Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2016, Page 2
Helgarblað 1.–4. apríl 20162 Fréttir Sími 568-5556 www.skeifan.is Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eysteinn@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölumaður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Föst söluÞÓKNuN Sími 568- 5556 www .skeifan.is 1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá Vonin kviknar á Lesbos Þ etta er mjög sérstök reynsla sem við erum í raun enn að vinna úr,“ segir Eva Davíðs- dóttir, sem ásamt kærsta sínum, Stephen Anderson, ferðaðist til grísku eyjunnar Lesbos til þess að taka þátt í hjálparstarfi. Eins og DV greindi frá í byrjun febrúar þá stóð parið fyrir söfnun sem ætlunin var að nota til þess að gera aðstæður flóttafólksins bærilegri. „Viðbrögðin voru frábær. Á stuttum tíma fengum við ótrúlegt magn af fötum og söfn- uðum tæplega þrjú hundruð þúsund krónum inn á reikning. Við keyptum því aukatöskur í flugið og gátum farið með um 70 kílógrömm af fatnaði auk þess að kaupa nauðþurftir á staðn- um fyrir peningana,“ segir Eva. Tilnefndir til friðarverðlauna Lesbos er falleg eyja sem er skammt frá ströndum Tyrklands. Hún er um 1.600 ferkílómetrar að stærð en til samanburðar er höfuðborgarsvæðið rúmlega 1.000 ferkílómetrar. „Við dvöldum á norðurhluta hennar og í raun og veru þá er enn hægt að heimsækja Lesbos án þess að verða nokkuð var við neyðina sem á sér stað. Út af fréttaflutningi hafa ferða- menn sniðgengið eyjuna og því kom okkur skemmtilega á óvart að hitta marga innfædda sem voru að aðstoða. Þeir sem hafa horn í síðu flóttamanna láta þó líklega ekki sjá sig á vettvangi og við heyrðum alveg miður skemmtilegar sögur af kyn- þáttafordómum og áreiti sem grískir sjálfboðaliðar verða fyrir,“ segir Eva. Almenn velvild eyjarskeggja hefur ekki farið fram hjá alþjóðasamfé- laginu því að íbúar Lesbos voru til- nefndir til friðarverðlauna Nóbels í ár út af samkennd sinni og fórnum í þágu flóttamanna. Von kviknar í brjósti flóttamanna Eva segist ekki hafa vitað við hverju ætti að búast á vettvangi en að upp- lifun hafi verið sérstök. „Þegar flótta- mennirnir ná að landi á Lesbos þá er það ákveðinn léttir og maður finnur hvernig von kviknar í brjósti þeirra. Það er skrítið að upplifa þessar já- kvæðu tilfinningar miðað við hvað aðstæðurnar eru að mörgu leyti nötur legar,“ segir Eva. Hún segir að sjálfboðaliðarnir séu hvattir til þess að búa flóttamennina eins vel og efni standa til fyrir áframhaldandi ferðalag. „Fæstir staldra við á Lesbos nema í 2–4 daga. Við reyndum því að veita fólki hlýlegar móttökur því að þarna var ákveðin stund milli stríða hjá flóttafólkinu. Fötin sem við fórum með nýttust vel og við gát- um keypt ýmislegt á vettvangi til þess að gefa fólki, aðallega keypt- um við skó,“ segir Eva. Fann sig best í barnatjaldinu Að hennar sögn var ótrúlegt hversu fallegt andrúmsloft tókst að skapa á vettvangi og skipulag hjálparstofnana var gott miðað við manneklu og fjárskort. „Ég fann mig best í barnatjaldinu þar sem reynt var að hlúa að krökkunum og gefa þeim tæki- færi til þess að leika sér áhyggju- laust. Þrátt fyrir erfiðleikana var magnað að sjá hversu fljót þau voru að gleyma sér við þá iðju,“ segir Eva. Að sama skapi fannst henni átakan- legt að leika sér við sum börn, vitandi það að þjóðerni þeirra gerði það að verkum að þau og fjölskyldur þeirra myndu að öllum líkindum ekki kom- ast áfram inn í álfuna. „Sýrlendingar og Írakar eru í forgangi en til dæmis komast afganskir flóttamenn að öll- um líkindum ekki lengra. Við hittum allnokkrar fjölskyldur frá Afganistan á meðan við störfuðum á Lesbos,“ segir Eva. Hræðilegar aðstæður við Idomeni Frá Lesbos halda flóttamennirnir til Aþenu og þaðan freista þeir þess að komast til Makedóníu. „Þar er nánast alfarið búið að loka landamærunum sem hefur gert það að verkum að um 13 þús- und flóttamenn lifa við hræðilegar aðstæður við landamærin,“ segir Eva. Staðurinn sem um ræðir heitir Idomeni og í nýlegum pistli lýsti Þór- unn Ólafsdóttir, sem meðal annars hefur komið að hjálparstörfum á Lesbos, staðnum sem „úthverfi helvítis“. „Margt af því fólki sem við kynntumst á Lesbos ætlaði að halda til Idomeni næst eða til Líbanon þar sem ástandið er einnig slæmt. Evrópubúar hafa misst áhugann á ástandinu en neyðin er enn mikil,“ segir Eva. n Eva Davíðsdóttir og Stephen Anderson komin heim eftir hjálparstarf á Lesbos Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Með von í brjósti Móðir með ung börn sín nýkomin til Lesbos. Þrátt fyrir slæmt ástand þá er Lesbos yfirleitt stund milli stríða hjá flóttamönnunum. Þegar stigið er á land er tilefni til þess að gleðjast og von kviknar í brjóstum þeirra. Hjá flestum eru hins vegar miklir erfiðar- leikar fram undan. Á víð og dreif Hér má sjá aragrúa af björgunarvestum sem skilin hafa verið eftir á ströndinni þar sem Eva og Stephen störfuðu. Húmar að Flóttamennirnir koma í bátum að næturlagi. Mjög hefur dregið úr komu þeirra til Lesbos út af auknum viðbúnaði landhelgisgæslunnar tyrknesku. „Það komu um tveir bátar á hverri nóttu á því svæði sem við vorum. Ég fékk þær upplýsingar að tvö þúsund manns hefðu komið til Lesbos yfir þriggja daga tímabil um það leyti sem við vorum úti,“ segir Eva. Á vettvangi Stephen ásamt ungum drengjum sem voru nýkomnir til Lesbos. Að sögn Evu er ótrúlegt hversu fljótt börnin gleyma sér við leik miðað við erfiðar aðstæður þeirra. Stephen og Eva Í bakgrunni er fatnaðurinn í pokum og kössum, sem þau söfnuðu fyrir ferðina. „Þegar flótta- mennirnir ná að landi á Lesbos þá er það ákveðinn léttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.