Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Page 18
Vikublað 1.–3. mars 20166 Í hádeginu - Kynningarblað Stjórnmálamenn sameinast í skyndibitanum á Ali Baba Ali Baba: Uppáhalds arabíski veitingastaður borgarbúa A li Baba hefur átt miklum vinsældum að fagna og opnaði fyrirtækið nýjan stað í Spönginni fyrir um mánuði. Það ætti að gleðja íbúa í efri byggðum Reykjavíkur en nýi staðurinn er fjölskylduvænn og gott er að setjast þar niður og njóta góðra og spennandi veitinga. Ekta kebab og brakandi ferskt hráefni Ali Baba, sem var opnaður við Ing- ólfstorg árið 2009, er löngu orðinn uppáhalds arabíski veitingastaður borgarbúa. Eigandinn, Yaman Brik- han, segir að aðalsmerki staðarins sé ekta kebab. „Sumir gefa sig út fyrir að vera með kebab á boðstólum en því miður er raunin ekki alltaf sú. Hér á Ali Baba eldum við hins vegar kebab af fagmennsku og því fá gestir okk- ar alvöru gerðina hjá okkur. „Ég nota einungis ferskt íslenskt hráefni, eins og kjúkling, lamb og nautakjöt,“ segir Yaman Brikhan. „Kryddið er þó af arabískum uppruna en með notkun þess náum við fram hinu eftirsótta, ekta arabíska bragði sem fólk sækist eftir. Það má segja að í eldhúsi okkar sameinist arabísk og evrópsk matar- gerð og útkoman er öllum að skapi.“ Stjórnmálamenn sameinast í skyndibitanum á Ali Baba „Á Ali Baba eru alltaf hádegistilboð í gangi og ég kappkosta að bjóða upp á bragðgóðan og ferskan mat á hagstæðu verði. Íslendingar eru orðnir sólgnir í kebab – eftir að þeir kynntust eldamennsk- unni hjá okkur,“ segir Yaman glettinn á svip. „Hingað kemur fólk á öllum aldri og það er gaman að segja frá því að alþingismenn eru virkilega góðir viðskipta- vinir á Ali Baba. Bæði Össur Skarphéðinsson og sjálfur borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, koma reglulega til okkar og eru hrifnir. Ánægðir kúnnar okkar eru bestu meðmælin!“ Ali Baba, Veltusundi 3b og Spönginni. S: 445 44 45 https://www.facebook.com/Ali- Baba-103635049728030/info/ Opnunartími virka daga frá 11.00 til 02.00 og um helgar er opið til kl. 06.00. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.