Fréttablaðið - 09.05.2017, Síða 42
Þriðjudagur 9. maí
MONACOKL. 18:30JUVENTUS
Miðvikudagur 10. maí
MEISTARADEILDARMÖRKIN Kl. 20:45
ATLÉTICO MADRID Kl. 18:30 REAL MADRID
MEISTARADEILDARMÖRKIN Kl. 20:45
#CL365#UCL
365.ISSÍMI 1817
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
399 kr. á dag
11.990 kr. á mánuð
i
*
(2-0)
(0-3) Anna Þóra Björns-dóttir á gleraugna-verslunina Sjáðu ásamt eiginmanni sínum, Gylfa Björns-syni. Anna tók að sér
að sjónmæla lundann Munda í gær
og í ljós kom að hann er lögblindur.
„Það er búið að taka sjónpróf á
Munda lunda og það gekk svona
svakalega vel. Hann var alveg til
friðs. En í ljós kom hann er lög-
blindur og þarf bara að fá hljóðbæk-
ur það sem eftir er,“ segir Anna og
hlær. „Það er sem sagt ekkert hægt
að gera fyrir hann. Alveg sama hvað
hann fengi mikinn styrk, það myndi
ekkert gera fyrir hann.“
Mundi var stilltur og prúður í
sjónmælingunni og reytti af sér
brandara að sögn Önnu. „Hann
sagði bara nokkra brandara og svo
ætlar hann að halda áfram í Græna
herberginu á miðvikudaginn.“
Spurð nánar út í hvað mun eiga
sér stað í Græna herberginu á mið-
vikudaginn segir Anna: „Við í grín-
félaginu Lunda ætlum að vera með
uppistand, við erum átta í þessum
hóp og hver og einn verður með sitt
uppistand. Við vitum ekkert hvað
næsti maður ætlar að segja. Þetta
er í fyrsta skipti sem þessi klúbbur
kemur fram en við höfum öll komið
fram í hvert í sínu lagi,“ útskýrir
Anna. Þess má geta að flestir í
hópnum hafa sótt uppistandsnám-
skeið hjá Þorsteini Guðmundssyni.
„Flestir hafa farið í námskeið, en
ekki Mundi, hann þurfti ekkert á því
að halda. Hann er bara langfyndn-
astur.“ Hópinn skipa þau Agnes
Wild, Elva Dögg Hafberg Gunnars-
dóttir, Hrafnkell Ásgeirsson, Kristín
María Gunnarsdóttir, María Guð-
mundsdóttir, Ólöf Magnúsdóttir,
Theódór Ingi Ólafsson ásamt Önnu
Þóru og auðvitað Munda lunda.
„Mundi er sem sagt heiðursfélagi
og hann verður með okkur á mið-
vikudaginn. En þar sem hann á það
til að ganga á veggi og annað langaði
okkur að reyna að hjálpa honum og
ég bauðst þá til að sjónmæla hann,“
útskýrir Anna. „En þar sem hann er
lögblindur getur hann gleymt því að
fá sér gleraugu, því miður.“
gudnyhronn@365.is
Mundi lundi
reyndist lögblindur
Mundi er um tveggja ára og er heiðursfélagi í grínfélaginu Lunda sem stofnað
var í upphafi mánaðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Mundi mátaði nokkur gleraugu þó svo að þau gagnist honum lítið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Anna Þóra er einn
af meðlimum í grín-
félaginu Lunda. Það
félag á lukkudýr sem
er lundi sem heitir
Mundi. Nýverið fór
meðlimi hópsins að
gruna að Mundi væri
með lélega sjón og þá
bauðst Anna til að
sjónmæla hann.
Alveg sAMA hvAð
hAnn fengi Mikinn
styrk, þAð Myndi ekkert
gerA fyrir hAnn.
9 . m a í 2 0 1 7 Þ R I Ð J U D a G U R34 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð
0
9
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
1
-2
5
5
0
1
C
D
1
-2
4
1
4
1
C
D
1
-2
2
D
8
1
C
D
1
-2
1
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
8
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K