Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 14
Vikublað 1.–3. mars 20162 Í hádeginu - Kynningarblað
Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
T
aqueria er mexíkóskur
veitingastaður sem var
opnaður í október í fyrra.
Reksturinn hófst þó fyrr
þegar eigendurnir voru
með matarvagn á sínum snær-
um í miðbæ Reykjavíkur sem sló
samstundis í gegn og var valinn
besti matarvagn borgarinnar í
fyrrasumar af blaðinu Grapevine.
Nú hafa sömu rekstraraðilar opnað
nýjan veitingastað í Ármúla þar
sem fólk getur setið og notið mat-
arins. Hafdís Haraldsdóttir af-
greiðslustjóri segir að fólk hafi tek-
ið veitingastað með mexíkóskum
áherslum fagnandi og mikið sé um
að starfsmenn fyrirtækja í hverfinu
komi og njóti veitinga hjá þeim
í hádeginu. „ Viðskiptavinir okk-
ar koma þó ekki bara héðan úr
hverfinu heldur víðs vegar að úr
borginni,“ segir hún. „Við erum
mexíkóskur staður, skyndibita- og
grænmetis- og „vegan“-veitinga-
hús. Það hefur vakið athygli og
ánægju margra því ekki er um auð-
ugan garð að gresja hvað varðar úr-
val af „vegan“-stöðum. Við erum á
Facebook og þar má sjá fjölmörg
ummæli glaðra viðskiptavina sem
kunna að meta þessa skemmtilegu
viðbót í veitingaflóru landsmanna.“
Happy Hour hefst í hádeginu
„Við opnum klukkan 11 og erum
með Happy Hour til kl. 18.00.
Annars er opið til kl. 21.00 alla daga
nema sunnudaga. Við erum þekkt
fyrir taco-skeljarnar okkar sem eru
búnar til á staðnum og eru mjúk-
ar og ljúffengar. Þeir sem þekkja
alvöru mexíkóskan mat vita að
þannig eru þær bestar. Við vinnum
með mjög gott hráefni; allt ferskt
og búið til á staðnum og allir ættu
að finna eitthvað gómsætt við sitt
hæfi.“
Salarleiga ef óskað er
„Salinn okkar er hægt að leigja en
hann tekur 50 manns í sæti. Þegar
fólk er með hann á leigu þá lengist
opnunartíminn til klukkan eitt eftir
miðnætti.“
Taqueria, Ármúli 21, s: 552 4343
Opnunartími: 11.00–21.00 alla
daga nema sunnudaga. n
Þekkt fyrir mjúkar og ljúffengar taco-skeljar
Taqueria: Mexíkóskur
matur í Ármúlanum