Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 21
Vikublað 1.–3. mars 2016 Umræða 13
Myndin Beðið eftir strætó Líkt og vel þokkaðir strætónotendur mynduðu gæsirnar einfalda röð þegar þær hugðust nýta sér almenningssamgöngur höfuðborgarinnar. Mynd þorMar vignir
É
g fer ekki ofan af því að eitthvað
mikið er athugavert við lífeyris-
kerfi, sem þarf að láta fólk vinna
til 70 ára aldurs. Ég greiddi fyrst
í lífeyrissjóð þegar ég var 15 ára gam-
all þegar ég var til sjós. Því verð ég
búinn að greiða í hina og þessa líf-
eyrissjóði í 55 ár þegar ég loksins
kemst á lífeyri. Ekki má gleyma því
að ef ég dey fyrir 70 ára aldur eru 55
ára iðgjaldagreiðslur horfnar í hítina.
Ef ég myndi leggja svipaða upp-
hæð í reglubundinn sparnað, t.d. á
sparisjóðsbók eða íhaldssaman og
lítið áhættusækinn sparnað líkt og
Allianz, ætti ég vel á annað hundruð
milljónir við starfslok eftir 50 ára
greiðslur, sem einnig myndu erfast
að fullu.
Ég held að við Íslendingar verð-
um að fara að skoða hvað ekki er að
virka í þessu lífeyrissjóðakerfi okkar,
þegar aðrar þjóðir sem eru með
gegnumstreymiskerfi virðast geta
komið fólki á lífeyri 67 ára gamalt
eða jafnvel yngra. Þannig fæ ég mína
fyrstu lífeyrisgreiðslu frá Þýska líf-
eyristryggingarkerfinu (þ. Deutsche
Rentenversicherung) „aðeins“ 66
ára og 9 mánaða gamall, rúmlega
3 árum fyrr en í því íslenska. Það er
ekki hægt að bjóða fólki lengur upp
á engar skýringar á lélegri ávöxtun
og afkomu þessa kerfis okkar og af
hverju við þurfum að vinna leng-
ur en flestar aðrar vestrænar þjóðir,
þrátt fyrir að vera með „besta lífeyris-
kerfi í heimi“ að mati sumra. n
Vinnum við kannski
til dauðadags?
guðbjörn guðbjörnsson skrifar
Af Eyjunni
SJÓNMÆLINGAR
LINSUR • GLERAUGU
Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík
Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609