Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 10
Vikublað 1.–3. mars 201610 Umræða Stjórnmál
Í
dag er Ofur-þriðjudagur í Banda-
ríkjunum, mikilvægasti dagur
kosningabaráttunnar ef sjálfar
forsetakosningarnar eru undan-
skildar. Eftir daginn í dag ættu
meginlínurnar í kosningabaráttunni
að liggja fyrir þar sem mikill fjöldi
kjörmanna er í boði. Hjá repúblikön-
um er slegist um helming þeirra
repúblikana sem þarf til að tryggja
útnefningu og rúmlega þriðjung hjá
demókrötum.
Kosið verður með einum eða öðr-
um hætti í tólf ríkjum, þar af nokkrum
lykilríkjum, og þegar upp er staðið
má búast við því að frambjóðend-
ur fari að heltast úr lestinni. Þetta á
einkum við repúblikanamegin og
sterkar líkur eru á að Ben Carson
dragi sig í hlé. Hjá demó krötum er
baráttan líklegri til að standa lengur
því framundan eru kosningar í lykil-
ríkjum á borð við Flórída, New York
og Kaliforníu.
Í öllum tilvikum er kosið í svo-
kallaðri hlutfallskosningu, þar sem
frambjóðendur fá fjölda kjörmanna í
hlutfalli við atkvæðafjölda. Í sumum
tilvikum, einkum repúblikanamegin,
þurfa frambjóðendur þó að klífa yfir
ákveðinn þröskuld til að fá kjör-
menn.
Trump alls staðar líklegur
Hjá repúblikönum snýst slagurinn
um að stöðva Donald Trump sem
nú þegar hefur umtalsverða forystu
í kjörmönnum talið. Bjartsýnustu
stuðningsmenn Trumps vonast jafn-
vel til að það verði einungis forms-
atriði að klára forkosningarnar þegar
búið verður að telja upp úr kjör-
kössunum í nótt.
Ef marka má skoðanakannanir
hafa Trump og stuðningsmenn hans
fulla ástæðu til bjartsýni. Trump er
annaðhvort í forystu eða á meðal
efstu manna í öllum þeim ríkjum
sem verður kosið í. Jafnvel þótt hann
sigri ekki alls staðar má ætla að hann
verði enn í forystu í kapphlaupinu.
Aðrir frambjóðendur njóta ekki þess
munaðar.
Marco Rubio treystir á stuðning
flokkselítunnar og þykir sem stendur
líklegastur til að velta Trump úr
sessi. Með góðri útkomu í kvöld er
hann til alls líklegur þegar kosið
verður í heimaríki hans, Flórída,
þann 15. mars. Hinn aðalkeppi-
nautur Trumps, Ted Cruz, þarf sár-
lega á góðri útkomu að halda í kvöld,
þriðjudag, því ef íhaldssamur mál-
flutningur hans nær ekki í gegn í
suðurríkjunum, sem verða í aðal-
hlutverki í kvöld, er útlitið svart. Tap,
eða jafnvel naumur sigur, í höfuð-
víginu Texas yrði áfall og gæti jafn-
vel orðið til þess að Cruz játi sig sigr-
aðan.
Burtséð frá niðurstöðunni í dag
mun John Kasich að öllum líkindum
halda baráttunni áfram þangað til
búið verður að kjósa í heimaríki hans,
Ohio. Ben Carson þarf aftur á móti á
kraftaverki að halda, líklega fjölmörg-
um, til að eiga nokkurn möguleika.
Hillary á sigurbraut
Hillary Clinton nýtur mikils
meðbyrjar þessa dagana
eftir góðan sigur í Nevada
og Suður- Karólínu. Flest
bendir til að hún komi til
með að auka forskot sitt í
kvöld þar sem hún er afar
sterk í suðurríkjunum. Það
skýrist meðal annars af
fjölda blökkumanna sem
kjósa, en Hillary nýtur
mun meira fylgis en
Bernie Sanders í
þeim hópi.
Samkvæmt
könnunum er
Hillary með for-
skot í níu af
þeim ellefu
ríkjum sem
kosið verður
í hjá demó-
krötum í dag,
þótt í sumum
ríkjum hafi verið
gerðar of fáar
kannanir til að
hægt sé að spá
fyrir um niður-
stöðu. Ljóst er að
Bernie Sanders
mun sópa upp at-
kvæðum í heimaríki
sínu, Vermont, en
til að eiga raunhæf-
an möguleika á að veita
Hillary keppni í framhaldinu
þarf hann á góðri niðurstöðu að
halda í Massachusetts, Minnesota,
Colorado og Oklahoma.
