Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 24
16 Menning Vikublað 1.–3. mars 2016 Í hjarta myrkursins Í rúm sjötíu ár frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar hefur virst ómögulegt að tala um illsku nema með því að vísa til baka til stríðshörmunganna. En eftir því sem að nasismi, Hitler og útrým­ ingarbúðir hafa smám saman orðið að tómum táknum sem allir geta gripið til að berja á andstæðingum sínum hafa sjónarmið útilokunar og afmennskunar aftur orðið áberandi og jafnvel ráðandi í umræðu vest­ rænna stjórnmála. Ungverska Óskarsverðlauna­ myndin Sonur Sáls (u. Saul Fia), frumraun leikstjórans László Nemes, virðist í fyrstu vera enn ein útjöskuð og tilgangslaus helfararklisjan, en reynist ekki aðeins margslungin og mikilvæg saga heldur sögð á nýstár­ legan og frumlegan hátt sem styður fullkomlega við frásögnina. Dauði og upprisa Við erum stödd í Auschwitz í október 1944. Það er verið að myrða fólk á verksmiðjuskala. Hópar gyðinga, svokallaðir Sonderkommandos, fresta eigin dauða með því að vinna baki brotnu við framkvæmdina. Þeir smala fólki inn í gasklefana, þrífa ummerkin og henda eigum fórnar­ lambanna, ferja „stykkin“ í lík­ brennsluofna og moka öskunni út í vatn – allt í kapp við klukkuna og undir öskrandi harðri hendi yfir­ manna skör ofar í dauðakeðjunni. Í miðju þessarar þaulskipulögðu geðveiki lifir einn ungur drengur af eiturgufurnar með herkjum, en er umsvifalaust handkæfður og tekinn inn á læknastofuna þar sem hann skal notaður til krufningar. Einn gyðinganna sem starfa í búðunum, Ungverjinn Sál, fylgist agndofa með: „þetta er sonur minn!“ hugsar hann. Í kjölfarið hefst mikið laumuspil og barátta fyrir því að bjarga líkinu og veita drengnum sómasam­ lega gyðinglega greftrun. Þetta er nánast ómögulegt verkefni á stað þar sem mannslíf er einskis virði og jarðneskar leifar enn verðlausari. Það flækir málið svo enn frekar að undirbúningur uppreisnar er í full­ um gangi. Lítill hópur Sonderkomm- andos ætlar að sýna umheiminum óhugnaðinn með ljósmyndavél sem var smyglað inn í búðirnar, þá hafa þeir orðið sér úti um sprengiefni og skal það notað til að stöðva tannhjól morðverksmiðjunnar. Öllu þessu stefnir Sál í hættu með tilraun sinni til þess að greftra drenginn. Allan tímann í mynd Fókus myndarinnar er, mjög bókstaf­ lega, á þennan eina ungverska gyðing, Saul Ausländer. Myndavélin snýr alltaf og aðeins að aðalpersónunni. Þröngur ramminn fangar hvert ein­ asta augnaráð og svipbrigði hans (eða öllu heldur svipbrigðaleysi) en aðrar persónur birtast og hverfa, og útrým­ ingarbúðirnar sjálfar eru aðeins í bak­ sýn – martraðakennt leiksvið. Kvikmyndatakan kveikir þá til­ finningu að hér geti hver maður að­ eins reynt að bjarga sjálfum sér. Það er ómögulegt að mynda langvar­ andi tilfinningasambönd í þessum óeðlilegu, ógnvænlegu og ómann­ eskjulegu aðstæðum þar sem einstaklingurinn er fullkomlega af­ mennskaður, þar sem líkami mann­ veru er aðeins stykki sem þarf að ferja frá A til B. Sál birtist okkur eins og lifandi dauður, svipbrigðalaus í eigin heimi. Við höfum enga yfirsýn heldur fylgj­ umst með honum færast um völ­ undarhús búðanna, ákvarðanir hans eru okkur illskiljanlegar. Þessi rörsýn gerir það að verkum að maður verður ringlaður og þarf að sleppa voninni um yfirsýn eða heildarmynd. Sjálfur skilur Sál lítið í umhverfi sínu, talar ekki þýsku né jiddísku sem eru ríkj­ andi tungumál í búðunum. Hljóð­ heimurinn ýtir undir ringulreiðina í huganum: nánast engin tónlist, bara stöðugar skipanir, óðagot og hljóð úr vítisvélinni: skrímslinu Auschwitz. Mennska og afmennskun Myndin flýr langt frá Hollywood­ legri tvíhyggju góðs og ills. Fanga­ verðir úr röðum nasista birtast varla nema sem ógnandi raddir og byssu­ kúlur. Það eru gyðingar sem skipa gyðingum að drepa gyðinga. Yfir­ menn, undirmenn, viðföng – en öll þolendur. Hin óskiljanlega illska felst fyrst og fremst í strúktúrnum sem hefur verið skapaður, byggingum sem hafa verið hannaðar og vinnu­ skipulagi sem hefur verið mótað til þess að svipta hóp fólks mennsk­ unni og slátra því. Innan slíks kerfis er erfitt að skilgreina gott og illt. Þrátt fyrir að búðirnar séu skipulagðar í þéttu neti valdboðs og ofbeldis sem virðist ómögulegt að berjast gegn eru alltaf gloppur í taki valdsins. Verðmæti sem er stolið úr klæðum hinna myrtu gengur sölum og kaupum. Þessi verðmæti er hægt að nýta til að beygja reglurnar – og að lokum til að gera uppreisn. Sál stendur á vissan hátt í vegi fyr­ ir uppreisninni með þrjósku sinni til að grafa drenginn og finna rabbína sem getur sungið yfir honum. Sá sem horfir á söguþráðinn abstrakt og með yfirsýn sögunnar getur sagt þetta vera óskynsamlegt. „Þú fórnar þeim lifandi fyrir þá dauðu,“ segir vinur Sáls, sem efast í þokkabót um að drengurinn sé raunverulega son­ ur hans – og sáir þannig efasemda­ fræi í huga áhorfandans. Er Sál ekki bara búinn að missa vitið? En hvort sem blóðtengslin eru blekking eða sönn finnur Sál sinn persónulega tilgang og trú í drengn­ um, eina haldreipið í miðri óskiljan­ legri geðveiki. Drengurinn drepst ekki í andlitslausum fjöldanum heldur verður einstaklingseðli hans ljóst þegar hann kemur lifandi úr klefanum. Sál gerir sér grein fyrir að mennsku þessa drengs sé ekki hægt að hunsa. Greftrunin verður þannig tákn um mennskuna, því er maður­ inn ekki eina lífveran sem greftrar hina látnu og er greftrunin ekki endan legt tákn um að hver mann­ vera sé einstök og óútskiptanleg? Orban og Útlendingur Myndin talar sterkt inn í ungverskt samhengi, jafnt sögulega sem og í dag. Yfirvöld hafa illa tekist á við samsekt sína í fjöldamorðum seinni heimsstyrjaldarinnar, en þau sendu 400 þúsund Ungverja til Auschwitz. Búðirnar eru því stærsti grafreitur þjóðarinnar. Og hin óuppgerða saga verður vafalaust aftur vígvöllur, því að stöð­ ugt eykst fylgi þjóðernissinnanna í Jobbik, og forsætisráðherrann Victor Orban beitir fyrir sig útlendingaótta og ­andúð til að réttlæta sífellt grófari einræðistilburði. Enn á ný rís upp andúð og ótti við utanaðkomandi í landinu, andúð og ótti sem leiðir óhjákvæmilega til smættunar og afmennskunar á stór­ um hópi fólks. Nú eru það ekki að­ eins gyðingar heldur flóttamenn og innflytjendur – það er varla tilviljun að eftirnafn Sáls er Ausländer, eða Útlendingur. n Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is Kvikmyndir Saul Fia / Sonur Sáls Leikstjórn: László Nemes Handrit: László Nemes, Clara Royer Aðalleikarar: Géza Röhrig, Levente Molnár, Urs Rechn Sýnd í Bíó Paradís „Þú fórnar þeim lifandi fyrir þá dauðu,“ segir vinur Sáls, sem efast í þokkabót um að drengurinn sé raun- verulega sonur hans. Mennskan í myrkrinu Sonur Sáls fjallar um örvæntingarfulla tilraun fanga í Auschwitz til að veita ungum dreng sóma- samlega greftrun. Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is Komdu í BÍLÓ! BMW 520D XDRIVE F10 nýskr. 04/2014, ekinn 31 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, lúxuspakki. TILBOÐSVERÐ AÐEINS 7.990.000 kr. Raðnr.254156 BMW 520D XDRIVE M-PACK F10 nýskr. 04/2015, ekinn 5 Þ.km, dísel, sjálfskiptur. TILBOÐSVERÐ AÐEINS 8.750.000 kr. Raðnr.254416 M.BENZ E 200CDI T BLUETEC AVANTGARDE nýskr. 11/2014, ekinn 28 Þ.km, dísel, sjálfskiptur 7 gíra. TILBOÐSVERÐ AÐEINS 6.990.000 kr. Raðnr.254418 M.BENZ C 220 BLUETEC AVANTGARDE nýskr.10/2014, ekinn 9 Þ.km, dísel, sjálfskiptur 7 gíra, mjög vel búinn! TILBOÐSVERÐ AÐEINS 6.990.000 kr. Raðnr.254705 TIL BO Ð TIL BO Ð TIL BO Ð TIL BO Ð TIL BO Ð M.BENZ E 200CDI T BLUETEC AVANTGARDE nýskr. 11/2014, ekinn 25 Þ.km, dísel, sjálfskiptur 7 gíra. TILBOÐSVERÐ AÐEINS 6.990.000 kr. Raðnr.254758 Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.