á því „leveli“ að ég myndi vilja
Ætla sér að berjast um titlana
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Gunnarsson mun leika með Stjörnunni í Olís-deild karla næstu tvö árin.
Ákvörðunin var tekin í samráði við Geir Sveinsson. Stjörnumenn stefna hátt og ætla að berjast um titla.
FH - Ka 2-2
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson (22.),
1-1 Steven Lennon (36.), 2-1 Kristján Flóki
Finnbogason (59.), 2-2 Ásgeir Sigurgeirsson
(90+4.).
Fjölnir - breiðablik 1-0
1-0 Hans Viktor Guðmundsson (62.).
Víkingur - breiðablik 1-2
1-0 Geoffrey Castillion (24.), 1-1 Alexander
Veigar Þórarinsson (66.), 1-2 Andri Rúnar
Bjarnason (90+2.).
Ía - Valur 2-4
0-1 Sigurður Egill Lárusson, víti (21.), 0-2
Guðjón Pétur Lýðsson (34.), 1-2 Þórður
Þorsteinn Þórðarson (39.), 1-3 Haukur Páll
Sigurðsson (58.), 2-3 Robert Menzel (75.),
2-4 Nikolaj Hansen (90.).
Nýjast
Pepsi-deild karla
staðan
FélaG l U J t MÖrK S
Valur 2 2 0 0 6-2 6
Stjarnan 2 1 1 0 7-2 4
FH 2 1 1 0 6-4 4
Ka 2 1 1 0 5-3 4
Grindavík 2 1 1 0 4-3 4
Fjölnir 2 1 1 0 1-0 4
Kr 2 1 0 1 3-3 3
Víkingur r. 2 1 0 1 3-3 3
ÍbV 2 0 1 1 0-5 1
breiðablik 2 0 0 2 1-4 0
Víkingur Ó. 2 0 0 2 1-4 0
Ía 2 0 0 2 4-8 0
Stjarnan - Fram 24-25
Stjarnan: Helena Rut Örvarsdóttir 8, Hanna
G. Stefánsdóttir 6/5, Sólveig Lára Kjærne-
sted 3, Elena Elísabet Birgisdóttir 2, Rakel
Dögg Bragadóttir 2, Brynhildur Kjartans-
dóttir 1, Nataly Sæunn Valencia 1, Stefanía
Theodórsdóttir 1.
Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 8/1, Hildur
Þorgeirsdóttir 5, Steinunn Björnsdóttir 5,
Sigurbjörg Jóhannsdóttir 3, Rebekka Rut
Skúladóttir 2, Elva Þóra Arnardóttir 2.
Staðan er 1-0 fyrir Fram.
Olís-deild kvenna, lokaúrslit
18.30 Juventus - Monaco Sport
20.45 Meistaramörkin Sport
18.00 ÍbV - Stjarnan Hásteinsv.
19.15 Haukar - FH Ásvellir
Í dag
Skipuleggjandi: Stofnunin Stiftung Gralsbotschaft
www.gralsbodskapur.org • info@gralsbodskapur.org
Sími: 842 2552
FYRIRLESTUR Á ENSKU
Christopher Vasey
Máttur hugsana
Samkvæmt Gralsboðskapnum
Miðvikudaginn
10. maí
kl. 20:00
Norræna húsinu
Sturlugötu 5
101 Reykjavík
Aðgangseyrir: 500 kr.
Lesinn útdráttur úr
Gralsboðskapnum á íslensku
GRALSBOÐSKAPURINN
erindi og umræður á ensku
Fimmtudaginn
11. maí
kl. 20:00
Norræna húsinu
Sturlugötu 5
101 Reykjavík
Kynning á andlega ritinu
”Í ljósi sannleikans,
Gralsboðskapurinn”
og höfundi þess, Abd-ru-shinAðgangur ókeypis
Við ætlum okkur
ofar og okkar
markmið er að berjast um
bikara.
Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar
KJArtAn á SKotSKónUM
Kjartan Henry Finnbogason var á
skotskónum þegar Horsens vann
2-1 sigur á randers í Íslendingaslag
í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta
í gær. Marvin Pourie kom rand-
ers yfir mínútu fyrir
hálfleik en Kjartan
Henry jafnaði
metin á 61. mínútu.
Þetta var áttunda
mark hans á
tímabilinu.
Elfar Freyr
Helgason lék
fyrstu 62 mín-
úturnar í vörn
Horsens sem
fer í umspil
um að halda
sæti sínu í
deildinni.
EinUM SiGri Frá titlinUM
Chelsea er einum sigri frá sjötta
Englandsmeistaratitlinum í sögu
félagsins eftir öruggan 3-0 sigur á
Middlesbrough í Brúnni í gær-
kvöldi. Chelsea er sjö stigum á
undan tottenham þegar bæði lið
eiga þrjá leiki eftir. Boro er hins
vegar fallið eftir eins árs veru í
ensku úrvalsdeildinni.
0
9
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
1
-2
A
4
0
1
C
D
1
-2
9
0
4
1
C
D
1
-2
7
C
8
1
C
D
1
-2
6
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K