Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Blaðsíða 17
Vikublað 1.–3. mars 2016 Kynningarblað - Í hádeginu 5 Hjá Dóra: Heimilislegur matur á góðu verði H alldór Þórhallsson mat­ reiðslumaður hefur um árabil verið eitt af kennileitum Mjóddar­ innar í Breiðholti þar sem hann hefur síðan 1996 rekið hina vinsælu matsölu Hjá Dóra. Hann gengur jafnan undir nafninu Dóri og er mönnum í hverfinu að góðu kunnur og jafnvel þótt út fyrir hverf­ ið væri leitað! „Hjá okkur ríkir notalegt and­ rúmsloft með allt að því heimilis­ legum blæ. Matsalan nýtur mikilla og stöðugra vinsælda enda vinn ég eingöngu með gott hráefni og legg áherslu á bragðgóðan mat fyrir hagstætt verð, en selt er eftir vigt og meðalverð á máltíð um 900–1.450 krónur,“ segir Dóri. „Þótt hér í hádeginu verði oft myndarleg röð svangra viðskipta­ vina í þá gengur þjónustan hratt og vel fyrir sig. Því hikar fólk ekki við að bíða smá stund þar sem það veit sem er; að maturinn er gómsætur og það bregst aldrei. Ég er líka með einvala starfslið sem hefur verið lengi hjá mér,“ upplýsir Dóri glaður í bragði. Hamborgarhryggur og snitsel með tilheyrandi á föstudögum Veitingamaðurinn bendir á að við­ skiptavinirnir geti ávallt geng­ ið að sex réttum vísum. „Hér er á hverjum degi djúpsteikt ýsa, kjúklingur, kjötbollur, steikt lamba­ læri, svína hryggur með pöru og rifjasteik með pöru. Við erum líka alltaf með tvo aðra rétti, sem eru mismunandi eftir dögum, t.d. lasanja, svínasnitsel og fiskibollur. Á föstudögum er ég oftast með hamborgarhrygg og snitsel með til­ heyrandi,“ segir hann. Allir réttir eldaðir á staðnum „Allur matur er eldaður hér á staðn­ um. Í salnum eru sæti fyrir 35 manns og er margsetið við þau í hádeginu. Vinnuhópar og iðnaðar­ menn borða hér í stórum stíl og einnig fólk úr fyrirtækjunum í kring auk þess sem ýmsir sem eiga er­ indi í Mjóddina koma við hjá okk­ ur og fá sér gjarnan í svanginn. Þetta breytist aðeins þegar líður á daginn en á þeim tíma kemur fólk oft við og kaupir mat til þess að hafa með sér heim. Það er einmitt mikið um það á föstudögum þegar fólk er lúið eftir vinnuvikuna – þá finnst því gott að koma við hjá mér og kaupa tilbúinn, bragðgóðan rétt til að taka með sér heim, henda síðan bakkan­ um og byrja helgina.“ Dóri segir að algengt sé að eldri borgarar kaupi mat hjá honum og einnig þeir sem búa einir. „Fólk sér hagkvæmnina og tilbreytinguna í því að kaupa heitan, tilbúinn mat. Auk þess sem það sparar mörgum bæði fyrirhöfn og tíma,“ segir veitingamaðurinn vinsæli. Hjá Dóra, Þönglabakki 1 – Mjóddinni. S: 557­9910. Opnunar­ tími er virka daga 11.30–13.30 og svo seinnipartinn frá 17.00–19.00 S: 557­3910 n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.