Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Side 14
Vikublað 1.–3. mars 20162 Í hádeginu - Kynningarblað Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx Xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx T aqueria er mexíkóskur veitingastaður sem var opnaður í október í fyrra. Reksturinn hófst þó fyrr þegar eigendurnir voru með matarvagn á sínum snær- um í miðbæ Reykjavíkur sem sló samstundis í gegn og var valinn besti matarvagn borgarinnar í fyrrasumar af blaðinu Grapevine. Nú hafa sömu rekstraraðilar opnað nýjan veitingastað í Ármúla þar sem fólk getur setið og notið mat- arins. Hafdís Haraldsdóttir af- greiðslustjóri segir að fólk hafi tek- ið veitingastað með mexíkóskum áherslum fagnandi og mikið sé um að starfsmenn fyrirtækja í hverfinu komi og njóti veitinga hjá þeim í hádeginu. „ Viðskiptavinir okk- ar koma þó ekki bara héðan úr hverfinu heldur víðs vegar að úr borginni,“ segir hún. „Við erum mexíkóskur staður, skyndibita- og grænmetis- og „vegan“-veitinga- hús. Það hefur vakið athygli og ánægju margra því ekki er um auð- ugan garð að gresja hvað varðar úr- val af „vegan“-stöðum. Við erum á Facebook og þar má sjá fjölmörg ummæli glaðra viðskiptavina sem kunna að meta þessa skemmtilegu viðbót í veitingaflóru landsmanna.“ Happy Hour hefst í hádeginu „Við opnum klukkan 11 og erum með Happy Hour til kl. 18.00. Annars er opið til kl. 21.00 alla daga nema sunnudaga. Við erum þekkt fyrir taco-skeljarnar okkar sem eru búnar til á staðnum og eru mjúk- ar og ljúffengar. Þeir sem þekkja alvöru mexíkóskan mat vita að þannig eru þær bestar. Við vinnum með mjög gott hráefni; allt ferskt og búið til á staðnum og allir ættu að finna eitthvað gómsætt við sitt hæfi.“ Salarleiga ef óskað er „Salinn okkar er hægt að leigja en hann tekur 50 manns í sæti. Þegar fólk er með hann á leigu þá lengist opnunartíminn til klukkan eitt eftir miðnætti.“ Taqueria, Ármúli 21, s: 552 4343 Opnunartími: 11.00–21.00 alla daga nema sunnudaga. n Þekkt fyrir mjúkar og ljúffengar taco-skeljar Taqueria: Mexíkóskur matur í Ármúlanum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.