Fréttablaðið - 09.05.2017, Síða 48
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Bakþankar
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Ég var kominn í mígandi spreng. Leiksýningu var lokið, búið að klappa leik-
urum lof í lófa en fólk beggja vegna
við mig stóð eins og steinrunnið
í sætaröðinni og teppti klósett-
ferð mína. Ég brá því á það ráð að
hoppa yfir í þá næstu. Ekki tókst
betur til en svo að ég rakst utan í
hefðarfrú eftir klaufalega lend-
ingu. „Engan helvítis þjösnaskap
hérna,“ hreytti einhver út úr sér.
Ég leit aftur fyrir mig á hlaupunum
en sá ekki ókurteisa umvöndunar-
manninn en varð hins vegar var
við rauða jakkann hans.
Ég varð foxillur á klósettinu
yfir þessari illskeyttu áminningu,
svo að í höfði mínu brá ég haus
á þessar rauðklæddu herðar og
hjó hann svo af. Því næst mátaði
ég töffarasvipinn í speglinum og
strunsaði fram, reiðubúinn ef sá
rauði vildi ræða málin eitthvað
frekar.
Svo sá ég hann. Mér virtist hann
hafa herfilegan skúffukjaft og svo
ankannalegt og áfergjulegt augna-
ráð að hann minnti helst á risaál.
Ég tók þessu sem staðfestingu á því
að hann væri fáráðlingur og tók
því gleði mína á ný.
Mér var hins vegar ekki fyrr
runnin reiðin en ég áttaði mig á
því að það var ekkert fáráðlegt við
hann. Það var uppspuni frá minni
heimskulegu heift sem veit svo
mæta vel að okkur finnst þægi-
legra að fá á baukinn frá fáráð-
lingum heldur en almennilegu
fólki. Þess vegna gerir hún allt
fáránlegt, heimskt og ljótt, nema
spegilinn, svo þér finnist þú vera
ögn stærri en þessi veikgeðja púki
sem við verðum þegar illskan
grípur okkur. Hún er uppspretta
allra ljótu uppnefnanna, hún getur
málað allan heiminn heimskan og
ljótan til að reyna að róa okkur.
Svo, ef þú vilt lifa í fegurð skaltu
míga í hléinu.
Lifðu í fegurð
VERND
FYRIR FÖT
GEGN
GULUM
BLETTUMVERND
FYRIR FÖT
LOKSINS!
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
0
9
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
D
0
-F
8
E
0
1
C
D
0
-F
7
A
4
1
C
D
0
-F
6
6
8
1
C
D
0
-F
5
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
8
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K