Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 18
Vikublað 1.–3. mars 20166 Í hádeginu - Kynningarblað
Stjórnmálamenn sameinast í skyndibitanum á Ali Baba
Ali Baba: Uppáhalds arabíski
veitingastaður borgarbúa
A
li Baba hefur átt miklum
vinsældum að fagna og
opnaði fyrirtækið nýjan
stað í Spönginni fyrir um
mánuði. Það ætti að gleðja
íbúa í efri byggðum Reykjavíkur en
nýi staðurinn er fjölskylduvænn og
gott er að setjast þar niður og njóta
góðra og spennandi veitinga.
Ekta kebab og brakandi ferskt
hráefni
Ali Baba, sem var opnaður við Ing-
ólfstorg árið 2009, er löngu orðinn
uppáhalds arabíski veitingastaður
borgarbúa. Eigandinn, Yaman Brik-
han, segir að aðalsmerki staðarins sé
ekta kebab. „Sumir gefa sig út fyrir að
vera með kebab á boðstólum en því
miður er raunin ekki alltaf sú. Hér á
Ali Baba eldum við hins vegar kebab
af fagmennsku og því fá gestir okk-
ar alvöru gerðina hjá okkur. „Ég nota
einungis ferskt íslenskt hráefni, eins
og kjúkling, lamb og nautakjöt,“ segir
Yaman Brikhan. „Kryddið er þó af
arabískum uppruna en með notkun
þess náum við fram hinu eftirsótta,
ekta arabíska bragði sem fólk sækist
eftir. Það má segja að í eldhúsi okkar
sameinist arabísk og evrópsk matar-
gerð og útkoman er öllum að skapi.“
Stjórnmálamenn sameinast í
skyndibitanum á Ali Baba
„Á Ali Baba eru alltaf hádegistilboð
í gangi og ég kappkosta að bjóða
upp á bragðgóðan og ferskan mat
á hagstæðu verði. Íslendingar
eru orðnir sólgnir í kebab – eftir
að þeir kynntust eldamennsk-
unni hjá okkur,“ segir Yaman
glettinn á svip. „Hingað
kemur fólk á öllum aldri og
það er gaman að segja frá
því að alþingismenn eru
virkilega góðir viðskipta-
vinir á Ali Baba. Bæði Össur
Skarphéðinsson og sjálfur
borgarstjórinn, Dagur B.
Eggertsson, koma reglulega
til okkar og eru hrifnir.
Ánægðir kúnnar okkar eru
bestu meðmælin!“
Ali Baba, Veltusundi 3b
og Spönginni. S: 445 44 45
https://www.facebook.com/Ali-
Baba-103635049728030/info/
Opnunartími virka daga frá 11.00
til 02.00 og um helgar er opið til kl.
06.00. n