Barist fram í júní
Þótt línur taki að skýrast allverulega
eftir Ofur-þriðjudag eru enn mikil-
vægir slagir framundan. Kosið verð-
ur í Flórída, Illinois, Norður-Karó-
línu og Missouri þann 15. mars og í
apríl verður barist í New York. Síðasti
stóri kjördagurinn verður þann 7.
júní þegar kosið verður í Kaliforníu,
Nýju-Mexíkó, Montana og fleiri ríkj-
um. n
Mikilvægasti dagur baráttunnar
n Línurnar skýrast á Ofur-þriðjudegi n Hillary og Trump gætu farið langleiðina með útnefningu
Magnús Geir Eyjólfsson mge@eyjan.is
Wyoming og
Norður-Dakóta
29 og 28 kjörmenn
Repúblikanar í þessum
ríkjum, ásamt Guam, fara
aðrar leiðir en önnur ríki. Í
stað forkosninga eða forvals
senda þeir kjörmenn sína
einfaldlega óbundna á
flokksráðstefnuna í júlí.
Colorado
Demókratar - 66 kjörmenn
Bernie Sanders verður að vinna
Colorado til að glæða baráttuna
lífi. Hann hefur lagt mikið í
sölurnar og hefur eytt tvöfalt
meira í sjónvarpsauglýsingar en
Hillary. Það hjálpar Sanders að
stór meirihluti kjósenda er hvítur,
en kjósendur frá rómönsku
Ameríku gætu haft mikið um
niðurstöðuna að segja. Colorado
hefur ekki reynst Clinton-hjón-
unum happafengur, Bill tapaði
fyrir Jerry Brown 1992 og Hillary
fyrir Barack Obama 2008. Hún
leggur þó mikið upp úr sigri í
þetta skiptið og nýtur stuðnings
æðstu flokksmanna í ríkinu.
Hjá repúblikönum er kjör-
mönnum ekki úthlutað eftir
niðurstöðum forkosninga, heldur
er kjörmönnum frjálst að styðja
hvern þann frambjóðanda sem
þeir kjósa.
Oklahoma
Demókratar - 38 kjörmenn
Bernie Sanders hefur verið að sækja
í sig veðrið í Oklahoma og áróður
hans gegn fjármálaöflunum á Wall
Street virðist falla vel í kramið í
verkamannaríkinu. Nýjustu kannanir
sýna að forskot Hillary Clinton er
innan skekkjumarka og Sanders hefur
hamrað járnið með því að birta tvöfalt
fleiri auglýsingar en Clinton. Þarna
gæti Sanders krækt í mikilvægan
iðnaðarsigur.
repúblikaNar - 43 kjörmenn
Oklahoma er eitt íhaldssamasta
ríki Bandaríkjanna og hafa forystu-
sauðirnir lagt gríðarlega áherslu
á ríkið í kosningabaráttu sinni.
Forkosningarnar eru lokaðar sem
þýðir að einungis þeir sem voru skráðir
í flokkinn fyrir 5. október fá að kjósa.
Trump hefur haft þægilega forystu í
Oklahoma fram til þessa, en Cruz og
Rubio gætu þó gert honum skráveifu.
tennessee
Demókratar - 67 kjörmenn
Hillary Clinton mun alltaf rúlla yfir Bernie
Sanders í Tennessee og hann veit það.
Þess vegna hefur hann ekki haft fyrir því að
heimsækja ríkið og ekki eitt einum dollara í
kosningabaráttu þar. Allar kannanir benda
til yfirburðasigurs Hillary.
repúblikaNar - 58 kjörmenn
Hér eru það kristnir sem ráða ríkjum og eðli-
lega eru það Trump, Cruz og Rubio sem leiða
kapphlaupið, í þessari röð. Sá síðastnefndi
nýtur stuðnings ríkisstjórans, Bills Haslam,
en engu að síður mælist Trump með dágott
forskot í nýjustu könnuninni á meðan Cruz
kemur honum næstur. Rubio getur í besta
falli skákað Cruz.
bandaríska Samóa
6 kjörmenn
Hér velja demókratar í forvali eingöngu sex
kjörmenn þannig að úrslitin hér skipta litlu
sem engu máli fyrir heildarniðurstöðuna.
Eðli málsins samkvæmt hafa kannanir ekki
verið gerðar, en Hillary Clinton hafði hér
betur gegn Barack Obama árið 2008.
texas
Demókratar - 252 kjörmenn
Texas er gríðarlega mikilvægt fyrir Hillary Clinton sem nýtur yfirburðastuðnings meðal
kvenna, kjósenda af spænskum uppruna og í dreifbýli. Það færði henni sigur yfir Barack
Obama árið 2008 og mun færa henni sigurinn yfir Bernie Sanders. Nýjustu kannanir sýna
Hillary með yfir 20 prósenta forskot.
repúblikaNar - 155 kjörmenn
Ef Ted Cruz sigrar ekki í Texas, og það frekar afgerandi, getur hann allt eins pakkað saman
og farið heim til sín – til Texas. Blessunarlega fyrir hann benda skoðanakannanir til þess að
hann fari með öruggan sigur af hólmi og er hann með 13 prósentustiga forskot á Trump. Til
að fá kjörmenn þurfa frambjóðendur að fá að minnsta kosti 20 prósent atkvæða og líklegt
að einungis Cruz og Trump nái því marki.
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket