Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.2016, Qupperneq 17
Vikublað 1.–3. mars 2016 Kynningarblað - Í hádeginu 5
Hjá Dóra: Heimilislegur
matur á góðu verði
H
alldór Þórhallsson mat
reiðslumaður hefur
um árabil verið eitt af
kennileitum Mjóddar
innar í Breiðholti þar sem
hann hefur síðan 1996 rekið hina
vinsælu matsölu Hjá Dóra. Hann
gengur jafnan undir nafninu Dóri
og er mönnum í hverfinu að góðu
kunnur og jafnvel þótt út fyrir hverf
ið væri leitað!
„Hjá okkur ríkir notalegt and
rúmsloft með allt að því heimilis
legum blæ. Matsalan nýtur mikilla
og stöðugra vinsælda enda vinn ég
eingöngu með gott hráefni og legg
áherslu á bragðgóðan mat fyrir
hagstætt verð, en selt er eftir vigt og
meðalverð á máltíð um 900–1.450
krónur,“ segir Dóri.
„Þótt hér í hádeginu verði oft
myndarleg röð svangra viðskipta
vina í þá gengur þjónustan hratt og
vel fyrir sig. Því hikar fólk ekki við að
bíða smá stund þar sem það veit sem
er; að maturinn er gómsætur og það
bregst aldrei. Ég er líka með einvala
starfslið sem hefur verið lengi hjá
mér,“ upplýsir Dóri glaður í bragði.
Hamborgarhryggur og snitsel
með tilheyrandi á föstudögum
Veitingamaðurinn bendir á að við
skiptavinirnir geti ávallt geng
ið að sex réttum vísum. „Hér er
á hverjum degi djúpsteikt ýsa,
kjúklingur, kjötbollur, steikt lamba
læri, svína hryggur með pöru og
rifjasteik með pöru. Við erum líka
alltaf með tvo aðra rétti, sem eru
mismunandi eftir dögum, t.d.
lasanja, svínasnitsel og fiskibollur.
Á föstudögum er ég oftast með
hamborgarhrygg og snitsel með til
heyrandi,“ segir hann.
Allir réttir eldaðir á staðnum
„Allur matur er eldaður hér á staðn
um. Í salnum eru sæti fyrir 35
manns og er margsetið við þau í
hádeginu. Vinnuhópar og iðnaðar
menn borða hér í stórum stíl og
einnig fólk úr fyrirtækjunum í kring
auk þess sem ýmsir sem eiga er
indi í Mjóddina koma við hjá okk
ur og fá sér gjarnan í svanginn.
Þetta breytist aðeins þegar líður á
daginn en á þeim tíma kemur fólk
oft við og kaupir mat til þess að hafa
með sér heim. Það er einmitt mikið
um það á föstudögum þegar fólk er
lúið eftir vinnuvikuna – þá finnst því
gott að koma við hjá mér og kaupa
tilbúinn, bragðgóðan rétt til að taka
með sér heim, henda síðan bakkan
um og byrja helgina.“ Dóri segir að
algengt sé að eldri borgarar kaupi
mat hjá honum og einnig þeir sem
búa einir. „Fólk sér hagkvæmnina
og tilbreytinguna í því að kaupa
heitan, tilbúinn mat. Auk þess sem
það sparar mörgum bæði fyrirhöfn
og tíma,“ segir veitingamaðurinn
vinsæli. Hjá Dóra, Þönglabakki 1 –
Mjóddinni. S: 5579910. Opnunar
tími er virka daga 11.30–13.30 og
svo seinnipartinn frá 17.00–19.00
S: 5573910 n